Freyr - 01.01.1949, Síða 26
20
FREYít
Mjaltavagn'Lnn.
Um undanfarna mánuði hafa Alfa-Laval
verksmiðjurnar sænsku unnið að því að
búa til mjaltavélar, með tilheyrandi vagni
og tank, sem gerðu fastar lagnir óþarfar.
Um miðjan september var undirbúningi
lokið og fyrsta kerfið af þessu tagi var tek-
ið í notkun á stórbýli nokkru, Stora Hyl-
linge, á Skáni, nú I haust.
Á litlum flutningavagni er komið fyrir
skáp, í honum er mótor og dæla. Héðan
liggja slöngur á hreyfanlegum gálgum til
Verksmiðjurnar hugsa sér þann
möguleika að mjólkinni verði dælt
yfir í venjulega mjólkurbrúsa eins
og hér er sýnt, en mynd þessi er aj
„modeli“ sem þœr haja látið gera.
spenakoppanna og þegar dælan er sett í
gang, sogast mjólkin beina leið í tankinn
á vagninum, en tanknum er síðan ekið
beina leið til mjólkurbúsins kvöld og
morgna, án þess að kæling fari fram. Á
þennan hátt fæst þvínær gerillaus mjólk
þegar þessum einföldu mjaltatækjum er
haldið vel hreinum.
Venja er að láta kýrnar liggja úti á
sumrum, og er þá einkar hent að aka
mjaltavagninum út í beitilandið og mjalta
kýrnar þar. í stað rafmótorsins, sem not-
aður er í fjósum, sem aflgjafi, verður þá
að nota benzínmótor.
Talið er, að mjaltavagninn sé framför
frá hinu eldra fyrirkomulagi, geri mjalt-