Bræðrabandið


Bræðrabandið - 01.05.1985, Qupperneq 16

Bræðrabandið - 01.05.1985, Qupperneq 16
þrennu móti: 1) Herða innheimtur. Við höfum fengið ungmennafélögin í lið með okkur í þessu og áformum að senda blaðið í framtíðinni aðeins til þeirra sem borga áskrift. 2) Afla auglýsinga. Slíkt þarf að gera af mikilli varfærni en meðan áskriftafjöldinn er lítill eru litlir möguleikar á auglýsingatekjum. 3) Auka áskriftir, og stefna inn á hinn almenna kristna markað í landinu. Ekkert vandað kristið tímarit kemur út á íslensku, en slíkt blað myndi eiga góða möguleika, því áhugi kristindóms meðal ungs fólks á íslandi hefur aukist gífurlega undanfarið. Verið er að áforma að gefa út hvíldardagsskólalexíur fyrir unglinga í tengslum við Innsýn. Fyrir utan að gefa okkar ungmennum nauðsynlega fræðslu myndi blaðið stækka töluvert við þetta og gefa því betra tækifæri sem kristni- boðsblað hér á íslandi. Þetta eru tvær af ástæðum fyrir breyttu útliti blaðsins núna um áramótin síðustu. Þriðja ástæðan er hönnun blaðsins. HVERT SKAL STEFNA? 1. Nauðsynlegt er að leggja áherslu á að félagsstarf ungmennafélaga sé í jafnvægi milli trúarlífs, skemmtunar og útbreiðslustarfs. Ef þetta þrennt er ekki í jafnvægi þá er líf ungmennafélagsins ekki heilbrigt. En mikill skortur er á því að eldri safnaðarmeðlimir finni sig kallaða og knúða til þess að taka virkan þátt í æskulýðsstarfinu. Sem tillögu má nefna að ungmennafélögin hefðu eitt kvöld í viku til að koma saman til að biðja, læra og leika sér. Og síðan að þau settu sér ákveðið takmark í útbreiðslustarfi. 2. Nauðsynlegt er að æskulýðsstarf nái til allra ungmenna safnaðarins á aldrinum 13-35 ára. Æskulýðsstarf má ekki takmarka við 17-21 árs ungl- inga. Þeir eru aðeins hluti ungmenna safnaðarins. Færi vel að söfnuðirnir tækju virkan þátt í skipulagi slíks starfs t.d. með æskulýðsráði í stað ungmennafélags- stjórnar eða að ungmennafélags- stjórn samanstæði af fulltrúum allra aldurshópa æskunnar ásamt fullorðnum ábyrgðarmanni. 3. Lengi hefur verið dreymt og talað um að söfnuðirnir eignuðust mótsstað eða útivistarstað. Núna er hugmynd um að þróa slíkan stað á landi Hlíðardalsskóla, bak við Litla Meitil. Þar er stórkostlegt útivist- arsvæði á landi sem við þegar eigum. í sumar verður athugað hvort vatn sé á staðnum en það er nauðsynlegt til þess að hægt sé að líta á þennan stað nánar. "Mundu eftir skapara þínum á unglingsárum þínum, áður en vondu dagarnir koma og þau árin nálgast, er þú segir um: "Mér líka þau ekki"." Préd. 12.1 . Með kveðju Þröstur B. Steinþórsson ■ Síðast liðið eitt og hálft ár hefur skátastarfið verið í mínum höndum. Þennan tíma hefur það verið takmark mitt að byggja upp starfið á hinum ýmsu stöðum og einnig að hafa eitthvað sameiginlegt sem sameinaði hópana. 1 ) Samtals eru um 30 Aðventskátar á aldrinum 6-14 ára. Flestir eru þó í Reykjavík og Árnessýslu. Þessir hópar koma saman vikulega eða aðra hverja viku á sínum stöðum við nám og þjálfun og Biblíurannsókn. Hér er um að ræða bæði hagnýta og andlega þjálfun sem hjálpar æskufólki okkar að vaxa og verða sterkir og þroskaðir meðlimir safnaðarins. 2) Þessir hópar hafa að eigin frumkvæði skipulagt dagsferðir og helgarferðir. Sem dæmi get ég nefnt helgarferð sem Aðventskátar í Reykjavík skipulögðu til Hlíðardalsskóla og ferð í langferðabíl til Krísuvíkur sem hópurinn í Árnessöfnuði skipulagði. 3) Hámarkið var svo þegar við komum saman á síðast liðnu sumri á nýuppgötv- uðum skátamótsstað við Meitilinn. Við vorum þar í 4 daga. Þessi mjög fallegi staður er 3 km frá Hlíðardalsskóla og 16

x

Bræðrabandið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.