Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.01.1949, Qupperneq 34

Freyr - 01.01.1949, Qupperneq 34
28 PREYR Fjáreigendur í Skagafirði og Eyjafirði, greiddu í nóvember atkvæði um fjárskiptafrumvarp, þ. e. a. s. hvort farga skuli öllu fé austan Héraðsvatna og um megin hluta Eyja- fjarðar á komandi hausti. A kjörskrá voru 738 fjár- eigendur. Af þeim greiddu atkvæði 595. Voru 386 með fjárskiptum en 192 á móti, 8 atkvæði voru ógild og 9 seðlar auðir. Fjárskiptafrumvarpið hefir ekki fengið nægilegt fylgi og er því fellt. Hvort sauðfjársjúkdóma- nefnd mun fyrirskipa niðurskurð á hausti komandi, gegn vilja meirihluta sauðfjáreigenda, er ekki vitað enn. Johs. Ridder, forstöðumaður búreikningaskrifstofu Dana, hefir ný- lega skrifað um framleiðslukostnaðinn og áhrif hækk- unar hans á afkomu landbúnaðarins. Grein þessi birt- ist í „Jydsk Landbrug". Þar sýnir hann á meðal ann- ars hve mikið fjármagn þurfi til þess að reisa bú og ber saman árin 1914, 1939 og 1948. Miðar hann við bújörð 30 ha á góðu landi. Tölur lians eru þessar: 1914 1939 1948 kr. kr. kr. Útihús öll á jörðinni, 800 m2 23.000 52.000 104.000 Ibúðarhús (reiknað % af bygg.k.) 12.000 26.000 52.000 Byggingar samtals 35.000 78.000 146.000 Verkfæri og áhöld, mjaltav. meðt . 8.000 17.500 35.000 Búvélar, aðrar en dráttarvél 1.500 10.000 Vélar, verkf. og áhöld samt. 8.000 19.000 45.000 Byggingar samtals 35.000 78.000 156.000 Fjármagnsþörf samtals (land undanskilið) 54.000 114.000 232.000 Björnstad ríkisráðunautur Norðmanna, í hrossarækt, segir að um 206 þúsund hross séu nú í Noregi, en alltof mörg FRE YR — búnaðarblað — gefið út af Búnaðarfélagi íslands og Stéttarsambandi bænda. Ritstjóm, afgreiðslu og innheimta: Lækjargötu 14, Reykjavík. Pósthólf 1923. Sími 3110. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli Kristjánsson. Utgáfunefnd: Einar Olafsson, Pálmi Einarsson, Steingrímur Steinþórsson. F R E Y R er blað landbúnaðarins. Verð kr. 25.00 á ári. Gjalddagi fyrir 1. júlí Prentsmiðjan Edda h.f. þeirra séu léleg og lítils virði til notkunar, af því að þau séu of illa fóðruð og illa upp alin. Mætti þeim gjarnan fækka um 10% og borgi sig þá betur að nota toðúr þeirra, sem íalla, handa hinum sem eftir hfa. Hann telur, að í landinu sé 216 félög, sem vinna að ræktun dalahestsins, og 230, sem rækta vesturlands- hestinn. Telur hann starfsemi þeirra mikilsverða fyrir viðhaldið og hæfni hrossanna. Grepstad skólastjóri við Gjerpen bændaskóla í Noregi skrifai': „011 framleiðsla og sala alifuglaræktenda í Nor- egi verður að komast undir einn hatt, eina stjórn fé- lagslegra samtaka. Söluskattur verður að vera á, svo að hægt sé að nota hann til þess að hreyfa eggjaverð- ið et'tir atvikum og ástæðum og svo að ekki borgi sig að verzla utan við samtökin. Það er eðlilegast að alifugla- ræktin sé fastur liður í búskapnum og þá fyrst og fremst á smábýlunum. Það gefur þessari búgrein mest öryggi“. Mundi ekki athugandi hvort þessi ummæli eiga við einuig hér á landi? Búnaðarþing kemur saman þann 8. febrúar n. k. Til áskrifenda. Þið, sem haldið blaðinu saman, gerið svo vel og lát- ið afgreiðsluna vita hið fyrsta, ef vanskil hafa orðið á blaðinu og ykkur vantar í síðasta árgang. Munum vér bæta úr því meðan upplagið hrekkur.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.