Bræðrabandið - 01.05.1985, Síða 18
árum hefur um 70.000 blöðum verið dreift
í vel flesta bæi og þorp landsins og
mikinn hluta Stór-Reykjavíkur. Hefur
söfnurum ávallt verið vel tekið og
margir látið örlátlega af hendi rakna,
bæði einstaklingar og fyrirtæki.
Heildarsöfnunin þessi ár var sem hér
segir:
1982 1.098.742
1983 1.714.570
1984 1.791.046
Alls 4.604.358 að núvirði rúml. 7
milljónir.
við opinberar samkomur. Það er mér
minnisstætt hve mikið verk var unnið við
dreifingu boðseðla fyrir Biblíubréfa-
skólann, námskeið Björgvins Snorrasonar
og samkomur David Lawsons, svo og
þrotlaust sjálfboðaliðastarf margra,
sérstaklega við samkomur br. Lawsons. Þá
er ótalið heimsóknarstarf margra
systkina sem er ómetanlegt. Margt
persónulegt starf, upörvun og huggun,
hjálparhönd hér og nokkur orð þar, kann
að hafa haft meiri áhrif til góðs en
nokkurn órar fyrir. Guði sé þökk fyrir
leikmannastarfið.
SMÁRIT
Oft hafa leikmenn óskað eftir að
hafa rit og bæklinga í höndum sem nota
mætti í leikmannastarfi, ýmist í
persónulegum samskiptum við kunningja,
ættingja og vini eða í skipulögðu
boðunarátaki safnaðarins. Á s.l. þrem
árum hefur nokkuð áunnist í þessum
efnum. Tveir nýir biblíubréfaskóla-
námsflokkar, Vegurinn til eilífs lífs og
Námskeið í Opinberun Oóhannesar, ásamt
Tákn Tímanna nr. 3 um Daníelsbókina og
Tákn Tímanna nr. 4 um grundvallartrúar-
atriði Sjöunda dags aðventista. Lítill
þríblöðungur, Sjöunda dags aðventistar í
hnotskurn, gefur stutt yfirlit um
Aðventsöfnuðinn og helstu kenningar
safnaðarins.
Þá eru komin 5 Smárit eftir George
Vandeman sem hafa hlotið mjög góðar
móttökur. Væntanleg eru 5 slík smárit í
viðbót. Þau eru komin á hafnarbakkann
en óvíst hvort þau verði komin í
hendurnar á okkur fyrir aðalfund. Loks
koma svo 5 slík smárit á næsta ári.
Svo í lokin má nefna ræður og
námsstefnur br. David E. Lawsons alls 29
rit sem framsetja aðventboðskapinn á
einstaklega skýran hátt.
Vonandi verða þessi rit til eflingar
leikmannastarfi.
ANNAÐ STARF
Auk þess starfs sem að ofan greinir
leggja leikmenn af mörkum mikið starf á
öllum sviðum safnaðarstarfsins s.s. í
hvíldardagsskóla, æskulýðs- og skáta-
starfi, söng- og tónlistarstarfi, í
stjórnum og nefndum, í félagsstarfi og
Fátt er það í lífi og starfi
Aðventsafnaðarins sem er eins kært og
hvíldardagsskólinn.
Hvíldardagsskólinn hefur fært
safnaðarmeðlimunum ómælda blessun.
Þakka ber fórnfúst og frábært starf
kennaranna og stjórnenda. Þá er það
okkur einnig ánægja að njóta velþýddra
lexía fyrir fullorðna frá hendi Oúlíusar
Guðmundssonar.
Það er gleðilegt að geta skýrt frá
því að um 16 sjálfboðaliðar hafa gefið
sig fram sem þýðendur lexíuflokks fyrir
10-15 ára. Enn eigum við eftir að heyra
frá hvíldardagsskóladeild Norður-Evrópu-
deildarinnar um útgáfustyrk. Því miður
verður þó varla von á lexíunum fyrr en í
haust. Ef úr þessari útgáfu verður mun
það bæta úr brýnni þörf.
Á s.l. hausti kom Helen Craig frá
hvíldardagsskóladeild Aðalsamtakanna í
Washington. Námskeiðið var vel sótt og
gagnlegt.
Hvíldardagsskólanemendur á íslandi
munu vera nálægt 380 og meðalmæting um
300.
18