Bræðrabandið - 01.05.1985, Page 13

Bræðrabandið - 01.05.1985, Page 13
ingar þurfa endur nýjunar við og er áformað að gera það í sumar. Svo þyrfti að ljúka við herbergi piltavistarinnar. Einnig er mikil þörf á stórátaki í viðhaldi utanhúss, svo sem sprungu- viðgerðum, glugga- og þakmálun o.fl. ÞARFIR OG VANDAMÁL Fjárhagurinn hefur oft á tíðum verið heldur bágborinn og e.t.v. er algerlega ómögulegt að skólinn geti nokkurn tíma komist á fullkomlega fastan grundvöll í þessu tilliti. En ríkið hefur verið okkur mjög hliðhollt. Þó það sé að skera niður á báða bóga hafa orðið aukningar í framlögum til okkar eins og vafalaust kemur fram í skýrslu gjald- kera. Einnig ber að þakka þeim safnaðar- meðlimum sem hafa trúfastlega stutt skólann með ráðum og dáð, en vissulega hafa fjárframlög safnaðarins ekki verið í samræmi við viljayfirlýsingar á aðalfundum. Og hvað er þá hægt að gera til að styrkja fjárhagsgrundvöll skólans? Nýta hluta bygginganna til einhvers annars sem væntanlega veitti peningum inn í skólann? Eiga gróðurhús og bú ekki að geta verið skólanum meiri fjárhagsleg stoð eins og hugmyndin var upphaflega, eða eigum við að reyna að komast alveg á ríkisjötuna? Breidd nemendahópsins er lítil með tveimur bekkjum. Meiri hluti nemendanna á hausti hverju er nýr og utansafnaðar, sem þýðir að það þarf að byrja að miklu leyti frá grunni í hvert sinn. Ættum við að bjóða upp á 7. bekk? Stefna ákveðið að framhaldsdeild? (og hvernig kemur fyrirhugaður skóli í Reykjavík inn í mynd Hlíðardalsskóla? Verða báðir með 7. bekk, eða jafnvel 7-9. bekk?) Starfsfólk tollir ekki lengi nú orðið og við verðum að vera nægilega opin til að vilja gera okkur grein fyrir ástæðunum. En með meiri hluta nemenda, og stóran (ef ekki meiri) hluta kennara og vistarfólks nýjan ár hvert þá eykst vandi skólarekstursins óhóflega mikið. Er hægt að gera starfsfólkið ánægðara svo það vilji vera áfram? Ættum við að viðurkenna í verki yfirvinnu þeirra sem hana hafa? Er kominn sá tími að við verðum að bjóða kennslu- og vistar- starfsfólki það sama og það fengi annars staðar fyrir svipaða vinnu? (Margir verða að vinna á kvöldin, jafnvel nóttunni, um helgar og í fríum. Ætli starfsmaður að eiga lausa helgi, þá verður hann oft á tíðum að fara af staðnum) . Nú situr þriðji skólastjóri frá síðasta aðalfundi. Örar skiptingar hafa orðið á vistunum og nú horfum við fram á miklar breytingar í sumar. Ekki er ætlunin með þessum orðum að fylla okkur svartsýni, en þessi mál verða að breytast sem fyrst, og það gerist ekki nema við skiljum ástæðurnar fyrir stöðu þeirra. NIÐURLAG í dag eru fjöldi fjölskyldna sem er þakklátur fyrir að hafa sent stúlkuna sína eða piltinn sinn til Hlíðardais- skóla. í söfnuðinum eru margir einstaklingar sem komu með vegna starfs skólans. Við getum því ekki sagt annað en að skólinn hefur gert margt gott. En til að tryggja sem best framhald skólans þá verðum við að taka tillit til spurninganna og vandamálanna hér að framan, ekki aðeins með ópersónulegum, vel orðuðum og hlýlegum góðvi1jayfir- lýsingum, heldur með ákveðnum og hnitmiðuðum áformum sem styrkja fjár- hagsstöðu skólans og hvetja gott starfsfólk til að vera áfram. Guð blessi okkur í þeirri viðleitni. Einar Valgeir Arason. SKÝRSLA REKSTRARNEFNDAR HLÍÐARDALSSKÓLA Rekstrarnefnd var skipuð þrem einstaklingum frá og með aðalfundi 1982. Hlutverk rekstrarnefndar var að athuga hliðarrekstur Hlíðardalsskóla þ.e. búrekstur og gróðurhús - í þeim tilgangi að vera til leiðbeiningar um hvernig mætti auka framleiðni þessara greina og styrkja þannig grundvöll fyrir rekstri Hlíðardalsskóla. Nefndin hefur komið nokkuð reglulega saman og athugað aðstæður. 13

x

Bræðrabandið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.