Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1949, Síða 18

Freyr - 01.01.1949, Síða 18
12 PREYR að hér sé sennilega einkum að ræða um flutning milli flokkanna: stórhestar-smá- hestar vegna nákvæmari mælinga og flokk unar hestastofnanna, sem fyrir hendi eru, en það er bein afleiðing aukinnar þekking- ar. Að öðrum kosti liggur nærri að álykta, að hrossadauða hafi gætt miklu minna meðal smáhestanna, þar eð þeir hafa þol- að miklu betur það misræmi milli hirðing- ar, fóðurs og vinnuafkasta, sem nú ríkir. Möguleikar á að dæma um þetta gefast ekki fyrr en með næstu hagskýrslum. Notkun smáhesta 1 iðnaðinum ætti að fara vaxandi, þar sem hægt væri að skipta á þeim og hárri hundraðstölu stórhesta, því að dráttarafl hinna síðar nefndu nýt- ist alls ekki til fulls. Vegna viðbragðs- snerpu sinnar, endingargóðra hófa og nægju sinnar, hvað snertir fóður og hirð- ingu, er smáhesturinn mjög hentugur borgarhestur. Aukin notkun hans í bæj- unum mundi leiða af sér mikinn sparnað á fóðri. Þegar ég held þvi fram, að hægt sé að nota smáhestinn 1 smábúskapnum við ríkjandi rekstrarskilyrði, er mér ríkt í huga, að minnka megi akurlendi til rækt- unar fóðurjurta með því að stórhestar í meðal- og jafnvel stórbúrekstri á rýrum jarðvegi víki að miklu leyti fyrir smáhest- um. Ekki má gleyma þvi, að þýzku stór- hestahestakynin okkar er árangur langrar ræktar og að afköst þeirra verður að miða við fóðurþörf þeirra. Hins vegar eru smá- hestarnir dæmi um upprunaleg, þurfta- lítil sveitahrossakyn, ef ekki sumstaðar um sjálfan villihestinn. Við þekkjum að- eins fá hreinræktuð kyn þeirra á meðal og erum vanir því að meta meðalgerð smá- hestanna sem harðgerðan, þrautseigan frumhest, vanan frumstæðri hirðingu og frumstæðum skilyrðum. Tilraunir þær og rannsóknir, sem hér hefir verið drepið á, gætu leitt til óvæntra niðurstaðna og þýðingarríkra fyrir hag- nýtan búrekstur, niðurstaðna um víxlá- hrif hirðingar, fóðurneyzlu og vinnuaf- kasta. IV. Sambandið milli umheims, afkasta og erfða er I miklu ríkara mæli orsakasam- band hjá þorra allra smáhesta en hjá stórhestunum, sem eru ræktaðir með til- liti til fegurðar og afkasta. Val eftir af- köstum er upprunalegra meðal smáhest- anna, og við finnum meðal pólsku sveita- hestanna (konik) og dverghestanna í Karpatafjöllunum enn þann dag í dag hestagerðir, sem minna í ytra útliti á hinn útdauða Tarpan-villihest. Mótstöðu- kraftur gegn áhrifum veðurs, ganghraði og þol og nægjusemi skýrast þannig sem erfðaeiginleikar. Það er því síður um það að ræða að rækta þýzkan smáhest en hitt að velja úr hópi þeirra smáhesta, sem til eru í Þýzkalandi, þá hestgerð, sem hentar skil- yrðum okkar bezt. í tímaritinu „Kynbótaræktarfræði" skrifar Volkmann 1944 um hrossaræktar- málið: „Það, að ræktinni hefir verið hagað eft- ir hagkvæmum sjónarmiðum, notkunar- markmiði og vali samkvæmt afköstum, hefir gert aðalatriðið í kvikfj árræktinni að velja „hentugustu“ kvikfjárgerðina, spurningin um hreinræktað kyn er orðið aukaatriði. Miklu máli skipta kynbætur þeirrar gerðar, sem menn álíta hentugasta. Hvort þær kynbætur nást fyrst og bezt eftir leið- um kynbundinnar ræktar og úrvals eða betur eða skjótar með víxlfrjóvgun, skal látið ósagt, enn sem komið er.“

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.