Freyr - 01.01.1949, Síða 11
FREYR
5
MET-SKEPNA
Við tilraunastofnunina dönsku, ,.Land-
ökonomisk Forsögslaboratorium," hafa ver-
ið gerðar tilraunir með met-kýr á undan-
förnum árum. Á meðal þeirra má nefna
Þá, sem mestar afurðir hefir gefið á einu
ári, en það var kýr nr. 187 á Stensbygárd,
hjá Reimann góðseiganda.
Mjaltaskeiðið var 365 dagar og á því
tímabili gaf kýrin 11.682 kg mjólk með
4,63% fitu eða 541,88 kg smjörfitu.
Kýrin vegur 737 kg. Dagsnyt hennar var
hæst 49 kg á dag, en það var 122 dög-
um eftir burð, og þá var dagsgjöfin: 28 kg
sykurrófur, 3 kg hey, 12 kg vothey og 17
kg kraftfóður. Málnyta var vegin alla daga,
svo og fóður, en fitumagn mjólkurinnar og
gildi fóðursins var rannsakað af efnarann-
sóknastofu tilraunastofnunarinnar og all-
ar vigtir framkvæmdar af aðstoðarmanni
stofnunarinnar, sem dvaldi á staðnum.
Rauða danska kýrin er nú, eftir áratuga
ræktun, ágætis afurðaskepna, sem gefur, á
öllum stöðum, þar sem rækt er við hana
lögð, milli 4—5% fitu. Kýr þær, sem kom-
ast í ættbók, vega um 650 kg að meðaltali,
en hjá bændum almennt vega þær 525—
550 kg.
Kúakyn þetta hefir verið flutt til ann-
arra landa, svo sem U. S. A., Rússlands,
Brasilíu, Ecuador, Ítalíu, Grikklands, Pól-
lands, Þýzkalands, Estlands, Letlands og
Litauen.
L. Hansen Larsen.
„Rauðar danskar“
kýr. A sýningum er
þeim raðað þannig,
til þess að geta gert
samanburð á líkams-
byggingu, júgurstœrð
og lögun, jótstöðu og
jleiru.
sumarfóðrun kúnna almennt, að miklum
mun frá því sem nú er, og minnka til muna
innkaup á erlendum fóðurbæti þann tíma
sem það er gefið.
Hver sá, sem framleiðir mjólk, þarf að
sjá fyrir ódýrri fóðrun kúnna á haustin,
en það verður hægt með vel framkvæmdri
haf rabelgj urtarækt.
Sámsstöðum, 8. nóv. 1948.
Klemenz Kr. Kristjánsson.