Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2005, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 19. MARS 2005
Fréttir ÐV
Jóhann R. Benediktsson
°9 samstarfsfólk Ætlar
að láta erlenda kollega vita
afófyrirleitinni smygltilraun
spákonu á sjötugsaldri.
Kynlaust ísland 2010
Sennilega er það rétt sem vitrir
menn og virtir segja, að nútíminn
hafi sprengt öll mörk. Nú til dags
eru oft áhöld um hvort piltur og
stúlka hneigist hvort að öðru. Sú
fagra ást sem Jón Thoroddsen lýsti
fjálglega en af ekki of mikilli fram-
hleypni, gæti í dag haft yfirskriftina
Stúlka og stúlka.
ÞaO hefur komið Svarthöfða í
opna skjöldu hversu frjálsar ástir
nútímans eru orðnar. Svo frjálsar að
þær geta ekki getið af sér náttúru-
legt afsprengi í mörgum tilfellum.
Ekki er ástæða til að dæma ástir
mannanna, en ljóst er að fjölkyn-
Svarthöfði
hneigðin breytir fjölskyldum lands-
ins.
Þær lesbíur sem riðu á vaðið
með gervifrjóvgun í Danmörku eiga
heiður skilinn. Þar fóru glæsilegir
frumkvöðlar til útlanda og sneru
aftur með góðan afrakstur - einget-
ið barn. En herrar landsins ráða lög-
um og lofum sem ekki ná utan um
frjálsar ástir. Lesbískar mæður -
öÚu heldur lesbískir feður - fá ekki
lögbundið feðraorlof. Ástæðan er sú
að þær eru konur en ekki menn. Er
Forseti og frú
íNewYork
Forseti íslands og for-
setafrú, Dorrit Moussaieff,
verða heiðursgestir í árleg-
um kvöldverði The Explor-
ers Club í New York en þar
verður Ólafur Ragnar aðal-
ræðumaður kvöldsins. For-
setinn er fyrsti erlendi
þjóðhöfðinginn sem verður
heiðursgestur við þennan
kvöldverð. Áður hafa tveir
forsetar Bandaríkjanna
gegnt því hlutverki en
kvöldverðurinn fer fram á
Waldorf Astoria-hótelinu
og munu ríflega 1300 gestir
sitja þar til borðs. Gestir
munu njóta þess að snæða
íslenskt lambakjöt sem
verður einn af aðalréttum
kvöldsins.
Hótanir
ollu falskri
játningu
Rúrik Dan Jónsson
var í gær sýknaður í Hér-
aðsdómi Reykjaness af
því að hafa stolið vél úr
Volvo-biffeið, árgerð
1972. Hann hafði áður
játað þjófnaðinn á sig en
í héraðsdómi greindi
hann frá því að játning
hans hafi aðeins verið
gefin af ótta við að þurfa
að dúsa í fangageymsl-
um lögreglunnar í tvo
daga eins og lögreglu-
menn hefðu hótað hon-
um. Vitni gáfu sig fram
og staðfestu framburð
Rúriks um að hann hefði
keypt vélina af óþekkt-
um einstaklingum en
ekki stolið henni og var
hann því sýknaður.
Ráðherrabróðir
áframíVÍS
Ingólfur Ásgrímsson,
bróðir HaUdórs Ásgríms-
sonar forsætisráðherra, var
kosinn áfram í stjórn VÍS á
aðalfundi í fyrradag. Hann
situr fyrir hönd eignarhlut-
ar fjöiskyldufyrirtækisins,
Skinneyjar Þinganess, í
tryggingafélaginu sem er
stýrt af framsóknarráðherr-
anum fyrrverandi, Finni
Ingólfssyni. Þrír nýir menn
frá KB banka og Meiði tóku
sæti í stjóminni á aðal-
fundinum þar sem VÍS
sýndi fram á methagnað og
borgaði hluthöfum 650
mUljónir í arð.
Kókaín 800 grömm afefninu undir . *
hárkollu heyrnarskertu ömmunnar. _
Heyrnarskert amma situr í gæsluvarðhaldi eftir að hafa reynt að smygla 800 grömm-
um af kókaíni i gegnum Leifsstöð. Tollverðir sáu við henni og tæknideild lögreglunn-
ar í Reykjavík þurfti að klippa af henni hárkolluna. Jóhann R. Benediktsson sýslu-
maður á Keflavíkurflugvelli segir þaulskipulagðan fikniefnahring á bakvið smyglið.
jafnrétti kynjanna virkilega ekki
lengra komið á íslandi?
Líkt og Kvennakirkjan hefur bent
á er orðið tímabært að endurskoða
kynjaskiptingu. Kvennakirkjan hef-
ur lagt til afturvirka afkynjun Biblí-
unnar. Þar stendur: Sælir em hjarta-
hreinir, því þeir munu Guð sjá. Með
orðunum er karllægu gildismati
troðið upp á lesandann. í staðinn
leggur Kvennakirkjan til að hin
Heilaga ritning segi: Sæl em hjarta-
hrein, því þau munu Guð sjá.
Jafnréttisnefnd Reykjavíkur hefur
fyrir löngu styrkt gerð nýrrar Biblíu-
þýðingar þar sem þess er gætt að
Guð sé hvorki hann né hún.
Guð hefur látið oss í té tækni sem
býður upp á að jafnrétti kynjanna
verði fuUkomnað. Þess vegna er
ástæða til að ætía að íslendingar og
íslendingur setji sér það mark að ís-
land verði einkynja eða kynlaust
fyrir árið 2010. Og í kjölfarið fylgi
mannkynið allt - ef mannkyn skyldi
kalla. Svarthöfði
Spákona á sjötugsaldri situr í kvennafangelsinu í Kópavogi eftir
að hún reyndi að smygla 800 grömmum af kókaíni til landsins.
Konan, sem á von á barnabarni um þessar mundir, hafði falið
kókaínið undir hárkollu sem var fest við hárið á henni.
„Þegar jafn fagmannlega er að verki
staðið og héma, má leiða að því líkur
að þaulskipulagður glæpahringur
standi á bakvið þetta smygl og að þessi
kona hafi farið í fleiri ferðir. Það er eng-
inn sem gerir þetta svona í fyrsta og
eina sinn,“ segir Jóhann R. Benedikts-
son sýslumaður á KeflavíkurflugvelJi.
Hann er að tala um óvenjulegasta
fíkniefhafund á íslandi, fyrr og síðar.
Fannst í hárinu
Á laugardaginn var stoppuðu toU-
verðir á KeflavíkurflugveUi konu á sjö-
tugsaldri sem var að koma ff á Amster-
dam. ToUverði gmnaði að hún hefði
eitthvað að fela og tóku hana tíl rann-
sóknar. Erfiðlega gekk að tala við
hana, þar sem hún reyndist heymar-
dauf. Úr því rættist þegar konan tók
upp heymartæki. Hún reyndist vera
spákona, fædd í HoUandi en hefur
búið lengi í Bandaríkjunum. ToUverð-
ir leituðu á henni og í farangri hennar
en fundu ekki neitt.
„Það var ekki fyrr en einum toU-
verði hugkvæmdist að leita í hárinu á
konunni að þar reyndist ekki aUt með
feUdu. Grunurinn jókst og konan við-
urkenndi að hún væri með kókaín
undir hárkoUunni. í staðinn fyrir að
ldippa af henni hárkoUuna var fíkni-
efnalögreglan köUuð tíl og flutti hún
konuna til Reykjavíkur. Þar tók tækni-
deUd lögreglunnar við málinu.
Tollverðir sáu við henni
„Þetta var undir hárkoUunni en
hún var fest við hárið en ekki hár-
svörðinn," segir Ásgeir Karlsson hjá
fíkniefnalögreglunni í Reykjavík.
TæknideUdin myndaði þetta og þeg-
ar hárkoUan var tekin af kom í ljós að
kókaínið var í þunnum pakkning-
um,“ segirÁsgeir. Jóhann segir þetta
hafa verið mjög vel gert. „Þetta var
ekki túberað hár hátt upp í loftið.
Það er fjarri lagi að þetta hafi verið
það sem mönnum datt fyrst í hug en
mínir menn stóðu sig vel í að hætta
ekki fyrr en þeir vom búnir að finna
efnið,“ segir sýslumaður.
Átti von á barnabarni
„Þetta er einhver djarfasta og
ófyrirleitnasta smygltUraun sem
hefur verið upplýst og við munum
koma upplýsingum um máiið áfram
tU koUega okkar erlendis," segir Jó-
hann sýslumaður. Hann viU ekkert
fuUyrða um það en allt bendir tU að
konan hafi verið atvinnuburðardýr.
Konan, sem vinnur fyrir sér sem
spákona, á tvö börn og átti von á
barnabarni í vikunni. Samkvæmt
upplýsingum DV lá henni á að kom-
ast aftur til HoUands fyrir miðviku-
daginn þar sem dóttír hennar átti
von á barni. Þetta er með því mesta
sem tekið hefur verið af kókaíni í
Leifsstöð.
„Ég hefþað alveg glimrandi gott, var rétt í þessu að ganga út úr ræktinni eftir góða æf-
ingu,"segir Gunnar Örlygsson alþingismaður sem ekki er lengur sáryfir að ná ekki
kjöri á landsfundi flokksins.„Fann aðeins fyrir því fyrst en er búinn að taka það útognú
er ekki annað en horfa fram á veginn."
„Þetta er mjög óvenjulegt mál,
segir Ásgeir Karlsson. „Þetta hef-
ur aUavega ekki gerst oft
hér á landi.“ Spá-
konan hoUenska
hefur verið úr-
skurðuð í gæslu-
varðhald til i.
apríl. Ásgeir
segir að rann-
sókn málsins
haldi áfram.
kgb@dv.is
Hvernig hefur þú það?