Bræðrabandið - 01.05.1985, Side 6

Bræðrabandið - 01.05.1985, Side 6
1984 14 1985 _1_ Samtals 18 Samtals hafa 18 bæst við í söfnuðinn frá því á síðasta aðalfundi. Á sama tíma dóu 20 og viljum við minnast þeirra með virðingu. Einnig hafa systkini flust til og frá landinu. Tala safnaðarfólks nú samkvæmt bókum safnaðarins mun vera 549. Á síðasta aðalfundi voru samþykktar 12 tillögur varðandi vöxt safnaðarins. Við skulum nú líta á þær. Fyrst eru 7 er lúta að innri vexti og þá 5 um ytri vöxt. INNRI VÖXTUR. 1. Að hvetja safnaðarstjórnir til að endurvekja bsna- samkomur/hópa og Biblíurannsóknir. Það er gleðilegt að geta horft um öxl og séð að þetta hefur verið gert. Bæna- og Biblíurannsóknarhópar og/eða föstudagskvöldsamkomur hafa verið í öllum okkar söfnuðum og þátttaka á þessum dýrmætu stundum hefur farið vaxandi. 2. Að lögð verði áform um námskeið innan safnaðanna þar sem staða og kenningar safnaðarins verði kannaðar í ljósi spádóma Biblíunnar. í þessum efnum er hvíldardagsskólinn auðvitað ómetanlegur og má nefna þar lexíur 3. og 4. ársfjórðungs 1981 sem heita "Þessu trúum við" I og II. Af námskeiðum sérstaklega ber að nefna sumarmótin að Hlíðardalsskóla í ágúst hvert ár en þar hafa ræðumenn verið árið 1982 br. E.Foster, árið 1983 br. W.R.L.Scragg og Björgvin Snorrason, og arið 1984 br. Steven Thompson skólastjóri Newbold College. Á þessum mótum hefur staða og kenningar safnaðarins verið kannaðar í ljósi spádómanna, og stundum mjög sterklega. Einnig er rétt að nefna námskeið br. 3ohn Berglunds, en í síðari hluta námskeiðsins kom hann sérstaklega inn á kenningar safnaðarins í ljósi spádómanna. Ekki síður athyglisvert var námskeiðið "Á ári Biblíunnar" á s.l. hausti sem Björgvin Snorrason hafði. Núna eftir áramótin í febrúar og mars var br. David Lawson með stórkostlega fyrirlestra um spádómana þar sem ljóslega kom fram bæði staða og kenning- ar safnaðarins. 3. Að lögð verði meiri áhersla á kerfisbundna boðun Orðsins innan safnaðarins. Það er líklegt að auk hvíldardags- skólans og guðsþjónustu þá hafi það sem fram kemur í bæði nr. 1 og 2 hér að ofan uppfyllt tilgang þessarar tillögu. En um þetta geta engir dæmt betur en safnaðarmeðlimirnir sjálfir. Vonandi kemur það fram hér á þessum fundi ef enn skortir á. Það er rétt í þessu samhengi einnig að minna á hinar afar góðu hvíldardagsskólalexíur fullorðinna sem taka fyrir eina bók Biblíunnar í einu, og byrjuðu í janúar með Markúsarguð- spjalli. Núna er verið að rannsaka síðara Tímóteusarbréf og næst verður farið í 1. Mósebók. 4. Að skólamál safnaðarins verði efld með öllum hugsanlegum ráðum. a) fyrst og fremst safnaðarskólarnir með því að tryggja þeim hæft starfslið til lengri tíma í senn. b) tryggja tengsl þeirra við Hlíðardalsskólann. c) auka skilning safnaðarmeðlima á mikilvægi aðventmenntunar - fyrstu áranna. Á s.l. þrem árum hefur Barnaskólinn í Reykjavík verið starfræktur allan tímann en Barnaskólinn í Keflavík aðeins fyrsta árið. í minni söfnuðum eru sveiflur í fjölda barna á skólaaldri afdrifaríkari, svo og ef kennslukraftur er óstöðugur. En vonandi verða Barnaskólarnir fastur þáttur í safnaðarstarfi okkar. Af Barnaskólanum í Reykjavík er það að segja að hann hefur tryggt sér góðan starfskraft til frambúðar í str. Lilju Sveinsdóttur frá N-Hundadal. Skólinn er enn í mjög ófullnægjandi húsnæði í Skerjafirðinum , en mikið hefur verið unnið að því að undirbúa möguleika á nýrri skólabyggingu í Fossvoginum. Hefur þetta verið nokkuð kynnt í Reykjavíkur- söfnuðinum svo og í Bræðrabandinu. Mjög brýnt er að taka ákvörðun í framhaldi þessa máls og væntanlega getur þessi 6

x

Bræðrabandið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.