Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.01.1949, Qupperneq 16

Freyr - 01.01.1949, Qupperneq 16
10 FREYR hafa hvert um sig 6 kýr. sem mjólkuðu á ári (1938/39) 3000 kg. hver, og höfðu þær fengið 7,6 vættir úrgangskorns og 3,2 vættir kraftfóðurs, — sem sagt eggjahvítu ríkar fóðurtegundir. Þótt því sé sleppt, að 5-8 ha býli eru ekki alltaf fær um að fóðra fjórar drátt- arhæfar kýr, og yrði því við daglanga dráttarvinnu að fá hjá grannanum drátt- arkýr til skipta, virðist mér 7,6 vætta gjöf af úrgangskorni á hverja kú of há. Sé gerður fóðursamanburður, verður sam- kvæmt orðum Taube að hafa minnst fjórar dráttarkýr á býli, það þýðir sam- kvæmt sömu upplýsingum 30,4 vættir úr- gangskorns á ári. Hefði maður á slíku býli tvo röska smáhesta, þurfa þeir báðir ekki nema 22 vættir úrgangskoms og hafra á ári, þótt vel sé gefið. Hagnaðurinn væri sparnaður á 8,4 vættum úrgangs- korns og möguleikinn til að annast alla flutninga til og frá járnbrautarlínu með heimafengnu, dráttarafli og eins til að hafa afgangs dráttarafl til hjálpar grönn um, eða þá til flutninga fyrir gjald. Ekki yrði maður þá upp á grannana kominn með dráttarafl, og heimafenginn áburður mundi aukast að mun. Nythæð kúnna, sem þá væru leystar undan allri dráttar- vinnu, mundi áreiðanlega vaxa upp úr 3000 kg með 3.2 vætta kraftfóðurgjöf (eggjahvíturíks fóðurs), þar eð spörun úr- gangskorns hefir ekki veruleg áhrif á nyt- hæðina. Þar að auki verður að vísu að sjá dráttarhestunum fyrir nægilegu græn- gresisfóðri og heyi. Útkoman yrði enn betri, ef aðeins einn smáhestur væri hafður á hverju býli; kraftfóðurþörf hans má áætla 11 vættir á ári. Með smáhesti nágrannans er eykið algerlega fært um að fullnægja allri drátt arþörf tveggja nýbýla, sem eru allt að því 5 ha stór, og jafnvel 5-8 ha stór, ef fengin væri nokkur aðstoð dráttarvéla samvinnufélaga. Aðdrætti og flutninga alla gætu þessi býli annast hj álparlaust. Hér er ekki meiningin að gera lítið úr athugunum Taube. Sjálfur veit ég af eig- in reynslu með smáhesta, að reikningar og svona samanburður standast ekki ætíð dóm reynslunnar, af því að eitt hentar ekki öllum. Skýrsla Taube styðst við reynslu stríðsáranna, er slíkar kraftfóður- gjafir voru mögulegar. Við þau skilyrði, sem nú eru fyrir hendi, mundu þessir bændur geta komizt af með minni kraft- fóðurgjafir, ef þeir — en það gera þeir því miður ekki lengur margir hverjir — hefðu notað dráttarkýr áfram í búskapn- um í stað hesta. Ég vil einungis vara við því, að mælt sé svo einhliða með dráttar- kúnum, að gildi smáhestsins sé vanmetið. í grein um dverghestarækt (pony), sem birtist í tímaritinu „Þýzk kvikfjárrækt", skrifaði ég 1937 þetta: „Reyna verður með sérstökum prófum hæfileika dverghestanna, og flokka verður þá eftir þeim, og það verður að safna reynslu á því, hvar þýzkræktaðir dverg- hestar verða notaðir á hentugastan hátt. Taka verður nákvæmlega tillit til bú- stærðanna, er ákveðið skal hæfilegt hesta hald (hér má ekki gleyma því, að dráttar- kýr hafa mikla þýðingu í þessu sam- bandi), og eins skiptir hér miklu máli, að reiknað sé út hlutfallið milli hlutdeild- ar hafraekrunnar í smábúskapnum og fóðurþurftar og afkasta dverghestanna, svo og hitt, að þeim sé haganlega raðað niður eftir stærð búanna". Og ennfremur: „Yfirleitt virðist bygging hrossakynþátt- anna, sem í átthögum sínum eru aldir upp við hagabeit að mestu, auðvelda mjög

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.