Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1950, Blaðsíða 14

Freyr - 01.01.1950, Blaðsíða 14
§ PREYR Af hverju er ég að tala um þetta? Af því ég hefi, síðan ég varð sveitamaður, fengið vaxandi trú á því, að landbúnaður- inn eigi áfram að vera öndvegisatvinnu- vegur á íslandi. En til þess að svo megi verða, þarf ýmsar gagngerðar breytingar frá því sem áður var og er ennþá, umfram það sem þegar hefir komizt í framkvæmd. Ef vér setjum oss það mark, sem ég hygg ekki vera neinar öfgar, að minnsta kosti allvíða í landinu, að hér verði landbúnað- ur rekinn svo, að afurðir hans séu ekki eingöngu samkeppnisfærar við afurðir annara landa innanlands, án verndartolla eða innflutningshafta og án rekstrar- styrkja, heldur einnig til útflutnings, þá tel ég markið rétt sett. Leiðin að því er aukin og betri ræktun, byggð á vísinda- legum grundvelli, ræktun gróðurmoldar, ræktun og kynbætur nytjajurta, ræktun beitilanda, ræktun og kynbætur húsdýra, útrýming hverskonar illgresis, lækning og útrýming húsdýra- og jurtasjúkdóma. Auk þess þarf að batna þekking á vélum og verkfærum, meðferð þeirra, viðhaldi og viðgerðum. „Rómaborg var ekki byggð á einum degi“, segir gamalt máltæki. Sú breyting, sem þarf í íslenzkum landbúnaði, verður ekki á einu ári eða fáum árum. Sumir munu telja það of mikla bjart- sýni, að hér sé hægt að reka svo hagnýtan nýtízkubúskap, sem ég á við. Ég hefi minnzt á álit merkra erlendra manna á gæðum gróðurmoldarinnar og hvað megi rækta hér, sem hefir ekki verið ræktað áð- ur eöa aðeins nýbyrjað á. Þá mun verða nefnt af þeim svartsýnu, að veðráttan hér á landi sé erfiðari en víða annars staðar. Það er rétt, að veðráttan er erfið, en hún er þó ekki mikið erfiðari en í sumum öðrum löndum, fyrir ýmsan búrekstur. Og á sumu má sigrast. Veturinn síðasti var harðari og lengri en mörg ár undanfarin. Sumarið óþurrkasamt, sífelldar rigningar síðari hlutann allt fram í október hér á Suður- landi. Samt var hlaðan full hér á Bessa- stöðum af þurru heyi, enda er hér súg- þurrkunartæki. Allar súrheysgryfjur full- ar. Bygg og hafrar fullþroskað, þótt seint yrði. Kartöfluuppskeran ágæt. Ég skýri hér frá staðreyndum, sem dæmi, en er ekki að miklast af því, enda er afraksturinn bú- stjóranum og ekki mér að þakka. Þótt veðráttan geti verið þreytandi, er hún ekki sá Þrándur í Götu, sem ekki megi taka fangbrögðum, með von um nokkurn árangur. Eitt viðfangsefni er erfitt, það er kostn- aður við nægilega varanlegar byggingar. En vér þurfum að auka að mun vísinda- legar rannsóknir fyrir landbúnaðinum og tilraunastöðvar. Nú erum vér að eignast hæfa vísinda- menn á þessu sviði; þeim þarf að fjölga og að þeim þarf að hlúa. Og koma þarf upp tilraunastöðvum svo mörgum sem þarf til þess að þær hafi gildi fyrir bændur í öllum landshlutum. Áhugi er vakinn fyrir aukinni ræktun og umbótum og ýmsar framkvæmdir eru hafnar. Það sem ég óttast er það eitt, að vér setjum ekki markið nógu hátt, að vér fylgjumst ekki nógu vel með tímanum. Öðrum þjóðum er það nú ljóst, að landbún- að verður að byggja alveg á vísindalegum grundvelli. Það sama hlýtur að eiga við oss íslendinga, ef tækni nútímans á að koma að fullu gagni. Ég vildi óska þess, að unga fólkið hér á landi mætti koma auga á það, hve mikið bíður þess á þessu góða landi, sem hefir haldið lífinu í íslenzku þjóðinni í meira en þúsund ár, þrátt fyrir allar þær hörmung-

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.