Freyr - 01.01.1949, Blaðsíða 31
FREYR
25
HÚS-
MÆÐRA-
ÞÁTTUR
END URBÆTUR
I ELDHÚSINU
Á flestum sviðum er nú ritað og rætl um skipulagn-
ing og endurbætur starfshátta og notkun véla í miklum
mæli.
Á sviðum iðnaðarins hefir skipulagning verið fram-
kvæmd fyrir löngu og þegar vélar og verkfæri verða
úrelt þykir sjálfsagt að fá í staðinn það, sem fullkomn-
ara er, til þess að auka afköstin og létta stritið. Á sviði
landbúnaðarins þykir ýmsum liafa orðið nokkur dráttur
á, að tækni sé fengin til aðstoðar og telja að skipu-
lagning starfshátta sé þar lakari en innan annarra fram-
leiðslugreina.
Þessi staðhæfing stenzt ekki lengur. Á sviði landbún-
aðarins eru svo stórstígar framfarir í hagnýtingu véla
Og verkfæra og um leið skipulagningu vegna fram-
kvæmda. með tækniútbúnaði af ýmsu tagi, að ýmsum
þykir nóg um, einkum hinum eldri, sem naumast eða
ekki geta áttað sig á því, að það sem þeir hafa notað
og nýtt sé nú úrelt og einskis virði. En slíkt er oft ís-
kaldur raunveruleiki.
A sviði húsmæðranna hefir það dregizt lengur en
góðu hófi gegndi, að kapp væri lagt á að breyta starfs-
skilyrðum og sums staðar er þetta naumast eða ekki
enn gert, að minnsta kosti ekki skipulagsbundið. Þar
er því ýmissa hluta að gæta, sem til bóta geta miðað.
Ymsir a-Lla, að með útvegun nýtizku véla og tækni sc
öllu hjálpað.
Það er rétt, að þær húsmæður, sem eignast ísskáp.
þvottavél, hrærivél og aðrar vélar, er létta heimilisstörf-
in, eru betur settar en áður, en það er nú svo, að meg-
inþorri húsmæðranna fer þeirra á mis og svo mun verða
fyrst um sinn.
En auk þess, sem þessar vélar geta framkvæmt. eru
ýmiss störf, sem vert er að athuga og bæta úr þar sem
misbrestir kunna á að vera. Skal í stuttu máli benda á
nokkur atriði er verða endursngð eftir skrifum danskrar
húsmæðrakennslukonu. sem heitir ttotíil Frederiksen; er
hún sérfræðingur í lieimilistækni.
Eldhúsáhöldin.
Á fáum sviðum mun \eru um jafn fjölbreyttar vörur
að ræða, sem hægt er að velja í milli, eins og því er
snertir hjálpartæki til eldhússtarfa. Þar er eiginlega um
ótal margt að ræða og eins og gengur má um það segja,
að sumt er óhæft til allra starfa og ætti að vera útilok-
að af markaðinum, en sumt er ágætt. Til þess að geta
greint á milli þess sem nothæft er og hins sem er ágætt.
þarf mikla vöruþekkingu. Reynslan sýnir, að húsmæður
hlusta yfirleitt eftir því, sem ráðunautar segja um þessi
efni og ekki að ástæðulausu, því að margar hafa brennt
sig — og sumar illa — á því að kaupa verkfæri eða vél.
sem betur hefði verið ókeypt. En það kostar tíma, og
það kostar fé og skapraunir, að komast að staðreynd-
unum.
Heimilistcekin þurfa að vera góíf, en hva'Sa kröfur á
arf bera fram til þess aS öðlast gott eldhúsáhald?
Handverkfærið — áhaldið ■— verður fyrst og fremst
að fara vel í hendi, \em létt, auðvelt að vinna með
því og létt verk að gera það hreint. Það þarf að vera