Bræðrabandið


Bræðrabandið - 01.05.1985, Qupperneq 19

Bræðrabandið - 01.05.1985, Qupperneq 19
í lokin má nefna til fróðleiks að hvíldardagsskólalexíurnar frá og með janúar 1985 og næstu 10 árin munu fjalla um allar bækur Biblíunnar. Ef þessum 40 heftum er haldið til haga gefa þær góðan og dýrmætan fróðleik um allar bækur Biblíunnar. Hegi hvíldardagsskólinn halda áfram að færa yngri sem eldri ríkulega blessun fyrir rannsókn á Orði Guðs. Erling B. Snorrason ■ Skýrsla Biblíubréfaskólans "Sérhver Ritning er innblásin af Guði og nytsöm til fræðslu, til umvönd- unar, til leiðréttingar, til menntunar í réttlæti, til þess að sá, sem tilheyrir Guði, sé albúinn og hæfur gjör til sérhvers góðs verks." (2Tm 3.16). Biblíubréfaskólinn er eitt öflugasta sálnavinnandi tækið sem við höfum. En eins og hvert annað tæki ber það lítinn eða engan árangur ef það er ekki notað rétt. Tilgangur Biblíubréfaskólans er ekki aðeins að auka þekkingu manna á Biblíunni heldur að kynna þeim 3esú Krist og söfnuð hans hér á jörðu. Að menn og konur yrðu svo heilluð af þessum kynnum að þau gætu ekki lifað áfram án samvistar með 3esú og söfnuði hans. Til þess að slíkur árangur náist þarf a.m.k. þrennt: 1) Kynna Biblíu- bréfaskólann. 2) Bjóða góð og vönduð námskeið. 3) Heimsækja nemendur. Við skulum líta aðeins nánar á þessi þrjú atriði. 1. Kynna Biblíubréfaskólann. Þ.e. auglýsa, auglýsa, auglýsa. Það er vitað mál að því meira sem við auglýsum því meiri árangur næst. Þetta vita kaupmenn og nota óspart milljónir í auglýsingar því þeir vita að þeim peningum er vel varið. í auglýsingaher- ferðinni okkar síðast liðið haust kom vel í ljós að í Reykjavík þar sem mest var auglýst og oftast var farið út með miða í hús, þar komu flestir nemendurn- ir. Núna eru yfir 160 nemendur skráðir í skólann í stað 30 fyrir þessa herferð. Hér ættu söfnuðir og einstaklingar að taka virkan þátt. Bæði að fara með auglýsingar í hús aftur og aftur og leggja fram fé til auglýsinga. I framtíðinni mætti nota útvarp og dagblöð meira til að ná til landsbyggðarinnar. 2. Góð og vönduð námskeið. Núna erum við loksins búin að fá tvo nýja námsflokka. Vegurinn til eilífs lífs, sem er stuttur namsflokkur, aðeins 6 bréf sem fjalla um undirstöðu hjálp- ræðisins og Opinberun Oóhannesar, virkilega góður og kjarnmikill nams- flokkur um þessa þýðingarmiklu bók Biblíunnar. Enn þá bíðum við eftir heilsubréfaskólanum, búin að bíða í 3 ár eftir nýjum námsflokki sem 3ohn Berglund hefur verið að semja. Þó virðist sem biðin sé farin að styttast nú. Er þessi námsflokkur sérstaklega nauðsynlegur núna þegar mikil áhersla er lögð á bindindismál. Einnig vantar okkur tilfinnanlega námsflokk um líf og starf 3esú. En slíkan flokk höfum við ekki fundið ennþá. Að síðustu má nefna að við höfum í okkar höndum nýjan námsflokk um fornleifafræði, virkilega skemmtileg- an og fróðlegan námsflokk sem styður við trú okkar á Biblíunni. Væri athugandi að gefa hann út á íslensku. 3. Heimsækja nemendur. Án heimsókna verður Biblíubréfaskól- inn aldrei annað en fræðslutæki. En tilgangur hans er að leiða einstaklinga til 3esú. Þess vegna er það lífsnauð- synlegt að söfnuðirnir skipuleggi heimsóknir í samráði við Biblíubréfa- skólann og í öðru lagi þarf söfnuðurinn að vera opinn og tilbúinn að taka á móti nemendunum þegar þeir heimsækja kirkjur okkar. Síðast liðinn vetur hefur mikil áhersla verið lögð á þessa liði og lofar góðu. í framtíðinni áformum við að byrja með fréttabréf sem yrði sent öllum núverandi og fyrrverandi nemendum Biblíubréfaskólans. Tilgangur þess yrði 19

x

Bræðrabandið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.