Freyr - 01.08.1951, Qupperneq 3
XLVI. ARGANGUR. NR. 16—17
REYKJAVÍK, ÁGÚST 1951.
KRISTJAN BENEDIKTSSON:
Frídagur sveitafólksins
Austur-Skaftfellingar hafa ákveðið, að fyrst um
sinn, eða unz aðrar ráðstafanir verða gerðar, skuli
Jónsmessudagur verða frídagur og hátíðisdagur
svcitafólksins þar í sýslu. Var hann hátíðlegur liald-
inn í fyrsta sinn í sumar. í Mýrahreppi fór fólk
til fjalla og hélt þar samkomu.
Kristján Benediktsson, bóndi í Einholti, hugðist
verða þar aldursforseti á samkomunni — hann er nú
sjötugur — cn svo varð ekki, því að þar mætti fólk
allt að 75 ára að aldri og svo auðvitað allt sem
yngra var.
Eftirfarandi erindi flutti Kristján við þetta tæki-
færi. Ritstj.
„Eg er bóndi og allt mitt á undir sól og
regni“. Allt okkar líf hér á jörðu er undir
því komið, að skiptist á skin og skúr, sól
og dögg. Sólin hefur verið talin móðir alls
lífs á jörðinni, en ef döggina vantar skræln-
ar allur gróður og verður að engu, og ekk-
ert líf mundi lengur þróast og það mundi
jafnvel hverfa með öllu. Það varðar okkur
því mjög, sem landbúnað stundum ekki sízt,
að skin og skúr skiptist á í hagkvæmum
hlutföllum fyrir gróður jarðar og fyrir allt
vort líf. Þetta varðar svo mjög líf okkar hér
norður á íslandi, hvar sem við erum bú-
sett og alveg eins hér á suðurströndinni í
Hornafirði og hér heima í Mýrasveit. Ekki
finnst okkur alltaf almættið haga sem bezt
fyrir okkur skiptingu skins og skúra. Að
öllu er fundið, en erfiðara að ráða við að
færa eitt og annað í hagkvæmara form og
verður okkur það helzt tiltækilegt að færa
okkurmð nokkru í varnarstöðu jafnframt
því að sækja fram, ýmist með hægfara eða
hraðfara þróun. Þegar okkur vantar skúr-
ir á hentugum tíma reynum við að finna
ráð til þess að bæta það upp að nokkru.
Þegar okkur vantar sól, erum við að reyna
að finna ráð til þess að koma í veg fyrir
örlagarík áhrif á líf vort er af því leiðir.
Þetta er á sjómannavísu kallað að „haga
seglum eftir vindi“, en við, sem landbúnað
stundum, getum sagt að við séum að reyna
að eiga ekki allt undir sól og regni. Og
nokkuð hefur áunnizt, það finnum við