Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2005, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2005, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 Fréttir DV Vignir SimJpíússdii Kostir & Gallar Vignir þykir vera með eindæmum skemmtilegur og fínn félagi. Kunnugir segja hann frábæran lagahöfund og afbragðs gítar- leikara. Þeirsem unnið hafa með kappanum segja hann auðveld- an i samstarfi. Vignir þykir vera mjög þrjósk- ur og þver náungi. Vignir er með miklar og siðar krullur sem sumir segja að megi fara en aðrir telja það vott um karl- mennsku og finnst þær flottar. „ Vignir er náttúrlega hress og skemtilegur strákur. Hann ergriðarlega metn- aðargjarn, vandvirkur og alveg frábær félagi. Svo er hann náttúrlega frábær tónlistar- maður sem auðvelt erað vinna með, það verður að koma fram. Gallarnir hans eru helst þeir að hann getur verið mjög þrjóskur og stlfurásínu." Sigurður Samúelsson bassaleikari írafárs. „Vignir er náttúrlega voða- lega finn gítarleikari og lagahöfundur. Svoerhann með fínar og síðar krullur sem er klárlega kostur. Góður gítarleikari verður aðhafa finar krullur, það er skilyrði. Vignir er alveg óheyrilega þrjóskur og ég myndi bara segja þver. Hanner lika góður pabbi sem er ekkert merki- legt. Hann er mjög upptekinn af gítarnum slnum og i hverju einasta lagi eru langir gitarkaflar þar sem trommurnar þagna oghann er baraeinn." Andrí Cuðmundsson hljómborðsleikarí Ira- fárs. 1 „Fyrir það fyrsta þá er hann afskaplega Ijúfur strákur. Það er ákaflega gott að vinna með honum. Hanner hugulsamur, hlýr og góður iþvi sem hannerað gera. Hann hefurþann hæfíleika að geta sagt manni að eitthvað sé glatað án þess að maðurmissi sjálfs- traustið. Hann erbesti lagasmiður þjóðarinhar og frábær gltarleikari. Það eina sem ég hefút á hann að setja erhárið á honum sem erorðið alltofsitt, þáð er kominn timi á klippingu." Jón Jósep Snæbjörnsson söngvarí. Vignir Snær Vigfússon er fæddur áriö 1979 og veröurþví tuttugu og sex ára íjúlí. Kona hans heitir Þorbjörg Sæmundsdóttir og eiga þau eitt barn. Hann er lagahöfundur og gltarleikari hljómsveitarinnar Irafár. Hann samdi framlag Islands í Eurovison ásamt Þorvaldi Bjarna Þor- valdssyni sem frumfíutt veröur afSelmu Björns- dóttur I þætti Gísla Marteins I kvöld. Idol-þjófurinn Gísli Hvanndal Jakobsson var í vikunni dæmdur fyrir að stela frá Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar. Með dómnum rauf Gísli skilorð sem hann fékk árið 2003 þegar hann braust inn í sumarbústað og skemmdi hann með partístandi og drykkjulátum. Gisli segir þó bót í máli að hann þurfi ekki að sitja af sér dóm- inn. Hann þarf þvi ekki að eyða næsta mánuði í köldum fangaklefa. Idol-stjarnan Gísli Hvanndal Jakobsson hefur verið dæmdur fyrir þjófnað úr Fjdrðungssjúkrahúsi Akureyrar. Með dómnum rauf Gísli skilorð sem hann fékk þegar hann var dæmdur árið 2003 fyrir ölvunarakstur og innbrot í sumarbústað sem hann svo skemmdi með veisluhöldum. Samkvæmt dómsorði á Gísli að afplána einn mánuð í fangelsi. Ef honum tekst að halda skilorð næstu tvö árin verður refsingin felld niður. Drengurinn sem söng um álfa í 32 manna úrslitum Idol- keppninnar sleppur þvf við and- vökunætur í köldum fangaklefa ef honum tekst að halda sér á beinu brautinni. Engu að síður er Gísli dæmdur fyrir brot sín enda játaði hann þau greiðlega fyrir dómi. Dæmdur Það var lögreglustjórinn á Akur- eyri sem höfðaði málið á hendur Gísla Hvanndal. Hann var ákærður fyrir að brjótast inn í kjallara Fjórð- ungssjúkrahússins á Akureyri 28. maí 2004 og stela þaðan tveimur stórum rörtöngum, hamri, sög, skrúfum, kítti, borvél af Cress- gerð, nokkrum borum, heyrnar- hlífum og brettaskífu af gerðinni Hitachi. Taldi dómurinn sekt Gísla sannaða og var hann því dæmdur fyrir þjófnað. Sagðist hafa sofnað Sjálfur lýsti Gísli atburðarásinni á eftirfarandi hátt í ítarlegu viðtali við Tímarit Morgunblaðsins á dög- unum: „Ég var 18 ára gamall, hafði verið á djamminu á Akureyri og lenti á rúntinum með tveimur öðrum mönnum. Ég var undir áhrifum áfengis og sofnaði í bíln- um. Svo var ég vakinn og vissi ekk- ert hvar við vorum. Annar mann- anna bað mig að hjálpa sér og fór með mig inn um dyr sem stóðu opnar, rétti mér sög og bað mig að bera hana út í bfl. Áður en ég vissi af var löggan komin." Fortíðin í sama viðtali gagnrýndi hann DV harkalega fyrir að fjalla um sitt mál. Sagðist ékki hafa verið dæmd- ur fyrir þjófnað og sagði lida sem enga frétt gerða að stórfrétt. Það sem Gísh minntist hins vegar ekki á var að tæpu ári áður en hann stal vinnutækjum af Fjórðungssjúkra- húsinu var hann ákærður fyrir að hafa ölvaður truflað stúlku sem hann sat í bfl með þann 18. mars 2003 með þeim afleiðingum að hún missti vald á bflnum og fór út af veginum. Gísli var einnig ákærður fyrir að hafa brotist inn í. sumarbústað Verkstjórafélagsins, stofnað til samkvæmis og stuðlað að miklum skemmdum á bústaðnum. Ölvunarakstur Vegna ungs aldurs Gísla var refsingu vegna sumarbústaða- rmálsins frestað. Hann var einnig sýknaður af ákærunni um að hafa truflað stúlkuna við ákstur eftir að hún breytti framburði sínum frá lögregluskýrslum og fyrir dómi. „...það getur verið að ég.hafi rekist „Ég á ekki heima í umhverfi glæpa og dómsmála. Það er ekkiég." í höndina á Láru, en það olli ekki þessu slysi, það olli slysinu að hún reiddist og bremsaði niður,“ sagði Gísli fyrir dómnum á sínum tíma. Ekki glæpamaður „Ég vil ekki tjá mig um þetta mál," sagði Gísli Hvanndal þegar DV hafði samband við hann í gær. Þó sagði hann bót í máli að hann þurfi ekki að sitja af sér dóminn. Kannski orð Gísla í umræddu Morgunblaðsviðtali segi allt sem segja þarf. „Maður þarf að vanda sig í lífinu og velja sér það um- hverfi sem manni líður besti í,“ sagði Idol-söngvarinn sem heillaði þjóðina og bætti við: „Ég á ekki heima í urnhverfi glæpa og dóms- mála. Það er ekki ég.“ simon@dv.is Harður árekst- uráSelfossi Harður árekstur varð innanbæjar á Selfossi um miðjan dag í fyrradag. Lög- reglan á Selfossi segir að tveir bflar, stór jeppi og sendibifreið, hafi keyrt sam- an á Gagnheiði. Bílstjóri sendibifreiðarinnar var sendur í skoðun á Sjúkra- húsi Suðurlands. Bílamir skemmdust báðir töluvert. Ekki var um ógætilegan akstur að ræða, að sögn lög- reglu, heldur munu bfl- stjóramir ekki hafa séð hvom annan og því hafi áreksturinn orðið eins harð- ur og raun ber vitni. Slökkviliðsstjóri svarar ásökunum um kynferðislega misnotkun Alltaf haldið fram sakleysi mínu „Þetta hafa verið þrjú hrikaleg ár, að hafa þetta hangandi svona yfir sér,“ segir Egill Sigurðsson slökkvi- Uðsstjóri á Tálknafirði. Egfll var kærður fýrir að hafa kynferðislega misnotað bam önnu Gísladóttur, fýrrverandi sambýliskonu sumar. Eftir tveggja ára rannsókn komst ríkissaksóknari að því að ekki væri ástæða til að ákæra Egil fyrir hin meintu brot. í gær ræddi DV við önnu sem gagnrýndi rannsóknina og sagðist viss um sekt mannsins. „Ég hélt að þegar rannsókninni lyki fengi maður loksins frið til að lifa sínu lífi,“ segir EgiU. „Það liggur við að maður hafi verið tekinn af lífi fyrir þessar ásakanir. Ég hef aUtaf haldið fram sakle.ysi mínu, enda em þessar ásakanir kjaftæði frá upphafi til enda. Rfldssaksóknari komst svo að því að ég hefði ekkert gert en Anna er greinilega ekki tUbúin að sætta sig við þá niðurstöðu." EgiU býr einn í Tálknafirði og starfar í Vélsmiðju. Hann er einnig slökkviliðsstjóri í hlutastarfi og segir þetta mál hafa umturnað lífi sínu. Tálknafjörður sé Utfll staður og aUur bærinn hafi vitað af þessu. „Bæjar- búar hafa samt stutt við bakið á mér og reynt að hjálpa mér í gegnum þetta. Það vita aUir sem þekkja mig að ég myndi aldrei gera þessa hluti. Ég skfl hreinlega ekki hvað vakir fyrir þessari konu." simon@dv.is Anna Gfsladóttir Gagnrýndi rann- sóknina og segist viss um sekt Egils.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.