Bræðrabandið - 01.05.1985, Page 10

Bræðrabandið - 01.05.1985, Page 10
—a— mjög á undanförnum árum undir sterkri forystu Odds CJordals, en hann lést á s.l. ári. Hjálparstarf aðventista fékk framlag frá Þróunarsamvinnustofnun íslands árið 1983 til vatnsöflunarverkefnis í Gambíu. Mun upphæðin hafa numið að núvirði nálægt 200.000 krónum. Verið er að vinna að næsta verkefni með þátttöku Þróunar- samvinnustofnunarinnar. RITVINNSLUKERFI Skrifstofan fékk sína fyrstu tölvu, vandaða ritvinnslutölvu og hefur hún reynst mjög vel og er ekki ofsagt að hún hafi valdið byltingu í skrifstofustörf- um. SKÓLADAGHEIMILI Skóladagheimili, rekið af söfnuðinum í Vestamannaeyjum, var stofnsett í ársbyrjun 1983. Ásta Arnmundsdóttir veitir heimilinu forstöðu. Það er fullsetið og hefur verið vel tekið af bæjarbúum. Talsverðar framkvæmdir hafa verið á skólahúsnæðinu, anddyrið stækkað, salerni bætt við, ný stétt lögð o.fl. Skóladagheimilinu hafa borist höfðinglegar gjafir og margir lagt hönd á plóginn við þetta athyglisverða framtak Vestmannaeyjasafnaðarins. Söfnuðurinn í Vestmannaeyjum er eini söfnuðurinn sem er án starfsmanns og er þetta framtak þeirra og allt safnaðar- starf þeim mun stórkostlegra. Erlendur Stefánsson er þar safnaðarformaður og hefur veitt þessum safnaðarmálum öfluga forystu. Á fyrri hluta síðasta tímabils veitti Engilbert Halldórsson söfnuðinum forystu ásamt Erlendi Stefánssyni. Þá var kirkjan klædd áli og var það stórátak. DEILAN MIKLA "Deilan mikla" var gefin öllum prestum þjóðkirkjunnar haustið 1983 £ tilefni af því að 300 ár voru liðin frá fæðingu Marteins Lúthers. Alls voru gefin rúmlega 190 eintök. L0KA0RÐ Þó margt hafi áunnist finnum við samt að róðurinn er þungur. Safnaðar- vöxturinn er afar hægur og jafnvel enginn. Hvað veldur? Skortir á trúmennsku og helgun? Hefur samdráttur í nemendafjölda Hlíðardalsskóla sín áhrif? Hafa færri barnaskólar áhrif? Hafa fleiri flust af landi brott en áður? Er erfiðara en áður að beina augum fólks til andlegra verðmæta? Er heimshyggjan svo yfirgnæfandi að sá tími sé kominn sem frelsarinn talaði um er hann sagði: "Mun Manns-sonurinn finna trúna á jörðunni er hann kemur?" Eða er þörf nýrra aðferða, nýrra leiða í vitnisburði? Þarf nýtt átak í fjölskyldunni og heimilisaltarinu? bænasamkomum safnaðarins? í útbreiðslu- starfi prestanna og annarra starfsmanna? Ég hef trú á aðventfjölskyldunni og safnaðarstarfinu , bænasamkomunum og skólastarfinu, Biblíubréfaskólanum og heilbrigðis- og bindindisstarfinu, bókaútgáfunni og æskulýðssstarfinu og námsskeiðum og námsstefnum fyrir nútímafólk og nýtingu fjölmiðlanna. Guð mun enn vitja lýðs síns og veita framgang. Okkar er að helgast honum í trúmennsku. Mættum við boða boðskap englanna þriggja af trúmennsku og helgun og byrja hjá okkur sjálfum að óttast Guð og gefa honum dýrð. Þökk sé Guði fyrir miskunn og kærleika. Þökk sé söfnuðinum fyrir trúmennsku og helgun. Erling B. Snorrason ■ * * * * * + + "Ein vel skipulögð, vel öguð fjölskylda vitnar meir með kristin- dómnum en allar þær ræður sem hægt er að flytja. . . . Áhrif aðgætins kristilegs heimilis í bernsku og æsku er hin öruggasta vörn gegn spillingu heimsins." - DL 126. "Kristur hefldur skrá yfir hver þau útgjöld sem skapast vegna gesta sem við tökum á móti í hans nafni. Hann sér fyrir öllu sem nauðsynlegt er til slíks starfs. Þeir sem vegna Krists taka á móti bræðrum sínum og gera sitt besta til að gera heimsóknina gagnlega bæði fyrir þá sjálfa og gestina eru skráðir í bækur himinsins sem verðuqir sérstakrar blessunar." -DL 196 10

x

Bræðrabandið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.