Freyr - 01.01.1950, Blaðsíða 31
FRE YR
25
Smásöluverð í Reykjavik
Landbúnaðar af urðir: aur. Aðrar neyzluvörur: aur.
Nýmjólk í lausu máli ... ltr. 205 Fiskur (nýr) slægð ýsa . kg. 115
Rjómi — 1550 Fiskur (nýr) þorskur slægður — 110
Skyr kg. 370 Saltfiskur, þorskur, þurrkaður — 315
Smjör — 500 Rúgbrauð, 1 kg stk. 210
Mjólkurostur 40% — 1660 Rúgmjöl .... kg. 127
20% Flórmjöl nr. 1 — 160
Mysuostur — 750 Hafragrjón — 180
Nautakjöt (steikt) — 1800 Hrísgrjón — 210
— (súpukjöt) ... — 1200 Baunir — 211
Kálfakjöt — 800 Hvítsykur, höggvinn — 244
Hrossakjöt — 750 Strásykur — 217
Dilkakjöt nýtt — 1120 Smjörlíki — 422
— saltað — 1160 Krystalsápa — 470
— reykt — 1650 Kaffi, br. og malað — 1540
Flesk nýtt Kaffibætir _ 720
— saltað Cacao
— reykt — 2600 Steinolía .... Itr. 69
Egg I. fl — 1800 Kol . 100 kg. 2480
— II. fl
Tólg — 1250
Kæfa — 1940 Vísitala framfærslukostnaðar var 340 stig.
Kartöflur — 110
horfin hér á landi. Af því varð þó ekki,
ráðum náttúrufræðinga var þar hlýtt, en
alþýða í sveitum talaði máli hennar og
vildi alfriða um nokkurra ára skeið svo að
henni yrði ekki útrýmt á landi hér, en sum-
ir telja að þannig horfi nú.
Á því herrans ári 1949 var fólk flutt
hingað til lands frá Þýzkalandi, bæði menn
og konur en þó fyrst og fremst kvenfólk.
Var skortur á vinnuafli svo mikill á sjúkra-
húsum og á heimilum, einkum í Reykjavík,
að innflutningur verkakvenna var talin
nauðsyn.
Á árinu var haldið hátíðlegt 50 ára af-
mæli Búnaðarþings og við það tækifæri
samþykkt í einu hljóði að efna til sam-
starfs og styrktar Skógræktarfélagi ís-
lands um eflingu skógræktar hér á landi.
Er þá aftur ákveðið að styðja þennan þátt
ræktunar í landinu, en það var á vegum
búnaðarfélagsskaparins, að fyrsta við-
leitnin um skipulagða trjárækt hér á landi
var gerð fyrir 50 árum.
Frá árinu 1949 er margs að minnast og
þó að fyrst í stað sé meira talað um það,
er miður fór en hið góða, sem það færði,
þá er sú staðreynd óhrekjandi, að eitt og
annað gott bar það í skauti sínu.