Freyr

Årgang

Freyr - 01.08.1951, Side 10

Freyr - 01.08.1951, Side 10
246 FRE YR ber. Hjá grannþjóðum okkar er starfstím- inn jafnan 8 mánuðir og uppskerutíminn 5—6 mánuðir. Það segir sig sjálft, að af- komumöguleikar hljóta að vera betri við þær kringumstæður. Það mundi líka vera mun drýgra að geta haldið slitlaust áfram við öflun vetrarfóðurs frá júlíbyrjun til septemberloka. Að þessu ber að stefna. Ræktaða landið þarf að vera það stórt á hverju býli, að tveir slættir töðu og græn- fóðurverkun sé svo mikil, eða, ef ekki er aflað svo mikils fóðurs, þá einhvers þess, sem gefur hliðstæðar tekjur í bú bóndans. Einhver mun segja, að ekki sé hægt að afla fóðurs lengur en til 20. september — til gangna. Má vera og sjálfsagt ekki þar, sem sauðfjárrækt er stunduð sem aðal atvinna. En stundum er þá líka hægt að byrja hey- skap fyrr en með júlíbyrjun. En það er annað, sem minna ber á í þessu sambandi. Það er ekki hægt að þurrka hvernig sem viðrar. Þess minnast margir frá sumrinu 1950 og þess minnast allir frá óþurrkaköflum flestra sumra. En það er einmitt þetta, sem menn verða að keppa að, að vera sem minnst háðir vatni og vindi. Á hverri bújörð þurfa að vera skil- yrði til þess að losa fóðrið þegar það er á hæfilegu vaxtarstigi og hirða það um leið, eða svo fljótt sem orðið getur, svo að tap í fóðurgildi og lífrænu gildi verði sem minnst. Það þarf að vera hægt að þurrka þegar við á, og votheysverka þegar við á. í því er miklu meiri fóðurtrygging fólgin en nokkurn hefir grunað, og menn almennt hyggja. Eða hvort hafa bændur almennt gert sér grein fyrir því, að kýrfóðrið, sem stendur úti á túni sem græn grös, verður einatt að- eins hálft kýrfóður þegar það er loksins komið í jötuna að vetrinum. Ef menn hug- leiddu þá staðreynd og gerðu allt, sem í þeirra valdi stendur til þess að hefta hvarf þeirra verðmæta, sem hér um ræðir, þá mundu margir betur settir er á móti blæs á útmánuðum, eða þegar snær þekur jörð fram í júnílok. Grasið grær og vex. Grasið er bezta fóðr- ið sem skepnurnar fá. Næst því er það fóð- ur, úr grösum og öðrum fóðurjurtum gert, sem við verkun og geymslu frá sumri til vetrar tapar minnstu af hinum uppruna- Það gengur furðu greiðlega að þurrka heyið með nýtízku vélutn. Hestknúin tœki afkasta svo miklu, að i venjulegu árferði miðar vel við heyskap með aðstoð þeirra. En það er þetta, sem bcendur þurfa að gera sér grein fyrir, að snún- ingsvélin er gagnslaus þegar regn eða súld rikir dögum og vikurn sarnan. Þá þarf aðrar vélar og önn- ur úrrceði til fóðurverkunar.

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.