Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1950, Blaðsíða 24

Freyr - 01.01.1950, Blaðsíða 24
18 FREYR að verksmiðjan, sem framleiðir alumini- um-amboðin, hefir fengið gjaldeyri fyrir efnismagni, sem nemur tæplega helmingi þess, er hún getur unnið úr. Til þess að öðlast efni, er komi sem am- boð í hendur bænda á komandi sumri, þarf gjaldeyrisleyfi, sem úthlutað væri nú um áramót. Því var auðsætt, að grein 1 Frey, um þetta mál, mundi of seint á ferð- inni til þess að gagn væri að fyrir yfir- standandi ár. Sneri ritstjóri Freys sér því til Viðskiptanefndarinnar og gerði grein fyrir ástæðunum eins og þær eru lagðar fram af bændum. Hefir nefndin nú tekið málið til athug- unar og formaður hennar lofað að veitt- ur skyldi gjaldeyrir fyrir innflutningi hráefna í aluminium-amboð í þeim mæli, sem telja mætti líklegt að hægt væri að vinna úr til nota á árinu. Frá sjónarmiði þeirra, er ráðstafa gjald- eyri til innflutnings, er hér um smámuni eina að ræða, en fyrir bændur, um gjör- vallar sveitir þessa lands, er þetta ekki smámál, heldur brýn þörf, sem fullnægja ber. Að fengnum ofangreindum upplýsingum er því ástæða til að vona, að frekari skrif um þetta efni séu óþörf og að af fram- kvæmdum verði eins og frá er sagt. G. Bústofn og fóðurþörf Efnahagsstofnun sameinuðu þjóðanna hefir óskað eftir því, að gert yrði yfirlit yfir magn þess fóðurs, sem þarf hér á landi til þess að framfleyta bústofni landsmanna og breyta skal í neyzluvörur og aðrar bú~ f j árafurðir. Ráðunautar Búnaðarfélags íslands hafa nýlega samið yfirlit þetta miðað við bú- fjárfjölda samkvæmt framtölum 1. janúar 1949, en þá var búfjárfjöldi sem hér segir: Kýr ............................. 30.002 Geldneyti og kálfar.............. 13.334 Sauðfé ......................... 440.202 Hross ........................... 43,800 Hænsni ....................... 135.444 Svín ............................... 357 Eins og gefur að skilja, er búféð langt- um fleira en þetta á vissum tímum árs, því að verulegur hluti kjötframleiðslunnar byggist á því, að ungviði fæðist á árinu og þeim sé slátrað áður en árið er liðið. Þetta á við um allar greinar búfjárins en þó fyrst og fremst sauðféð. Fóðurþörfin er reiknuð eftir viðhaldstöl- um fyrir hinar einstöku búfjártegundir og miðuð við virkilega framleiðslu á árinu. Samkvæmt þessu var notkunin sem hér segir: Fóðurein. Innflutt kraftfóður .......... 15.500.000 — klíð ..................... 2.500.000 Síldar- og fiskimjöl .......... 6.050.000 Hey (allskonar) ............. 110.000.000 Nýmjólk ......................... 270.000 Undanrenna ...................... 340.000 Samanlögð fóðurgjöf: 134.660.000 Beit ............................. 200.882.000 Fóðurnotkun samtals: 335.542.000 : ' -3: íi¥ J . , ,., & Tölurnar sýna, að 60% af fóðrinu afla skepnurnar sjálfar á beit á öllum ársins tímum en langmest að sumrinu. Af sam- anlögðu fóðurmagni eru 5.4% innflutt.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.