Bræðrabandið - 01.05.1985, Blaðsíða 22
Skýrsla
söngmáladeildar
Það markverðasta, sem gerðist í
söngmáladeildinni á starfstímabili nu,
sem nú endar, var orgelvígsla og
sönghátíð Salómons Heiðar - sameinað í
einni athöfn. Þá var vígt kirkjuorgel-
ið, sem bróðir Helgi Heiðar gaf Aðvent-
kirkjunni í Reykjavík í minningu föður
síns, og flutt sönglög Salómons Heiðar.
Salómon var fjölda ára organisti
kirkjunnar.
Upprunalega var áformað, að þetta
færi fram á síðasta aðalfundi, eins og
greinir um í skýrslu þess fundar, en var
frestað og stillt inn á tíma, þegar
Heiðar-fjölskyldan gæti verið hér á
landi samtímis - þau eru öll búsett
vestan hafs.
Þessi vígslu- og sönghátíð átti sér
stað 25. september 1982. Þar söng
samkór aðventsafnaðanna og Karlakór
Reykjavíkur (Salómon var um langt skeið
félagi í Karlakórnum). í einsöng og
tvísöng komu þessir fram: Anna öohansen,
Árni Hólm, Reynir Guðsteinsson, Ólafur
Ólafsson og undirritaður.
Orgelvígslutónverkið lék Guðni Þ.
Guðmundsson organisti Bústaðakirkju.
Hann er sérfróður bæði um rafeindaorgel
og pípuorgel. Auk hans léku á orgelið
Oddný Þorsteinsdóttir Dónína Guðmunds-
dóttir og Helgi Heiðar. Helgi var um
tíma organisti kirkjunnar. Hann lék
einnig einleik á fiðlu.
Undirleik önnuðust Guðni Þ.
Guðmundsson, Sólveig Oónsson og Guðrún
Kristinsdóttir.
Þessi vígslu- og sönghátíð þótti
heppnast vel og var kirkjan, söngloft og
anddyri þéttskipað.
Enn skulu hér fluttar þakkir fyrir
orgelið og öllum þeim er báru sönghátíð-
ina uppi.
Söngmálunum hefur verið haldið uppi
í söfnuðunum. Kirkjukór Reykjavíkur
hefur stöðugt starfað. Auk þess að
þjóna söfnuðinum við guðsþjónustur,
hátíðir og jarðarfarir fór hann í
söngferðir til systrasafnaðanna á
Suðurnesjum og Árnessýslu. Tvisvar for
kórinn til Vestmannaeyja. í fyrra
skiptið var sungið í Aðventkirkju
Vestmannaeyja, á Elliheimilinu, á
sjúkrahúsinu og fluttir opinberir
tónleikar í Félagsheimili Vestmannaeyja.
Við það tækifæri söng Kirkjukór Landa-
kirkju nokkur lög með okkur. Áður hafði
Landakirkjukórinn á ferð í Reykjavík
sungið við hvíldardagsguðsþjónustu í
Aðventkirkjunni í Reykjavxk. Þessari
söngför lauk með því að kór okkar söng
við guðsþjónustu í Landakirkju. Seinni
ferðin til Vestmannaeyja var tengd 60
ára afmæli safnaðar okkar í Eyjum.
í útvarpið hefur kórinn sungið við
útvarpsguðsþjónustu okkar og útvarp frá
sameiginlegum samkomum kristinna
safnaða. í tilefni af Ári Biblíunnar -
við lok þess - efndi kórinn til söngva í
Aðventkirkjunni Reykjavík.
í vetur hefur systir Krystyna Cortes
stjórnað kórnum með mikilli snilli eins
og hennar var von og vísa.
Á starfstímabilinu var stofnaður kór
í söfnuði Suðurnesja. Undir stjórn
systur Oónínu Guðmundsdóttur hefur hann
starfað á svipaðan hátt og Reykjavíkur-
kórinn - þjódað söfnuðinum við kirkju-
legar athafnir, sótt systursöfnuðina
heim með söng sínum og sungið í útvarpið
í útvarpsguðsþjónustu, sem söfnuður
Suðurnesja sá um.
Um tíma starfaði tvöfaldur blandaður
kvartett úr Reykjavíkurkórnum. Fór hann
einnig í söngheimsóknir með söng sinn.
í vetur stofnaði unga fólkið í
söfnuðum okkar ungmennakór undir stjórn
Guðbjargar Þórisdóttur. Þessi kór kom
einnig fram í söfnuðum okkar. Vonandi
heldur þessi kór áfram að starfa til að
efla sönglíf okkar, því þetta eru
framtíðarsöngraddir starfsins.
Það, sem hér hefur verið sett á
blað, sýnir, að mikið og gott söngstarf
hefur átt sér stað innan Samtakanna, og
ég er sem fytr þeirrar sannfæringar, að
enn eigi fegursti og besti aðventsöngur-
inn eftir að'hljóma fyrir söfnuði okkar
og þjóðinni.
SÁLMABÓKIN
Sálmabólcarmálið stendur þannig, að
það þarf að fá mann til að gera endan-
legan prófarkalestur. Miðað við, að
þetta verk befur staðið lengi yfir þarf
að endurmeta sálmaval miðað við að á
22