Bræðrabandið - 01.05.1985, Blaðsíða 5

Bræðrabandið - 01.05.1985, Blaðsíða 5
SKÝRSLA FORMANNS INNGANGUR Söfnuðirnir eru vígi Guðs hér a jörðu, sauðabyrgi og hús Guðs. Söfnuð- irnir eru verkamenn Guðs, samstarfsmenn Krists til að frelsa sálir - menn og konur. Söfnuðurinn veitir öryggi og söfnuðurinn starfar. Öryggi safnaðarins og árangur í starfi fer eftir trúmennsku og helgun safnaðarins. Öryggið kemur frá Guði og árangur í starfi einnig. En Guð getur ekki blessað söfnuð sinn með vernd og varðveislu og árangri í starfi, ef söfnuðurinn tekur ekki við Anda Guðs sem kallar á trúmennsku og helgun. Við verðum því stöðugt að svara kalli Andans um trúmennsku og helgun - fylgja 3esú Kristi sem fyrir Anda sinn og þjón sinn Clóhannes kallar okkur til að óttast Guð og gefa honum dýrð. Að óttast Guð og gefa honum dýrð er einmitt þetta að sýna trúmennsku og helgun. Safnaðarstarfið á undanförnum þrem árum sýnir okkur blessun Guðs af náð hans og miskunn og kærleika til fólks síns - í hlutfalli við trúmennsku okkar og helgun - miklu, miklu meira en við eigum skilið - það er allt óverðskuldað - en samt í hlutfalli við trúmennsku okkar og helgun. Þegar við vinnum að eilífri velferð annarra og að því að blessa, líkna og hjálpa, gleðja, uppörva og hugga - þá sýnum við trúmennsku og berum ávexti helgunar. Þegar við berum Kristi og sannleik- anum vitni og boðum hann öðrum þá sýnum við trúmennsku og berum ávexti sannrar biblíulegrar helgunar. Þegar málefni Guðs fær frumgróðann af tekjum okkar og okkar bestu krafta og áhuga þá sýnum við sanna trúmennsku og helgun. Þegar við ekki aðeins gefum af allsnægtum og eftir að öllum þörfum okkar hefur verið fullnægt heldur fórnum - þá fetum við í fótspor Krists sem sagði: "Ekki eins og ég vil heldur eins og þú vilt", þá sýnum við þá trúmennsku og helgun sem er aðalsmerki hins kristna, þá erum við niðjar Abrahams, þá tilheyrum við Kristi. Guði sé þökk fyrir það sem söfnuður- inn hefur verið og það sem hann hefur gert, bæði á hinum ýmsu stöðum og einnig sameiginlega. Þökk sé Guði fyrir starf hvíldar- dagsskólans, og guðsþjónustuna, æsku- lýðsstarf, systrafélagsstarf, leikmanna- starf, bindindisstarf, skólastarf, bóka- og blaðaútgáfu, bréfaskólastarf, útbreislustarf, haustsöfnun til Hjálparstarfs aðventista, heimsóknar- starf, tónlistarstarf og félagsstarf ýmiss konar. Allt þetta starf útheimtir starfsfólk. Hikið af því hvílir á leikmönnum en einnig eru kjörnir og ráðnir starfsmenn eins og hér greinir. STARFSFÓLK SAFNAÐARINS Starfsmenn safnaðarins eru nú sem hér segir: Samtökin Vigðir prédikarar 3 (þar af 1 á eftirlaunum) Aðrir prédikarar 3 Gjaldkeri 1 Skrifstofustúlka 1 Barnaskólakennarar _2 10 Bókaforlag Forstjori 1 Stundavinna _1_ 2 Samtals 12 að starfsgildum 10 Hlíðardalsskóli Fastráðnir 8 Sjálfboðaliðar Samtals 12 Allt þetta starf miðar að vexti safnaðarins. Tala safnaðarmeðlima er sem hér segir: TALA SAFNAÐARFÓLKS Á þessu tímabili 1982-1985 bættust í systkinahópinn fyrir skírn: 1982 1 1983 2 5

x

Bræðrabandið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.