Bræðrabandið - 01.05.1985, Blaðsíða 12

Bræðrabandið - 01.05.1985, Blaðsíða 12
jákvæðri afkomu þess sem kallað hefur verið hliðarrekstur Hlíðardalsskóla. Er þar átt við búrekstur og gróðurhús sem stofnað var til, til að styrkja fjár- hagsstöðu skólans. Ég vil að lokum endurtaka þakkir mínar til safnaðarmeðlima og til starfsfólksins sem af hugsjón og fórnarlund heldur þessu þýðingarmikla starfi uppi svo sómi er að. Guðni Kristjánsson ■ INNGANGUR Til að byrja með vildi ég hvetja þig fulltrúi góður, til að öðlast meira innsæi og víðsýni yfir mál skólans með því að lesa skýrslur og ályktun um skólann frá síðasta aðalfundi safnaðar- ins, vorið 1982. Skýrsla bús og gróðurhúsa tilheyrir rekstrarstjórn og er því ekki hluti þessarar skýrslu. Á þessu tímabili hafa orðið ýmsar breytingar á skólanum sérstaklega hvað viðhald og starfsmenn varðar. NEMENDUR Fyrir þremur til fjórum árum var lagt áform um aukningu nemendafjölda en reyndin hefur orðið önnur (tölur miðaðar við byrjun skólaársins): 82-83 83-84 84-83 Piltar: 26 20 20 Stúlkur: 22_________13______9_ Alls 48 33 29 Tilhneigingin er sú að eitthvað fleiri sæki um í 9. bekk, en ekki er mikill munur þar á nema árið 83-84 þegar 11 voru í 8. bekk en 22 í 9. Öll árin eru safnaðarunglingar u.þ.b. 25%. Athugið minnkandi hlutfall stúlkna. Námsárangur nemenda hefur oft verið ræddur. Atriðið er að við fáum í mörgum tilfellum undirmálskrakka, en það er samdóma álit allra nemenda að á Hlíðar- dalsskóla hafi þeir lært meira en nokkurs staðar annars staðar. Er þetta efalaust mest að þakka öguninni sem þeir eru beittir, t.d. með lestrarnæðum, punktakerfi o.þ.h. Því má ekki alltaf einblína á landsmeðaltöl, heldur líka sjá gildi framfaranna. SKÍRNIR hafa verið umtalsverðar. Vorið 1984 voru 8 þáverandi nemendur og 2 fyrrver- andi nemendur skírðir, þar af 4 frá utansafnaðarheimilum. Að auki skírðist einn fyrrverandi nemandi vorið 1982. FRAMHALDSDEILDIR Þetta þriggja ára tímabil hafa engar framhaldsdeildir verið á skólanum. Fyrst var það að við höfðum ekki nemendur, en svo hefur ræst úr því en þá hefur ekki verið til starfsfólk. Staðreyndin er sú að það eru ýmsir nemendur sem hafa áhuga á að vera hér áfram, enda er oft verið að spyrjast fyrir um þetta, bæði af þeim og svo foreldrum þeirra. Spurningin er hvort grundvöllur væri fyrir a.m.k. eina framhaldsdeild sem gæfi punkta til stúdentsprófs. Einnig hefur verið rætt um að hafa inni í þessum ramma námsefni fyrir safnaðar- unglinga sem hefðu áhuga á að koma og verja einu ári til safnaðarlegs náms, t.d. nema safnaðarsögu, ýmis konar kristinfræði o.fl. En allt slíkt er erfitt án starfsfólks. VIÐGERÐIR Miklar lagfæringar hafa farið fram á staðnum, t.d. hefur eldhúsið tekið aigjörum stakkaskiptum. Helmingur piltavistarherbergjanna hafa verið endurnýjuð. Sturturnar hafa verið endurnýjaðar líka. Síðan hafa salerni við leikfimisal verið kláruð. Miklar viðgerðir hafa farið fram á útveggjum aðalbyggingar og piltavistar. En betur má ef duga skal. Vistarverur aðalbygg- 12

x

Bræðrabandið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.