Bræðrabandið - 01.05.1985, Blaðsíða 7

Bræðrabandið - 01.05.1985, Blaðsíða 7
aðalfundur látið málið til sín taka. Tengsl skólanna við Hlíðardalsskóla hafa verið tryggð með 7. bekknum í Barnaskólunum. Oft hefur hvatningin hljómað til unga fólksins okkar, sérstaklega á sumarmótunum, til að búa sig undir kennslu við skóla okkar og eins í persónulegum samtölum. En meira maetti gera af þessu t.d. í starfi æskulýðs deildarinnar, bæði á ungmennamótum og í æskulýðsblaðinu Innsýn, á Hlíðardals- skóla og af hálfu starfsmanna og leikmanna almennt og síðast en ekki síst af menntamálanefnd Samtakanna. Dafnframt þessu er áherslan á mikilvægi aðventmenntunarinnar. Til þess eru einnig settir ákveðnir skóla- máladagar á kirkjuárinu og eru þeir vonandi notaðir eins og til er ætlast. 5. Að æskulýðsstarf safnaðarins verði eflt með því að tryggja einstakl- ing sem hefur það sem aðalstarf. Einnig verði því tryggð starfsaðstaða. Spor í þessa átt var tekið þegar síðasti aðalfundur kaus Þröst Steinþórs- son sem æskulýðsleiðtoga, og hvað stærsta söfnuðinn, Reykjavíkursöfnuðinn snertir var endurnýjun hliðarbyggingar kirkjunnar m.a. gerð til þess að skapa starfsaðstöðu fyrir ungmennafélags- og æskulýðsstarf. Samtökin hafa með hjálp Norður-Evrópudeildarinnar reynt að styðja við þá framkvæmd eftir bestu getu. 6. Að haldið verði áfram undirbún- ingi og útgáfu safnaðarhandbókar ásamt bæklingi um réttindi og skyldur starfs- manna. Hagnýtir kaflar úr safnaðarhandbók- inni hafa birst í Bræðrabandinu frá ársbyrjun 1983 en þeir eru þessir: 1. Úr kafla 3 bls. 63-65. "Að flytja safnaðarbréf safnaðarmeðlima." 2. Úr kafla 10 bls. 191-197. "Safnaðarkosningar" 3. Allur 6. kaflinn bls. 75-104. "Embættismenn safnaðarins og skyldur þeirra." 4. Allur 4. kaflinn bls. 51-55. "Skipulag safnaðar Sjöunda dags aðvent- ista" 5. Allur 2. kaflinn bls. 31-47. "Grundvallartrúaratriði Sjöunda dags aðventista" 6. Allur 7. kaflinn bls. 106-138. "Guðsþjónustur og samkomur safnaðarins." 7. Allur 11. kaflinn bls. 201-213. "Fjármögnun fagnaðarerindisins." Fyrir utan viðbótarkafla fyrir Norður-Ameríku eru 16 kaflar í handbók- inni, alls 251 bls. Af þessum er búið að þýða og birta rétt rúml. 100 bls. eða um 40%. Kaflar sem enn á eftir að þýða heita: l.kafli: "Söfnuður hins lifanda Guðs". 8. kafli: "Deildir og félög safnað- arins og embættismenn þeirra". 9. kafli: "Prestar og starfsmenn safnaðarins". 13. kafli: "Safnaðaragi". 14. kafli: "Að stofna, sameina og leysa upp söfnuði". 15. kafli: "Hjónaskilnaður og síðari gifting." 16. kafli: "Ræðustóllinn ekki umræðuvettvangur." Að sjálfsögðu eru þessir þættir í Bræðrabandinu aðeins bráðabirgðaútgáfa. Endanleg útgáfa verður sennilega í lausblaðabók. Þýðingin verður vandlega yfirfarin fyrir þá útgáfu. Varðandi bækling um réttindi og skyldur starfsmanna skal nefnt að Hlíðardalsskóli hefur ágætan bækling sem verið er að endurskoða, einnig er ágætur bæklingur frá gjaldkeraskrifstofunni og þá hefur verið reynt að sjá til þess að starfsmenn eigi kost á að eignast safnaðarhandbókina. 7. Að gefin verði út sálmabók, eigi síðar en fyrir júnílok 1983. Því miður hefur þetta ekki tekist eins og við hefðum helst kosið þrátt fyrir mikla vinnu sem hefur verið lögð í sálmabókina. Þetta verkefni er sjálf- sagt mikið stærra en hægt var með góðu móti að gera sér grein fyrir á síðasta aðalfundi. Bestu þakkir til allra sem hafa 7

x

Bræðrabandið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.