Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.08.1951, Qupperneq 13

Freyr - 01.08.1951, Qupperneq 13
FREYR 249 23. gr. Ríkisstjórnin setur á stofn og rekur hér- aðsrafmagnsveitur, þar sem ekki eru aðrar héraðs- rafmagnsveitur fyrir hendi, með þeim skilyrðum, sem segir í lögum þessum. Rafmagnsveiturnar skulu vera eign ríkisins og reknar sem fjárhagslega sjálfstætt fyrirtæki með sérstöku reikningshaldi undir yfirumsjón þess ráð- herra, sem fer með raforkumál. Stofnunin heitir: héraðsrafmagnsveitur ríkisins. 24. gr. Rafmagnsveitur ríkisins annast rekstur héraðsrafmagnsveitna ríkisins, og hafa raforkumála stjóri og rafmagnsveitusljóri ríkisins á hendi um- sjón og stjórn þeirra á sama hátt og gildir um rafmagnsveitur ríkisins. Héraðsrafmagnsveitur ríkisins endurgreiða raf- magnsveitum ríkisins allan kostnað, sem þær hafa af stjórn og rekstri héraðsrafmagnsveitnanna, eftir reikningi, sem ráðherra samþykkir. 25. gr. Héraðsrafmagnsveitur ríkisins vinna orku í eigin orkuverum eða kaupa hana frá öðrum orku- verum eða orkuveitum, vcita henni um þau svæði, sem orkuveitútaugar þeina ná yfir á hverjum tíma, og afhenda hana hverjum kaupanda við húsvegg hans eða á notkunarstað. 26. gr. Til þess að koma upp mannvirkjum liér- aðsrafmagnsveitna rikisins skal fjár aflað: a. með lántökum; b. með framlögum úr ríkissjóði, eftir því sem ákveðið kann að verða í fjárlögum; c. með framlögum úr héraði, sbr. 27. gr., og d. með tekjuafgangi héraðsrafmagnsveitna ríkis- ins, sbr. 30. gr. 27. gr. Gegn óendurkræfu og vaxtalausu fram lagi ríkissjóðs til héraðsrafmagnsveitu ríkisins skal ávallt koma óendurkræft og vaxtalaust framlag úr héraði, er að upphæð nemi minnst i/s af framlagi ríkissjóðs. Framlag úr héraði greiðist úr sýslusjóði og má i' reglugerð, sem hver sýslumaður semur og ráðherrra staðfestir, setja um það ákvæði, hvernig sýslusjóði sktdi koma sérstakar tekjur fyrir þeim greiðslum, þar á meðal þau skilyrði, að rafmagns- neytandi hafi greitt ákveðið gjald, heimtaugagjakl, áður en veitutaugar eru lagðar að húsi hans eða jarðeign. Framlag úr sýslusjóði til héraðsrafmagns- veitu ríkisins getur sýslunefnd bundið við tiltekið mannvirki. 28. gr. Áður en ráðizt er i að koma upp orku- veitu eða reisa orkuver, skal að undangengnum rannsóknum gera nákvæmar áætlanir um tekjur og gjöld af mannvirkjunum. Nú sýna áætlanir ,að tekjur af mannvirkjunum muni eigi nægja til að greiða vexti og afborgan- ir af öllum stofnkostnaði, þar með talið hæfilegt gjald í varasjóð, og má þá eigi gera mannvirkin, nema héraðsrafmagnsveitum ríkisins hafi komið óendurkræf og vaxtalaus framlög, sbr. 26. og 27. gr., sem nægi til að greiða þann hluta stofnkostnaðar, sem umfram er það, er tekjur af mannvirkjunum geta staðið undir. 29. gr. Nú er í senn um að ræða að gera fleiri en eina nýja héraðsrafmagnsveitu ríkisins eða aukn- ingar eldri veitna, og skal þá sú veita ganga fyrir um framkvæmd, sem áætlanir sýna, að ber sig bet- ur fjárhagslega. 30. gr. Bókhaldi héraðsrafmagnsveitna ríkisins skal, eftir því sem kostur er, hagað þannig, að það sýni stofnkostnað veitnanna innan hverrar sýslu um sig. Nú verður tekjuafgangur af rekstri héraðsraf- magnsveitna ríkisins innan sýslunnar, og skal lion- um varið til aukningar og endurbóta á veitum í þeirri sýslu. Reiknast í því sambandi sem framlag úr héraði jafnhár hundraðshluti af þeim tekjuaf- gangi og framlag úr sýslunni þá er orðið af öllu framlagi til héraðsrafmagnsveitna ríkisins innan sýslunnar. 31. gr. Gjald fyrir raforku frá héraðsrafmagns- veitum ríkisins skal ákveða í gjaldskrá, sem stjórn þeirra semur og ráðherra staðfestir. 32. gr. Ráðherra setur með reglugerð nánari fvr- irmæli um framkvæmd á ákvæðum þessara laga um héraðsrafmagnsveitur ríkisins. Reglugerð sú, sem um getur í 32. gr., hef- ur verið gefin út, er staðfest af atvinnu- málaráðuneytinu þann 13. maí 1947 og birt í stjórnartíðindunum, og sömuleiðis hafa verið staðfestar og gefnar úr gjaldskrár samkvæmt 31. gr. En hér verður ekki rætt að sinni um rekstursháttu héraðsrafmagns- veitnanna, sem þessi reglugerð fjallar að- allega um, né heldur gjaldskrármál þeirra, það verður efni síðari greina í þessum greinaflokki. Fyrst er að gera grein fyrir fjáröflun til framkvæmdanna. Styrkpörf. Eins og skýrt er frá í fyrstu grein þessa greinaflokks, hefur verið reiknað með, að stofnkostnaður samveitna í sveitum, miðað

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.