Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2005, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2005, Blaðsíða 54
54 LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 Helgarblað DV Skussinn fær verðlaun Ekki fær maður betur séð en að nýja frumvarpið um Ríkisútvarpið sé moðsuða, grautur málamiðlana sem kristallast í skammstöfúninni „sf’. Sumir hafa þýtt þetta sem Sjálfstæðis- flokkur/Framsóknarflokkur, en það á víst að standa fyrir „sameignarfélag". Maður þarf ekki lærða lögfræðinga til að segja manni að sameignarfélag með aðeins einn eiganda meikar ekki sens. Vaðið í vasa almennings Þegar lögin eru skoðuð sér maður ekki betur en að meginmarkmiðið sé að stórefla Ríkisútvarpið - að sumu leyti á kosmað annarra fjölmiðia. Ekkert er tekið á skekkjunni sem er í samkeppninni milli ríkisbatterísins og einkafyrirtækjanna. Stofnunin fær belti og axlabönd og allt hitt. Henni er leyft að vaða í vasa almennings í land- inu. Nú em ekki lengur höfð uppi þau látalæti að einungis eigendur við- tækja borgi með tilheyrandi per- sónunjósnum, heldur eiga aliir lands- menn milli 16 og 75 ára að standa straum af fyrirbærinu: Fréttunum, Formúlunni og Óla Palla. Dulbúin ríkisstofnun Rfldsstofriunin fær áfram að valsa um á augiýsingamarkaði eins og hún hefur hingað til gert. Það er ekki tekið mið af norrænu rfldsstöðvunum eða BBC sem ekki sýna auglýsingar. Áfram fær RÚV líka að sækjast eftir kostun á dagskrárliðum; RÚV mun halda áfram að selja heilu þættina í sjónvarpi og útvarpi eins og dæmi em um hjá þessu einkennilega rúdsfýrir- tæki. Egill Helgason skrifar um málefni Ríkisútvarpsins. Skekktar hugsjónir Um nokkurra ára skeið hefúr h'tið heyrst í þeim sem vilja einkavæða Rfldsútvarpið. Fulltrúar þeirra sjón- armiða á Alþingi munu að lfldndum greiða atkvæði með lögunum - þeir láta altént h'tið fyrir sér fara. Svona hefur hin grimma valdabarátta sem geisar í fjölmiðlum og í viðskiptah'f- inu skekkt hugsjónirnar. Þessa dagana er fremur spurt í hvaða Uði menn em en hvaða hugmyndir þeir hafa. Ríkisútvarpið er lén ríkisstjórnar- flokkanna, fýrst og fremst Sjálfstæð- isflokksins. Ailir yfirmenn á RÚV em stimplaðir sjálfstæðismenn - að undanskildum Auðuni Georg, ef hann þorir að mæta í vinnuna. Sjálf- stæðisflokkurinn hefúr jú haft menntamálaráðuneytið síðan 1991. Svona áhrif láta menn ekki sjálf- viljugir, að minnsta kosti ekki á tímum þegar óvinurinn vomar alls staðar yfir; Allir í skotgröfunum Sjálfstæðismenn héldu í viktmni opinberan fund í Valhöil um Rfldsút- varpið. Það er ú'manna tákn að flest- ir sem töluðu þarna á vegum flokks- ins hafa einmitt unnið á Rfldsútvarp- inu. unum - rétt áræða að gægjast þaðan upp. Óttinn við Baug Svona er þetta um fleira. Frelsið hefúr bitið í skottið á sér. Margir stuðningsmenn rfldsstjómcirinnar telja sölu áfengisverslunarinnar óhugsandi meðan Baugur hefur sína yfirburðastöðu á matvörumarkaði - þeir áKta að það jafngildi því að afhenda risanum áfengissöluna. Hið sama gildir um landbúnaðinn. Við- skiptahöftin em talin verja bændur fýrir markaðsráðandi verslimarsam- steypum sem í algjöru markaðsfrelsi fengju úánast sjálfdæmi um hvað þær myndu borga bændum fyrir afúrðir. Þannig er framrás markaðs- hyggjunnar að vissu leyti strand. Ráð- andi öfl þurfa að passa vel upp á hlut- ina - handvelja rétta kaupendur eins og ábyggilega verður gert með Land- símann. Orðagjálfur um þjóðarútvarp Hins vegar er svo stjómarandstað- an með sitt hola orðagjáifur - þjóðar- útvarp, almenningsútvarp. Allt þetta tal sem streymir fram og enginn veit hvað þýðir. Pétur Blöndal hefur rétt fýrir sér þegar hann segir að RÚV sé eign ríkisins, ekki þjóðarinnar. Ungt fóik hefúr engar sérstakar taugar til þessarar stofnunar, skynjar ekki að hún sé merkilegri en aðrir íjölmiðlar. Póstmódernísk fjölmiðla- veröld Við lifum lflca í heimi þar sem fólk er löngu hætt að horfa á sömu sjón- varpsþættina og hlusta á sama efnið í Nýju lögin verðlauna Rikisútvarpið, skussann, sem hefur ítrekað farið fram úr fjárlögum, kann ekki að sníða sér stakk eftir vexti. Sem hefur , linnulaust vanrækt menningarhlutverk sitt. Það hefur burðina og pen- ingana tilað vera alvörUmenningarstofnun. ístaðinn erþað að keppa við einkaaðila um sápur og íþróttaefni. Niðurstaðan virðist ætla að verða óskapnaður: Sameignarfélag sem verður ekkert annað en ríkisstofriun. Rfldsfýrirtæki sem er í ójafnri sam- keppni við einkaaðila, en getur falið sig á bak við skringilegt rekstrarform þegar það er beðið um að standa skil á gjörðum sínum. Stundum er talað um hið besta úr báðum heimum - má kannski segja að hér sé verið að -samþætta hið versta? Mennirnir sem á sínum ú'ma bjuggu úl frelsið, stofnuðu frjálsar útvarpsstöðvar í trássi við lög, voru lögsóttir fyrir vikið, þeir hræðast nú frjálsræðið. Ögmundur Jónasson fer gjörsamlega viilur vegar þegar hann segir að sjálfstæðismenn vilji Ríkis- útvarpið feigt - þetta er bara eitthvað sem vellur upp.úr Ögmundi þegar hann setur á sjálfstýringuna. Nær er að segja að allir séu ofan í skotgröf- GITARINN EHF. www.gitarinn.is STÓRHÖFÐA 27 -SÍMI: 552 2125 gitarinn@gitarinn.is T í TILBOÐ NR. 1 MAPEX TROMMUSETT MEÐ ÖLLU RÉTTVERÐ 79.900 TILBOÐSVERÐ KR. 59.900 $ * * * * * * * * * * * * <í * * * * * * * * * * * * * * * TILBOÐ NR. 2 ÞJÓÐLAGAGÍTAR KR. 14.900 P0KI, ÓL, STILLITÆKI 0G GÍTARNEGLUR TILBOÐ NR. 3 KLASSISKUR GÍTAR KR. 10.900 P0KI, STILLITÆKI 0G GÍTARNEGLUR TILBOÐ NR. 4 RAGMAGNSGÍTARTILBOÐ KR. 22.900 RAFMAGNSG. MAGNARI, P0KI, ÓL, SNÚRA, NEGLUR 0G STILLITÆKI TILBOÐ NR. 5 BASSATILBOÐ KR. 42.900 BASSI, MAGNARI, P0KI, ÓL, SNÚRA, STILLITÆKI, NEGLUR 0G STANDUR * -K -K * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * útvarpinu. Þetta er póstmódemískur veruleiki. Heimurinn hefttr brotnað upp. Það eru ekki lengur haldin erindi um daginn og veginn sem ná eyrum allrar þjóðarinnar. Það er heldur eng- in ástæða til að Óli Palli fái frekar rík- isstyrk til að troða sínum smekk upp á hlustendur en tii dæmis Gulh Helga eða Hallbjöm. Ungt fólk leitar að sínu efni á intemetinu - framvegis getur maður eins haft útvarpsstöð heima í tölvunni hjá sér. Kannski er viss efúrsjá eftir þeim tíma þegar menningin hafði svona miðpunkt. Lengi á tuttugustu öldinni var hann útvarpið og síðar sjónvarp- ið. Helgi Hjörvar las Bör Börson, Savannatríóið iék í sjónvarpssal. En nú er löngu liðin sú ú'ð að fjölskyldan horfi saman á sjónvarp, hver húkir við sinn skjá í sínu homi. Að meðaltaii em þrjú sjónvörp á heimili til að ná flaumnum. Vanrækt menningarhlutverk Nýju lögin verðlauna Rfldsútvarp- ið, skussann, sem hefur ítrekað farið fram úr fjárlögum, kann ekki að sníða sér stakk eftir vexti. Sem hefúr linnu- laust vanrækt menningarhlutverk sitt. Það hefúr burðina og peningana til að vera alvörumenningarstofriun. í staðinn er það að keppa við einka- aðila um sápur og íþróttaefni. Stofn- unin hefur ekki getað beðið eftir því að losna úr samstarfi við Sinfómu- hljómsveitina, eins og hún hefði ekki getað notfært sér þetta sambýli á skapandi hátt. Hún tfmir heldur ekld að kaupa stóran hluta af íslenskum kvikmyndum sem hafa verið fram- leiddar þótt þær bjóðist henni á út- sölupn's eftir gjald- þrot helsta kvik- myndaframleiðanda íslands. / viðtali í vikunni talaði Markús Örn Antonsson um ferska vinda sem þyrftu að leika um Ríkisútvarp- ið. Þá ósk má sjálf- sagt best uppfylla með því að hann segi sjálfur upp. Þannig dregst stofnunin áfram í kúltúrleysi sem getur aldrei verið hlutverk ríkisvaldsins að standa straum af. Sjónvarpið hefur raunar enn ekki kunnað við að taka upp sýn- ingar á raunveruleikaþáttum eins og The Swan og Extreme Makeover, en það slær aldrei slöku við í sápunum. Nýjasta viðbótin em þættir um kyn- lífssveltar amerískar húsmæður. Á meðan er þjóðfélagsumræðan f skötulfld í fjölmiðlinum - einu sinni á dag er skrúfað frá krananum í Kast- ljósi, en eini fréttaskýringaþátturinn er sýndur sex sinnum á ári. Állt er veg- ið á mælikvarða steingeldrar hlut- leysiskröfú sem felur oft ekki annað í sér en þjónkun við stjómvöld. Síðasta sígaretta útvarpsráðs Mótsagnimar í frumvarpinu em fleiri. Hið trausti rúna og bjánalega útvarpsráð er tekið úr sambandi en samt er sett á laggimar nýtt útvarps- ráð sem á líka að vera skipað með póliú'skum hætti. Munurinn er þó sá að hið nýja útvarpsráð á ekki að skipta sér af mannaráðningum. Ráðning fréttastjórans var nánast eins og þegar reykingamaður kveikir í síðustu sígarettunni, þetta má - enn- þá. Samt er afskaplega ólfldegt að þetta verði síðasta tilfelli þar sem póliú'sku mannaráðningavaldi er beitt þama inni - yfirstjórn stofnun- arinnar verður áfram blá í gegn. Vanþakklæti við stjórnmála- menn Fréttamenn á Rfldsútvarpinu kvarta imdan einkennilegum meld- ingum sem þeir hafa verið að fá frá stjómmálamönnum undanfarin misseri. Viðkvæði pólitíkusanna, einkum þó ráðherra, er að þeir hafi nú ailtaf staðið með fréttastofunni og Rfldsútvarpinu, haldið vemdarhendi yfir starfseminni, en þetta sé stuðn- ingur sem hægt sé að draga til baka ef svo ber undir. Undirliggjandi er að fréttamenn hafi með framgöngu sinni, til dæmis í íraksmálinu, sýnt vemdurum sínum einhvers konar vanþakklætí. Líkt og þeir éigi að þakka fýrir sig með því að hlífa þeim. Að hafa pólitíska vernd Þetta lýsir mjög brengluðum hug- myndum um fjölmiðla - og þjóðfé- lagið. Maður getur altént ekki ímynd- að sér Tony Blair tala svona við frétta- menn frá BBC. Bak við þetta liggur hugmyndin um póliú'ska vernd, að fólk sé best komið sem einhvers kon- ar skjólstæðingar stjómmálaflokka. Þá fái það eitthvað fýrir sinn snúð og því beri að sýna hollustu á mótí. Ein fúrðulegasta birtingarmyndin er sú hugmynd að Sjálfstæðisflokkurinn eigi fréttastofu Sjónvarps en frétta- stofa Útvarps sé á einhvem hátt mörkuð Framsóknarflokknum. Um þetta hefur verið talsverð umræða í allan vetur - það er til marks um ann- arlegt viðhorf til stjómmála hér á landi að þetta skuli vera talið nánast eðlilegt. RÚV alls staðar Með lagafrumvarpinu er sett fram markmiðalýsing í átján hðum. Þetta er mjög ahnennt orðað, en í raun mættí segja að það sé ekkert svið mannlrfsins þar sem RÚV getur ekki dúkkað upp. Hér um bil allt rúmast innan þessa rarnma. Aðalatriðið er að það er verið að auka umsvif stofnun- arinnar þegar nær væri að draga sam- an seglin. Nú má hún fara að gefa út ritað mál, geisladiska, myndbönd og margmiðlunarefni; ahs kyns starf- semi í íjarskiptum, fjölrniðlun og margmiðlun er henni heimil, auk þess sem hugmyndin er sú að Rfldsút- varpið sf. getí stofnað fyrirtæki útí í bæ - í samkeppni við einkaaðila. Auglýsingastofa rfldsins er varla óhugsaiidi í þessu sambandi. Allt verður þetta niðurgreitt af rfldnu sem nemur 2,4 mihjörðum á ári. Vitlaus forgangsröðun Eina réttlætingin fýrir rfldsútvarpi í nútímanum er markviss framleiðsla á menningarefrii þar sem reynt er að nýta takmarkað ijármagn til hins ítrasta. Ef menn vilja á annað borð hafa rfldsmenningarveitu, væri hún miklu betur komin í skúffú einhvers staðar - framleiðsla efnisins væri svo hjá skapandi fólki útí í bæ. Rfldsút- varp á ekki að keppa um áhorfstölur, auglýsingar og kostun. Það er heldur engin ástæða til að rfldð veití amer- ískri dægurmenningu, poppi og meiri íþróttum inn í stofur landsmanna - ekki er á það bætandi. Rfldsvaldið á ekki að fá að plokka almenning í nafni hvaða gæluverk- efnis sem er. Þetta er nokkuð einföld spuming um forgangsröðun. Við eigum að gera miklar kröfur í heil- brigðismálum, menntamálum, öldrunarmálum og samgöngumálum - en það er ómögulegt að sjá að rflds- fjölmiðill sé annars staðar en í neðstu sætunum á svona hsta. Hvaðan koma ferskir vindar? Það er einkennhegt að sjá þetta frumvarp koma mitt í hatrömmum dehum um útvarpið. í viðtali i vflcunni talaði Markús Öm Antonsson um ferska vinda sem þyrftu að leika um Rfldsútvarpið. Þá ósk má sjálfsagt best uppfyha með því að hann segi sjálfur upp. Það em mjög einkennilegir stjómunarhættir að reyna að knésetja fréttastofu Útvarps, sjálft flaggskipið - það sem flestir myndu áh'ta að sé einhvers virði hjá stofrmninni. Markús talaði svo íjálglega um að það þyrftí ungan mann að maður furðar sig eiginlega á því að Sveppa skyldi ekki boðið djobbið. Viðtahð var í besta fahi undarlegt - maður fór að velta fýrir sér hvort það væri algengt að rfldsforstjórar lokuðust inni í ffla- beinstumum. Fréttamennimir kom- ust í enn meiri uppreisnarhug eftir þetta Kastljós - nú er stóra spuming- in hvað þeir munu gera? Það væri mikih áhtshnekkur fyrir fréttastofuna ef þetta fjarar út eins og önnur gremjumál á íslandi. Ráðamönnum væri ömgglega dihað að sjá frétta- mennina koðna niður. Mótmæli við vondan kóng Best væri sjálfsagt ef Auðun Georg Ólafsson létí vera að mæta - fýrir því em meira að segja fordæmi. ívar Guðmundsson var skipaður frétta- stjóri Útvarps 1968 og þóttí vera út- sendari Sjálfstæðisflokksins. Eftir mikh mótmæh ákvað hann að koma ekki í vinnuna. Þá var hin merka fréttakona Margrét Indriðadóttir ráð- in og gegndi stöðunni í tvo áratugi. En stjómmálamenn núna em vanir að bíða af sér vandræði. Ég var á fundi í fýrradag þar sem Jóhann Hauksson lfldi sjálftun sér við mann sem mótmæhr vonda kónginum í kastalanum með því að stökkva fram af hallarmúmum. Æth einhver fylgi honum eftír? ^★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.