Freyr

Volume

Freyr - 01.08.1951, Page 32

Freyr - 01.08.1951, Page 32
268 FREYR ljóðum mínum, en fyrir það fékk ég eitt sinn „kritik“ hjá rithöfundi, sem þóttist vita betur. Víst hlær hún, og danska mo!din ekki síður en sú íslenzka. Gamli maðurinn horfir á mig. „Þér eruð frá Isjandi," segir hann. „Já, en hvernig vitið þér það? Ber ég það utan á mér?“ „Eg veit ekki hvernig ég veit það, en ég veit það nú samt. Ég er forvitinn karl, skal ég segja yður. Það er frá mörgum löndum þarna í háskólanum.“ „Já, frá Norðurlöndunum öllum og Grænlandi, og svo frá Þýzkalandi og Indlandi.“ Mér þykir leitt að hafa ekki tíma til að spjalla lengur við þennan skemmtilega, aldraða mann, en ég verð að hraða mér til ákvörðunarstaðarins. Skórnir mínir klappa malbikið á götunum. Gatan er mjúk af sólarhitanum. Beggja megin vegarins eru kýr á beit, tjóðraðar, vamb- miklar, með stærðar mjólkurjúgur. Það væri ekkert á móti því að vera belja á slíku haglendi — en þá er það tjóðrið. Það er slæmt að vera bundin. Nei, þá er betra að vera ég sjálf. I dag skín sólin og ég er á forvitnisferð. Þarna er hann, búgarðurinn, sem ég hefi haft augastað á. Húsin eru reisuleg, hvítkölkuð, með rauðum þökum. Fallegur garð- ur, víðáttumiklir akrar, grösugt tún. Ég staðnæmist við garðshliðið. Það er líklega húsmóðirin, sem er að vinna þarna ! garðinum. „Góðan daginn,“ segi ég, og bið afsökunar á að ég skuli vaða inn í garðinn til hennar, svona óboðin. „Ég er íslenzk bóndadóttir, sem langar til að kynnast dönsku bændafólki. Ég hefi ekki haft tíma til þess þann tíma, sem ég er búin að dvelja í Danmörku. Þetta er reglulega reisulegur og myndarlegur búgarður. Eruð þér húsmóðir- in hér?“ „Komið þér sælar. Það er ekkert að afsaka. Já, ég er húsmóðirin. Ég heiti Karen Gejl.“ „Er þetta ættaróðal?“ „Já, það er ættaróðal mannsins míns.“ „Og heitir hvað?“ „Bosagerglrd." „Það er fallegt nafn,“ segi ég. „Hafið þið margar skepnur?" „Við höfum 14 kýr, 10 kvígur, 50 svín, 100 hænsni og 4 hesta ■—■ einn af þeim er íslenzkur, það er uppáhalds- hestur sonar míns og hans eign. Það er ljómandi skepna.“ „Eigið þið mörg börn?“ „Nei, bara þennan eina dreng, en hann er góður sonur, 13 ára, stór og stilltur. Komið þér inn með mér og sjáið mynd af honum. Sem stendur er hann við hyvinnu með fólkinu. Gamli maðurinn þarna ! garðinum er föðurbróðir mannsins míns. Hann hjálpar mér við jarðarberin og fleira hér. Svona stór garður krefst mikillar vinnu.“ Við göngum inn bakdyra megin. Eldhúsið er glæsilegt. Vatn sýður ! flautukatli á vélinni rétt eins og heima, hjá sjálfri mér, á Akureyri. Við göngum til stofu, eða réttara sagt: göngum um stofurnar, 3 glæsilegar stórar stofur, með fínustu húsgögnum. Allt ber vott um velmegun. Frúin tekur rnynd af borði í beztu stofunni. „Hér erum við 3, hjónin og sonurinn.“ Það bregður fyrir glampa í augunum. Röddin er mild og blíð. „Þetta er falleg fjölskylda“ segi ég. „Sonurinn verður vonandi húsbóndi hér síðar, þegar tímar l!ða.“ „Það vonum við. Oðalið má ekki lenda í höndum vandalausra. Það er okkur gleði, að drengurinn er gefinn fyrir búskap og ann heimilinu sínu. Það gefur okkur beztu vonir. Það er sárt þegar börnin eira ekki heima og heim- urinn gleypir þau — en nú skulum við ganga út í garð- inn aftur, ég ætla að ná í bréfpoka og tína jarðarber ! hann handa yður. Við erum orðin leið á þeim sjálf. 1 ár fáum við feikna uppskeru af þeim þó lítið hafi verið um sól ! sumar. Eplin þarfnazt hennar. Vonandi stendur þetta veður lengur en í dag.“ Frúin tínir berin í pokann. Ég óska með sjálfri mér að hún tíni sem mest í hann. Jarðarber eru góð til átu og ég hefi ekki fengið svo mikið að ég sé orðin leið á þeim. Ég fæ ber í vænum poka, kveð frúna og þakka fyrir við- tökurnar. Hátt yfir höfði mér bærast laufkrónurnar. Það skrjáfar í sírenunum um leið og þær hneigja sig í sumarblænum, rétt eins og þær séu að kveðja mig um leið og ég geng út úr garðinum. Ég lít á úrið mitt og sé, að ég næ í tæka tíð í fyrirlesturinn hjá skólastjóranum. Hann ætlar að tala um hjónabandið. Þetta hefir verið ágætur dagur. Askov, í júl! 1951. HUGRÚN.

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.