Freyr

Årgang

Freyr - 01.08.1951, Side 23

Freyr - 01.08.1951, Side 23
FREYR 259 dómanefnd bændum á fj árskiptasvæðinu, sem þá var nokkur hluti Strandasýslu, Dalasýslu, Barðastrandarsýslu og Vestur- Húnavatnssýslu, að kaupa fé úr „grunaða hólfinu“ milli varnargirðinganna Stein- grímsfjörður—Þorskafjörður og ísafjörður —Kollafjörður. Það haust deildu menn um réttlátt verð líflambanna. Yfirstjórn verð- lagsmálanna hér syðra ákvað, að greitt yrði út það haust áætlað verð, en verðupp- bót yrði greidd síðar, og seljandi hlyti að lokum fullt frálagsverð fyrir hin seldu lömb. Haustið 1948 tilkynnti Verðlagsráð land- búnaðarvara verðuppbætur þær, sem sann- gjarnt var talið að greiða. Mörgum vest- firzkum bændum brá; töldu þeir að hallað væri á seljendur umfram alla sanngirni. Ýmsir, sem áður höfðu látið lömb sín til lífs með glöðum huga án þess að búast við hagnaði, fylltust nú gremju yfir verðlag- inu, og allir þar voru á einu máli um, að verð líflambanna væri ekki viðunandi. En gögn, til þess að hnekkja verðlagning- unni fyrir dómi, voru af skornum skammti og engin samtök voru gerð meðal seljenda. Ég var meðal þeirra, sem sáu góðar von- ir bregðast. í Kaldrananeshreppi hafði, haustið 1947, þrem mönnum, á skyndifundi í Skarðsrétt, verið falið að gera sérsamn- inga við kaupendur líflambanna. Næðist ekki samkomulag um verð var meiningin að neita að selja. Ég var einn þessara manna, en leit öðrum augum á þessa aðferð en margir sveitungar mínir; mætti ég því ekki á fyrirhuguðum samningafundi, enda engir sérsamningar gerðir og lömbin látin á þeim grundvelli, sem valdhafarnir fyrirskipuðu. Haustið eftir, er sýnt var hvert hið endan- lega líflambaverð var ákveðið, var ég óspart brýndur með því að ég hefði svikið sveit- unga mína haustið áður um að heimta sér- samninga svo sannvirði næðizt. Er ég, í næði, athugaði hvað lagt væri verðlagn- ingunni til grundvallar minntist ég grein- anna, sem getið var hér í upphafi. Ein þeirra bar yfirskriftina „Kálfur eða kind“. Var í greinum þessum, af öðrum aðila, lagt mjög að jöfnu byggingarlag og holdafar vestfirzka fjárins og ungkálfa. Mér virtist að á sjónarmiði, sem ekki lægi fjarri þessu, hlyti verðlagningin að byggjast. Ég hefi ekki haft aðstöðu til þess að kynnast verulega byggingarlagi og holda- fari sauðfjár í öðrum landshlutum. Þó þekkti ég hið orðlagða Gottorpsfé og fjár- stofninn hans Jóns á Laxamýri; átti ég fé af þeim fjárstofnum báðum, sem og af koll- ótta fjárstofninum okkar Stranda-, Barð- strendinga- og Dalamanna. Um fjárstofna, sem tækju þessum fram, höfum við Strandamenn lítið heyrt, nema ef vera kynni í Hrunamanna- og Gnúpverjahrepp- um í Árnessýslu, og féð hans Gísla í Ey- hildarholti, ef þar er um sérstaka fjár- stofna að ræða. Haustið 1948 voru hrútasýningar haldn- ar á Vestfjöðrum. Mætti dr. Halldór Pálsson á sýningunum í Strandasýslu og dæmdi hrútana. Á sýningu í Kirkjubólshreppi mættu um 80 veturgamlir hrútar; hlaut fjórði hver þeirra fyrstu verðlaun. Þetta mun betri útkoma en áður er þekkt við hliðstæðar aðstæður, og gaf fyllilega til kynna, að á Vestfjörðum væri hreint ekki svo fátt fé, er fullnægði hinum ströngu kröfum, sem dr. Halldór gerir til velbyggðs sauðfjár. Enda er sannfæring mín sú, að fé okkar Strandamanna standi upp og of- an jafnfætis því bezta sem gerist í öðrum byggðarlögum, en vegna rýrings-haglendis, og annara utanaðkomandi áhrifa, sýni það ekki ætíð hið bezta, sem í því býr. Flestir munu viðurkenna, að verð sauðfjár afurða til bænda hafi ekki mátt lægra vera á undanförnum árum. Flóttinn úr sveitun- um til bæjanna hefir mikið stafað af því, hve mikill hluti heildarteknanna hefir far- ið í kostnað. Menn hafa séð, að allskonar milliliðastörf, jafnvel stunduð sem ígrip, hafa gefið meiri tekjur en meðalbú. Jafn- vel innan búnaðarsamtakanna eru til menn, sem halda því fram, að Vestfjarða- kjálkinn eigi að leggjast í eyði. Lífsbarátt- an á Vestfjörðum er hörð, en fá munu þau gæði á landi hér, sem ekki krefjast starfs, og starfs er vissulega þörf á Vestfjarða- kjálkanum ef takast á að fyrirbyggja að upplausn sú, sem átt hefir sér stað í Norð- ur-ísafjarðarsýslu, breiðist út. Það hlýtur

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.