Bræðrabandið - 01.05.1985, Qupperneq 8
unnið mikið og fórnfúst starf að útgáfu
sálmabókarinnar. Allt kapp var lagt á
að hún kæmi út fyrir þennan aðalfund, en
þó það hafi ekki orðið reyndin er
vonandi mjög stutt í að hún komi út.
YTRI VÖXTUR
1 . að gefið verði út kynningarrit
um aðventista í einföldu formi.
Þetta rit er komið út fyrir nokkru
og nefnist "Sjöunda dags aðventistar í
hnotskurn." Það hefur þegar komið að
góðu gagni við ýmis taekifæri. Oft koma
skólanemendur og aðrir til að fá
kynningarrit um aðventista, viðskipta-
vinir í Frækorninu og nemendur í
Biblíubréfaskólanum og fleiri hafa
fengið þetta rit, svo og safnaðarmeðlim-
ir handa vinum og kunningjum.
2. Að knýja á með útgáfu smárita-
flokks um kenningar Biblíunnar.
Erindi og námsstefnur David E.
Lawsons frá því fyrir 5 árum þóttu
álitlegur kostur í þessu skyni.
Guðmundur Ólafsson yfirfór þessi smárit
í því skyni að þau gætu þjónað hlutverki
smáritaflokks. Þegar svo David Lawson
kom aftur var vel til fallið að vanda
til endurútgáfu erinda hans og nota þau
jafnframt sem smáritaflokk, sem og varð
reyndin.
3. Að vinna markvisst að útgáfu
"boðskaparbókar" líkt og "Trygge spor"
eftir Alf Lohne.
Bókaflokkurinn sem byrjaði með 5
smábókum George E. Vandeman's mun á
næsta ári vera orðinn 13 bækur að töiu
um helstu kenningar Biblíunnar fyrir
okkar tíma sem er Aðventboðskapurinn.
Slíkar smábækur eru jafnvel hentugri í
mörgum tilvikum en ein stór boðskapar-
bók. Þessi bókaflokkur mun því vel
fullnægja markmiði þessarar tillögu um
sinn, en rétt mun vera að huga samt að
boðskaparbók sem hefði að geyma í einu
bindi allan Aðventboðskapinn í höfuð-
atriðum.
4. Að leitað verði til deildarinnar
um leyfi til að nota hluta af fyrirhug-
uðum launum útbreiðsluprédikara til að
gefa út slíka bók.
Útgáfa 15 smábókanna hefur verið
styrkt sérstaklega af Norður-Evrópu-
deildinni og erum við þakklát fyrir það.
5. Að hraðað verði sem mest útgáfu
bréfaflokka um heilsusamlegt líferni og
gömlu Biblíubréfaflokkarnir endurnýjaðir
svo að megi nýta þá ásamt almennri
fræðslu um heilsumál til að tengja
einstaklinga úr 5-daga áforminu og aðra
við meginstarf safnaðarins.
í stað gömlu Biblíubréfaflokkanna
hafa þegar tveir nýir komið "Vegurinn
til eilífs lífs" 6 námsbréf og "Námskeið
í Opinberun Oóhannesar" 15 bréf. Vonandi
bætast fleiri flokkar við í náinni
framtíð.
Við höfum beðið lengi eftir heilsu-
bréfaflokki 3ohn Berglunds, en nú mun
handrit þessa bréfaskóla komið.
Auk þessara tillagna sem nú hefur
verið greint frá var gerð sérstök
ályktun um Hlíðardalsskóla. Sú ályktun
hljóðar svo:
"Ályktun um Hlíðardalsskóla:
28. Aðalfundur Sjöunda dags aðvent-
ista á íslandi ályktar eftirfarandi
varðandi Hlíðardalsskóla:
1. Að lýsa stuðningi við þá stefnu í
rekstri hliðargreina Hlíðardalsskóla sem
fram hefur komið í niðurstöðum sérskip-
aðrar nefndar skólanefndar Hlíðardals-
skóla og lesin var og kynnt á aðalfund-
inum.
2. Að lýsa yfir eindregnum stuðn-
ingi við uppbyggingu og áframhaldandi
rekstur Hlíðardalsskóla sem miði að því
að gera hann að þeim aðventskóla sem
honum var ætlað og innifelur það
fastafmörkuð inntökuskilyrði er varða
námsárangur, ástundun og hegðun svo og
hlutfall aðventnemenda og annarra
nemenda, einnig að koma aðbúnaði og
aðstöðu í viðunandi horf sem og starfs-
liðsskipan.
Þessi stefnumörkun sé ráðandi og
fjármögnun miði að því að ná því marki
með skólagjöldum og þeim tekjumöguleikum
sem umhverfi skólans býður upp á, svo og
með stuðningi Norður-Evrópudeildarinnar
og safnaðarmeðlima.
3. Að beina því til allra safnaðar-
meðlima að þeir taki almennan þátt í
fjárframlögum til skólans þannig að mjög
8