Freyr

Volume

Freyr - 01.01.1949, Page 23

Freyr - 01.01.1949, Page 23
FREYR 17 en að nota gaffal til þess að kasta vot- heyinu úr turni niður í fóðurvagn. Annað getur orðið uppi á teningi ef stór kúabú rísa hér, sem telja 100— 200 kýr á fóðrum og þær að mestu fóðraðar með votheyi. Að svo komnu máli tel ég réttast, að enginn aðili hlutist til um almennan innflutning þessa útbúnaðar fyrr en hann hefir verið þrautprófaður hér á landi og til þess prófs þarf ekki nema ein tæki, í hæsta lagi tvenn. Því birtast hér myndir af útbúnaði þess- um, að þær gefa góða hugmynd um, að hann er ekki svo einfaldur, að ekki geti bilað. Og svo eru það ýmsir, sem um hann Fóðrið jellur beint í fóðurvagninn, en það er alveg eins hægt að moka því með kvísl svo að það falli niður i gegnum stokkin í vagninn. spyrja og eru þá myndirnar eins góð, eða betri, lýsing á honum en mörg orð. Bændur! Það er rétt að þið leitist við að tryggja ykkur gegn vályndi veðráttunnar og verkið miklu meira vothey, en þið hafið gert til þessa. Og það er rétt að byggja turna, eða hlöður af þeirri gerð, sem hverj- um bónda hentar, miðað við búpenings- fjölda. Þið getið verkað og notað miklu meira vothey en venja hefir verið, þið þurfið að vanda votheysgerðina, en þið skuluð hinkra við um stund — jafnvel nokkur ár — og sjá hverju fram vindur, áður en þið kaupið tæmingatæki í vot- heyshlöðurnar ykkar. Grænfóðurrækt og grasrækt ber ykkur að stunda af kappi og með kostgæfni, og það sem í votheyshlöðu eða turn fer, get- ur verið ástæða til að saxa; til þess þarf vél, að minnsta kosti þegar um grænfóð- ur er að ræða, en þið eruð allir menn til þess að moka votheyinu í vagninn að vetrinum með handverkfæri, góðum gaffli eða heykvísl. Og auðvitað gerið þið það, að minnsta kosti þangað til þið eruð svo efnum búnir, að engu máli skiptir hvort þið eigið 10 þúsund króna vél mest til gam- ans eða þá til að sýnast. En hvenær verður það? G. A. I. Virtanen, t'innski prófessorinn og Nóbelsverðlaunahafinn. var upphafsmaður að þeirri aðferð votheysverkunar, sem við hann er kennd. I Finnlandi er varla notuð önnur aðferð en hans og má þvf ráða af sýrunotkuninni hve mikið vothey er verkað árlega. Síðastliðið ár var not- uð sýra, er svaraði til þess að 70—80 milljónir fóður- eininga hafi verið verkaðar sem vothey, en það var um ð0% meira en árið áður og um leið metár, að því er votheysgerð snerti.

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.