Freyr

Årgang

Freyr - 01.09.1952, Side 4

Freyr - 01.09.1952, Side 4
286 FREYR og ráösmanni hans, hrífurnar og lýstu þeir engu vantrausti yfir þeim. Fyrsta verk- stæðið hafði ég í kjallaraholu á Knarar- bergi og Arnarhóli í Kaupangssveit, en flutti það svo til Akureyrar. Árið 1935, þeg- ar við hjónin fluttum hingað suður til Reykjavíkur, seldi ég Lárusi Björnssyni, smið, helming verkstæðisins. Lárus er Hún- vetningur og hefir ætíð reynzt hinn ágæt- asti félagi. — Og hann hefir svo verið framleiðand- inn síðan? — Já, ásamt bróður sínum, og hjálpar- manni, hefir hann annast smíðina af mestu alúð. Það var hann, sem vildi hætta við gömlu hrífuklóna og setja í hennar stað v-lagaða spennu yfir hausinn og upp á skaftið, bæði að ofan og neðan. Með þessu hefir fengizt traustari tenging hauss og skafts en áður var. Það er þessi útbúnað- ur, sem við köllum „Iðjukló". Á alúmin- hausum er hún úr alúmini, en á tréhaus- um úr ryðfríu stáli. — Hefir framieiðslan svo gengið slitlaust í þessi 20 ár? — Ekki verður það nú sagt með réttu. Aluminorf og aluminhrifuhaus meÖ „Iðjukló Ýmislegt hefir truflað hana. Á stríðsárun- um gátum við ekki fengið alúmín og urð- um þá að gera amboðin úr tré, sem okkur tókst að fá frá Canada — ágæta furu. Eftir stríðið útvegaði Orka h.f. okkur alúmín, en í fyrra fengum við engin rör. Úti í heimi þurfti að nota þau til annarra hluta. Þá fengum við bara vír í tinda. Nú er viðhorfið aftur betra og allt útlit er fyr- ir að við getum hafið starf þriðja áratugs- ins í von um að fá efni, svo að bændur geti á næsta sumri fengið orf og hrífur úr alú- míni eins og þeir óska. — Hefir verið almenn ánægja með alúmínamboðin ? — Bæði já og nei. Þau þóttu stinn og létt — og þykj-a það enn — og þetta eru miklir kostir. En sköftin vildu sverta hend- urnar og sá sorti var enginn fegurðarauki fyrir kvenfólkið, þegar hann barst í fatnað þeirra og andlit. Þessvegna hætti ég fjót- lega við hrífusköft úr alúmíni. En nú standa vonir til, að verksmiðjurnar hafi fundið ráð til að fyrirbyggja þennan annmarka. Reyn- ist það svo, munum við Lárus bjóða kven- fólkinu eyvislétt alúmínsköft á næstunni. — En orfin, hvað um þau? — Þau gera engan að svertingjum og þau hafa verið ákaflega vel séð, enda eru þau bæði létt og stinn og óbrjótandi. Fram- vegis gerum við ráð fyrir að engin tregða verði á afgreiðslu þeirra. — En þau eru dýr? — Nei, — samanborið við verðlag á kjöti og smjöri geri ég ráð fyrir, að verðhlutfall- ið verði þannig, að svipað þurfi af þessum vörum til þess að greiða alúmínorfið nú eins og þurfti til þess að borga tréorf í gamla daga. — Hve mörg orf og hrífur hafið þið selt á þessum 20 árum? — Ekki get ég sagt þér það, en það er talsvert mikið samanlagt. — Og þið eruð orðnir efnaðir menn af gróða fyrirtækisins? — Það erum við ekki og verðum ekki. Tekjuafgangurinn fyrstu árin fór í til- raunir og endurbætur. Síðar sá verðlags- eftirlitið um að tekjuafgangurinn yrði í hófi og eftir að þeim fígúruskap lauk höf-

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.