Freyr - 01.08.1951, Blaðsíða 7
PRE YR
243
Útvegum hinar þekktu Dening-sláttuvélar fyrir Landrower.
Uppúsingar gefa:
Kristján G. HísSason 8s, Co h.f.
Hverjisgötu 4 — Reykjavík.
burð til þess að gera sér grein fyrir fram-
kvæmdamagni.
Þess má geta, að árið 1949 voru fram-
kvæmdamenn 3503 i 218 félögum. Árið 1950
voru þeir miklu fleiri, eða 4048 í 217 félög-
um. Aukinn fjöldi framkvæmdaaðila er
mestur í Suður-Þingeyjarsýslu og Eyja-
fjarðarsýslu, og yfirleitt er hann aukinn í
öllum sýslum nema Rangárvallasýslu og
Dalasýslu, en þar hefir lítilsháttar fækkun
orðið.
Framlag hins opinbera, til jarðræktar-
framkvæmdanna, var meira í þetta sinn en
nokkru sinni fyrr eða 4,57 milljónir króna,
svo nettó til framkvæmdaaðila hefir orðið
tæplega 4,4 milljónir.
Með vélakosti þeim, sem bændur hafa nú
yfir að ráða, bæði til félagslegra fram-
kvæmda og einstaklingsframtaks við rækt-
un, ætti að vera kleift að halda í horfinu.
Öðru máli gegnir með byggingar, því að
verðið á byggingarvörum er svo hátt og
byggingarefni torfengið, að tvísýnt er um
þær framkvæmdir.