Bræðrabandið - 01.05.1985, Side 9
breiður stuðningur allra safnaðarmeðlima
myndist við Hlíðardalsskóla."
1. Rekstrarnefnd hliðargreina
Hlíðardalsskóla hefur unnið gífurlega
mikið og gott starf. Leikmenn hafa
sannarlega verið örlátir á tíma sinn og
fjármuni og gjaldkeri Samtakanna Guðni
Kristjánsson hefur unnið mikið og
tímafrekt verk í gróðrastöðinni.
Rekstarnefndina skipa nú: Brynjar
Halldórsson, 3ón W. Magnússon og
Kristján Friðbergsson, áður var Ármann
Axelsson. Eiga þeir allir þakkir
skildar.
2. .Reynt hefur verið af fremsta
megni að ná sem hagstæðustum hlutföllum
milli aðventnemenda og annarra nemenda.
Skólinn hefur gert sitt ítrasta í þessum
efnum án þess þó að vilja ofbjóða
fjárhagsgetu og starfsþreki. Stefnan
með skólann hefur verið þessi:
1) Að frá því lágmarki í nemenda-
fjölda sem nú er (til þess að ná besta
hugsanlega hlutfalli aðventnemenda og
annarra nemenda) mun skólinn því aðeins
stækka, þ.e. nemendafjöldinn vaxa, að
fjöldi aðventnemenda vaxi, þannig að
æskilegasta hlutfall í nemendahópnum
fáist.
2) Að bæta við framhaldsbekkjar-
deildum eftir því sem aðsókn og starfs-
lið leyfir.
3) Að tryggja skólanum sem hæfustu
og varanlegustu starfsliði.
A) Að koma a) byggingum og allri
starfsaðstöðu b) starfsálagi starfs-
liðsins c) inntökuskilyrðum er varða
námsárangur, ástundun og hegðun í sem
best og viðunanlegast horf.
5) að skólinn þannig þjóni sem best
tilgangi sínum sem aðventskóli.
3. Það er ánægjulegt að sjá góðan
hug stjórnvalda til skólans en á s.l.
tímabili hefur framlag þeirra hækkað tæp
300% sem er að raungildi um 133% eða
ríflega tvöfaldast. Framlag Norður-
Evrópudeildarinnar hefur verið svipað
allt tímabilið, en framlag safnaðar-
meðlima heldur aukist og erum við
þakklát fyrir það.
Það er ekki vafi í mínum huga að
Hlíðardalsskóli á eftir að gegna miklu
hlutverki í framtíðinni ekki síður en
hann hefur gert hingað til.
Framtíð Barnaskólans í Reykjavík er
sennilega eitt mikilvægasta málið sem
þessi aðalfundur gæti látið til sín
taka. Vísa ég þar til greinargerðar sem
fylgir skýrslu barnaskólanna.
ANNAÐ
Ég hef kosið að láta þessa skýrslu
að meginhluta taka mið af samþykktum
síðasta aðalfundar svo að við gætum
betur séð hvort okkur hafi miðað fram á
við hvað þau mál snertir.
PRÉDIKARAR - ÚTBREIÐSLUSTARF
En það var fleira sem okkur lá á
hjarta á síðasta aðalfundi. Það var m.a.
að efla starfsmannahópinn og þá sérstak-
lega að fá prédikara, bæði safnaðar-
presta og útbreiðsluprédikara. í þeim
efnum hefur sannarlega vel úr ræst þar
sem eru Þröstur Steinþórsson, Henrik
3{Jrgensen og Eric Guðmundsson. Þá hefur
söfnuðurinn eignast það sem á ensku
kallast "Multi-Image Equipment" (e.t.v.
mætti til bráðabirgða kalla það fjöl-
myndatæki) en það eru 3 sýningarvélar
fyrir litskyggnur, tengdar stýritölvu og
fleiri tækjum. Þetta er sams konar tæki
og br. David Lawson notaði hér á
samkomum sínum, bara færri vélar.
Einnig hefur Keflavíkursöfnuður
eignsta hljómflutnings- og fjölföldunar-
tæki. Þessi tæki öll eru kærkomin
hjálpartæki við boðun boðskaparins.
Biblíubréfaskólinn hefur vaxið mjög
s.l. ár og er það gleðiefni. Skólinn er
staðsettur í Keflavík og hefur Suður-
nesjasöfnuður unnið fórnfúst starf við
skólann og langar mig sérstaklega að
þakka Unni Steinþórsdóttur fyrir
óeigingjarn starf fyrir Biblíubréfa-
skólann í mörg ár.
HEILBRIGÐIS- 0G BINDINDISSTARF
Nú hillir undir stórt og nýtt átak í
heilbrigðis- og bindindismálum undir
forystu 3óns Hj. 3ónssonar. Fögnum við
því og óskum 3óni alls hins besta og
Guðs blessunar í þessu þýðingarmikla
starfi. Það er trú mín að með þessu
starfi verði mörkuð tímamót í sögu
safnaðarins hér á landi.
ÞRÓUNARAÐSTOÐ
Þróunaraðstoð aðventista hefur vaxið
9