Freyr - 01.01.1950, Blaðsíða 27
PREYR
21
2 smálestir af grænfóðri að
hausti með beit ............. 200 f. e.
6 smálestir af votheyi ......... 1.000 f. e.
1,2 smálestir af góðri töðu .... 550 f. e,
290 kg af blöndu síldarmj öls,
maís og klíð ................... 290 f. e.
Samtals 2.900 f. e.
Að sjálfsögðu eru hér lagðar til grund-
vallar meðaltalstölur, en frávik eru mikil
eftir því á hvaða tíma árs kýrnar bera.
Vorbærurnar þurfa meira gras og minna
fóður að vetrinum. Því er ástæða til að
sjá um, að þær hafi góða sumarhaga, enda
ber bændum að kappkosta að kýrnar hafi
gott beitiland yfirleitt. Fóðrið, sem þær
sjálfar taka á jörðunni, er auðvitað ó-
dýrasta fóðrið, sem völ er á. Fyrir það þarf
enga geymslu og ekkert erfiði er við að
losa það og þurrka.
Ef fóðureiningin í heyi kostar bóndann
80—90 aura, má víst gera ráð fyrir, að
grasverðið sé í hæsta lagi þriðjungur þessa
verðs. Það borgar sig að hafa beitartím-
ann sem lengstan og beztan. Þess vegna
þarf grænfóður að haustinu.
Olíudýfíng eggja
Fyrir tveimur árum síðan báruzt fregnir
um það frá Ameríku, að ný aðferð við
geymslu eggja væri reynd, og fylgdi það
fregninni að hún þætti betri en hinar
eldri. Aðferð þessi er olíudýfing eggjanna
áður en þau eru sett í kælihús til geymslu
við 0—1 stiga hita. Meðferð þessi hefir
Það hlutverk að loka smáholum þeim, sem
eru á skurninni.
Tilraunir með þessa aðferð hafa verið
gerðar á ýmsum stöðum, t. d. við stofnun
eina í Gautaborg, sem vinnur að ýmsum
rannsóknum á sviði matvælageymslu.
Bráðabirgða niðurstöður þeirra rannsókna
segja, að eftir fjögurra mánaða geymslu
eggja, sem ekkert var við gert áður en
þau fóru á kælihúsið, var rýrnunin 3,2%
en þau egg, sem olíudýfð voru áður, létt-
ust aðeins 1,3%. Eftir 6 mánaða geymslu
nam rýrnunin 22% hjá þeim olíudýfðu en
5,4 hjá hinum.
Við gæðamat eftir fjögurra mánaða
geymslu voru 59,4% af þeim olíudýfðu tal-
in fyrsta flokks, samkvæmt strangri ame-
rískri matsferð. Þau egg, sem ekkert var
við gert, náðu alls ekki í fyrsta flokk.
Önnur aðferð við geymslu eggja hefir
verið prófuð vestan hafs, svonefnd örygg-
ishitun (termostabilisering). Eggjunum er
dýft í 60 stiga heitt olíubað í 9 mínútur.
Þau egg, sem hagrætt var á þennan
hátt, léttust aðeins 1,2% við fjögurra mán-
aða geymslu og 1,6% við sex mánaða
geymslu í kælihúsi.
Gæði eggjanna voru mun meiri, að þess-
um tíma liðnum, ef þau voru öryggishituð
í stað þess að vera dýft í kalda olíu, enda
komu 64,3% í fyrsta flokk. Nokkuð bar
á því, að hvíta hinna hituðu eggja hafði
hlaupið saman, þ. e. a- s. að hitastigið hefir
annaðhvort verið of hátt eða þeim haldið
helzt til lengi í baðinu. Það er talið mikils
vert að bæði hitastig og tíma sé gætt ná-
kvæmlega.
(Eftir Mejeriposten). G.