Freyr

Årgang

Freyr - 01.09.1952, Side 15

Freyr - 01.09.1952, Side 15
FREYR 297 Hugleiðingar um gervisæðingu Opið svarbréf til herra Ólafs E. Stefáns- sonar frá dr. Briickner, Hellu. Herra Ólafur E. Stefánsson! Ég las með mikilli athygli grein yðar í marz-hefti Freys 1952. Þar sem margir höfðu orðið til þess að styðja — munnlega og bréflega — skoðun þá, sem ég hélt fram í grein minni um gervisæðingu nautgripa, þá þótti mér fengur í því að sjá andstætt álit líka rætt opinberlega. En því miður ruglið þér saman mönnum og máleíni. Vegna árásarhneigðar á míg missir grein yðar marks sem rökræða um gervicæðingu nautgripa. Vegna þessa tek ég mér penna í hönd og ekrifa yður bréf. Leitt er það, að þér hafið ekki komið auga á rauða þráðinn í grein minni, því að ég ætla yður ekki þá dul, að þér af áset.tu ráði hafið brenglað setningunum. Aðeins sá, sem las grein mína lauslega, eða heyrði frá henni sagt á skotspónum, gat misskilið hana. Ég segi mig lausan allri ábyrgð á á- lyktunum yðar, sem þér reisið á rangsnún- ingi greinar minnar. Krefjast verður þess, að rætt sé fyrir opn- um tjöldum og af drengskap, við bændur, um kostnað við gervisæöingu nautgripa, svo og nauðsynlegar ráðstafanir og útbúnað, sem gervisæðing hefir í för með sér. Þér á- lítið slíkar rökræður tilgangslausar og til þess eins fallnar að auka á sundurþykkju. Hér er ég yður ósamþykkur. Ég trúi því, að rökræður um þetta mál mundu leiða alla aðila á rétta braut, þó því aðeins, að menn héldu sér við málefnið. Ætti ég að ræða allt það, sem þér hafið misskilið í grein minni, yrði það of langt mál og of þreytandi fyrir þann, sem skyn ber á gervisæðingu naut- gripa, og ræðir þau, en ekki persónulegar aðdróttanir. Gervisæðing nautgripa hefir reynzt vel, sérstaklega í baráttunni við smitandi sjúk- dóma, sem valda ófrjósemi, svo fremi, að skilyrði væru til staðar. Ekki þarf það, sem við á í einu landi, skilyrðislaust að henta í öðru. Þetta á ekki sízt við um gervisæðingu, en með henni er gripið fram fyrir hendur náttúrunnar. Ábyrgðartilfinning kunnáttu- mannsins verður að vega kosti og galla. Árið 1950 kom út bók í Austurríki með þessum titli: „Skilyrði fyrir gervisæðingu nautgripa". Höfundurinn er dr. Raphael Koller, en hann er forstjóri ríkisstofnunar í Wels, sem sér um gervisæðingu húsdýra. Á bls. 16 segir dr. Koller: „Ekki er hægt að loka augunum fyrir því, að þegar um gervi- sæðingu er að ræða eru gripaeigendur háðir félagssamtökum og samgöngutækni. Ýmis- legt getur hindrað gervisæðingu, svo sem ótíð að vetrarlagi, slæmir vegir og óeirðir. Það liggur og í augum uppi, að ekki verður gervisæðing auðveld í miklu strjálbýli, sem er í slæmu vegasambandi. (Sviss hefir hing- að til haínað gervisæðingu.) Ekki hefir það verið gervisæðingu til framdrátíar, að þeir, sem lítt skyn bera á málið, færu að bera lof á gerviræðingu sem lausn allra mála. Líka verður að hafa það hugfast, að eins og tækninni er ennþá háttað, þá er gervisæð- ing aðeins á færi kunnáttumanna.1) Að lok- um telja menn gervisæðingu til ókosta, að vegna óhjákvæmilegrar fækkunar einstakl- inga karlleggsins minnki erfðamagnið og hættum skyldleikablöndunar sé boðið hei’.n Þessar andbárur virðast líka hafa við nol: :- ur rök að styðjazt, sérstaklega þega. það er haft í huga, að höfuðkosti telja :r:enn, að með sæði eins tarfs sé hægt a-_ rjóvga kýr þúsundum saman. Úr skýrslum frá Danmörku, Englandi, Bandaríkjunum og Rússlandi má líka lesa þaö, að mjög varfærnislega er farið í að út- breiða æskilega erfðaeiginleika með gervi- sæðingu. Próf. Lagerlöf í Stokkhólmi gerir líka þessa athugasemd: „Reynslan hefir sýnt, að ekki er ætíð viðhöfð nauðsynleg varúð, þegar menn vilja bæta dýrastofninn á l) I Þýzkalandi verða dýralæknar, sem leggja sLiuid á gervisæðingu, að ganga undir sérfræðipróf í orsökum ó- frjósemi.

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.