Freyr

Volume

Freyr - 01.08.1951, Page 34

Freyr - 01.08.1951, Page 34
270 FREYR Rafgirðingar hafa í litlum mæli verið fluttar til landsins á undan- förnum árum og margir bændur beðið óþreyjufullir eftir þessum ágæta útbúnaði. A þessu ári var gjaldeyri varið til kaupa á tækjum; hefir afgreiðsla öll gengið greiðlega og fiöldi bænda óskað að fá þær, enda ekki óeðlilegt, því að tækin eru ódýr og raígirðing kostar smámuni miðað við aðrar girðingar, bví eins og allir vita er verð á sterk- um staurum og gaddavír nú orðið geysi hátt. Galli er bara að rafgirðingar eru ekki varzla fyrir sauðfé. Ullarverðið hefir fallið mjög á heimsmarkaðinum að undanförnu. Stafar þetta mest af því, að Bandaríkjamenn hafa ekki boðið í ullarframleiðsluna að þessu sinni móti öðrum viðskiptalöndum. Talið er að ullarverðið hafi fallið allt að 65% eða um 40 sent hvert enskt pund. Gangverðið á heimsmarkaðinum hefir verið 115 sent pundið að und- aníörnu. Nœturfrost voru víða um land nokkrar nætur um og eftir 10. ágúst, svo að skemmdir urðu verulegar — og sums staðar miklar — af þeirra völdum, einkum norðanlands. Ná- lægt sjó urðu skemmdir þó ekki tilfinnanlegar, en víst má telja að uppskera í haust muni langt um minni en annars af þessum sökum. Áburður eða kraftfóður. Á fjölmennu landbúnaðarmóti í Svíþjóð í vor gerðu nokkrir bændur grein fyrir því hvernig þeir væru alveg óháðir innílutningi erlends fóðurs. Kváðust þeir nota ríkulegt magn áburðar á engin, slá snemma, gera vothey og nota ræktað land til beitar og á þennan hátt fá meginmagn þess fóðurs, sem þarf til mjólkurframleiðslu og kjötframleiðslu. Jafnvel þó að með þessu móti fengizt svo sem 200 kg minni mjólk úr kúnni, urn árið, þá yrði fjárhagslega útkoman samt betri með þvi að nota tilbúna áburðinn í miklum mæli en spara kaup erlendra fóður- vara. Mundu ekki hliðstæðar ráðstafanir einnig standazt hér á landi? Norski búnaðarmálastjórinn hefir nýlega tilkynnt, að þrátt fyrir að í Noregi eru nú 100 þúsund færri kýr en fyrir stríð var met sett í mjólk- urframleiðslu á síðasta ári. Þessu marki hafa menn náð með því að nota meiri áburð en áður og í réttum hlutföllum, bæði á slægju- löndin og beitilönd. Með þessu móti hefir fengizt miklu meiri uppskera af hverri flatareiningu lands og betra fóð- ur, því að nú er miklu fyrr byrjað að heyja en áður var. Menn ráða líka betur við heyskapinn því verulegt magn af grasi er sett í vothey, en fyrirhöfn við það er lítil og óháð veðráttu. Danskir bœndur hafa sérstakan félagsskap í nautgriparækt, sem annast allt er varðar sæðingar. I maímánuði hélt landssamband þessa félags aðalfund sinn. Var þá upplýst, að enn er ör þróun í þessari starf- semi. Nærri 14 þúsund bændur bættust í félagshópinn á síðasta ári. Nú eru 125.000 bændur meðlimir, en það eru % allra bænda landsins. Þeir eru eigendur að um það bil Zt allra kúa Iandsins. Innan félagsskaparins eru notuð 900 naut. Meðalkostnaður varð kr. 18,15 fyrir hverja sæðingu en félagagjaldið var að meðaltali 19,27 kr. á kú. Mismunurinn er notaður til þess að efla félagsframtak. I þágu þessa hlutverks eru dýralæknar og inseminörar starfandi. Dýralæknum fer fækkandi en þeim slðarnefndu fjölgandi. Aðalfundur Stéttarsambands bænda, er í þetta sinn haldinn að Hólum í Hjaltadal, 27. og 28. ágúst. Útgefendur: Búnaðarfélag íslands og Stéttarsamband bænda. — Útgáfunefnd: Einar Ölafsson, Pálmi Einarsson, Steingr. Steinþórsson. — Ritstjóri: Gisli Kristjánsson. — Ritstjórn, afgreiðsla og innheimta: Lækjarg. 14 B, Reykjavík. Pósth. 1023. Sfmi 1957. BÚNAÐARBLAÐ Prentsmiðjan Edda h.f. J

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.