Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2005, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 19. MARS 2005
Helgarblaö DV
Jón Ásgeir Jóhannesson lýsti því yfir fimm ára gamall aö hann ætlaði að verða ríkasti maður í heimi.
Hann byrjaði tólf ára á að selja fólki poppkorn á Eiðistorgi og setti síðan upp leikvélar í Glæsibæ og
Kringlunni. Nú er hann milljarðamæringur sem á heimili í London og Reykjavík. Foreldrar hans segja
hann feiminn og blíðan dreng og sambýliskona hans segir marga misskilja feimnina sem hroka.
Fyrir tuttugu og fimm árum reyndi tólf ára drengur að vinna sér inn pening með því að selja
fólki poppkorn á Eiðistorgi og í Austurveri. Þegar hann var sex ára spurði afí hans hann hvort
hann ætlaði að verða milljónamæringur þegar hann yrði stór. Drengurinn leit undrunaraug-
um á afa sinn og svaraði að hann ætlaði sér að verða milljarðamæringur. Pilturinn óx úr grasi og
ræður nú ásamt fjölskyldu sinni stórum hluta matvælamarkaðsins hér á landi auk þess að eiga
fjölda fyrirtækja í öðrum rekstri. fsland var ekki lengi nógu stórt fyrir hann og hefur hann orðið
umsvifamikill í útrás íslendinga í útlöndum og lagt undir sig vænan hluta tískumarkaðsins í Bret-
landi. Piltur sem um ræðir er sonur Jóhannesar Jónssonar og Ásu Karenar Ásgeirsdóttur og heitir
Jón Ásgeir Jóhannesson.
Jón Ásgeir er fæddur í janúar
1968. Hann kynntist ungur Lindu
Margréti Stefánsdóttur, giftist henni
síðar og eiga þau saman þrjú börn
en eru nú skilin. Nú er Jón Ásgeir í
sambandi með Ingibjörgu Pálma-
dóttur innanhússarkitekt sem er sjö
árum eldri en hann. Þau eiga engin
börn saman en Ingibjörg á þrjú börn
af fyrra hjónabandi. Ingibjörg er eitt
fjögurra barna Pálma Jónssonar í
Hagkaupum og Jónínu Sigríðar
Gísladóttur. Systir Jóns Ásgeirs er
Kristín Jóhannesdóttir héraðsdóms-
lögmaður, framkvæmdastjóri
Gaums, fjárfestingafélags Bónusfjöl-
skyldunnar. Fjármálavitið og kaup-
mennska eru þeim báðum í blóð
borin.
Byrjaði í poppinu
Poppsalan var einungis byrjunin
á ótrúlegum ferli Jóns Ásgeirs í
kaupmennsku. Hann rak lengi þýsk
leiktæki sem voru vinsæl hjá börn-
um í Kringlunni, Glæsibæ og víðar.
Einhverjir muna eftir því að hafa
borgað tíkall fyrir að sitja á baki
plastffls eða í kappakstursbíl. Þessi
rekstur gekk vel hjá Jóni Ásgeiri og
fékk hann umboð þessara tækja á ís-
landi. Systir hans tók seinna við
rekstrinum. Hann fór sem leið lá í
Verslunarskóla íslands en fljótlega
eftir útskrift opnaði hann Bónus
ásamt föður sínum sem þá var at-
vinnulaus. Sökum kennaraverkfafls
á síðasta ári hans í Versló gat hann
einbeitt sér að undirbúningnum og
vann myrkranna á milli við að koma
búðinni á laggirnar.
Bónusfeðgar og Hagkaups-
menn ósammáía
Fljótlega eftir opnun fyrstu Bón-
usverslunarinnar færðu feðgarnir út
kvíarnar og íjölgaði útibúunum ört
en 1992 keypti Hagkaupsfjölskyldan
helmingshlut í verslanakeðjunni.
Fyrirtækin voru rekin samhliða til að
byrja með en þó í samkeppni. Árið
1998 var Baugur stofnaður fyrir til-
stilli Jóns Ásgeirs og tók hann þá við
forstjórastóli fyrirtækisins, aðeins
þrítugur að aldri. Þá sameinuðust
Bónus, Nýkaup, Hagkaup og Hrað-
kaup auk smávöruverslana og bens-
ínstöðva Orku en Aðföng sá um
Poppsalan var ein-
ungis byrjunin á ótrú-
legum ferli Jóns Ás-
geirsí kaupmennsku.
Hann rak lengi þýsk
leiktæki sem voru vin-
sæl hjá börnum í
Kringlunni, Glæsibæ
og víðar. Einhverjir
munaeftir því að hafa
borgað tíkall fyrir að
sitja á baki plastfíls
eða í kappakstursbíl.
innkaup og dreifingu vara fyrirtækj-
anna. Samstarfið gekk upp en þó var
ákveðið missætti milli Bónusfeðga
og Hagkaupsmanna um stefnuna
sem fyrirtækið átti að taka.
Jón Ásgeir stórt nafn erlendis
í dag á Baugur Group allt að 60%
hlutdeild í matvörumarkaði á ís-
landi. Umsvif fyrirtækisins á erlend-
um markaði fara sívaxandi en á
fundi hjá Barclays-banka í október í
fyrra sagði Jón Ásgeir að Baugur
Group ræki um 1000 smásöluversl-
anir í Bretlandi 'og fer þeim sffellt
fjölgandi. Hann er núna númer fjög-
ur á lista yfir áhrifamestu menn í
breskum tískuheimi og færði sig upp
um fjörutíu og sjö sæti milli ára.
Fréttir af fjárfestingum feðganna í
Baugi hafa orðið daglegt brauð á
öldum ljósvakans gegnum árin og
eru flestir hættir að kippa sér upp
við það að heyra að fyrirtækið hafi
verið að gera milljarðasamninga.
Metnaðarfullur húmoristi
Þeir sem þekkja vel til Jóns
Ásgeirs segja hann vera