Freyr - 01.01.1950, Blaðsíða 11
FREYR
5
Forsetahjónin
á Bessastöð-
um, frú
Georgía og
Sveinn
Björnsson.
hagsmál vor og fjármál inn á við og út á
við.
Það er verkefni stjórnar og þings að
finna leiðirnar, og mun ég ekki fara út í þá
sálma.
En við þetta tækifæri á ég sérstaka ósk.
Hún er sú, að landbúnaðurinn megi skipa
þenn sess, sem oss er nauðsynlegt að hann
geri í því uppbyggingarstarfi, sem er
framundan.
Fyrir 40 árum var ég í klefa með brezk-
um manni í járnbrautarlest í Englandi.
Við tókum tal saman og bar ýmislegt á
góma. Hann lagði m. a. fyrir mig þessa
spurningu: Hvern teljið þér vera aðalat-
vinnuveg brezku þjóðarinnar, þann sem
flest fólk vinnur við og hefir afkomu sína
af ? Ég gat upp á fleiru en einu. Hann hristi
höfuðið, en sagði að ég væri ekki sá fyrsti
útlendingur, sem flaskaði á þessu. Nei, það