Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.09.1952, Qupperneq 17

Freyr - 01.09.1952, Qupperneq 17
FREYR 299 Hanarnir. Meira en 100.000 gagnslausir hanar eru nú í Noregi og eta fóður, sem jafnmargar góðar hænur gætu lifað af og orpið eggjum, sem að verðgildi mundi nema meira en 3 millj- ónum norskra króna, enda eta þeir fóður sem kostar nærri því tvær milljónir. Alllöng grein um þetta efni birtist í norska tímaritinu Bóndi og smabýlingur (Bonde og smábruker), er kom út hinn 15. ágúst. Á það er bent í greininni, að haninn í hjörðinni sé að vísu fallegasti fuglinn, en ekki geti tilvera hænsnaeigandans byggst á fegurð hans. Þá er haninn náttúrlega ó- missandi, þegar framleiða skal egg til út- ungunar, en þetta fer nú orðð fram á viss- um fáum stöðum og hanahaldið hingað og þangað um landið þjóni að óverulegu leyti þessum tilgangi. Þá er á það minnzt, að ýmsir álíti að haninn haldi hænsnahjörð- inni betur í hóp en ef hanalaust sé, og hann vari einatt við hættum. En því er bætt við, að þetta sé ekkert annað en kenning gamla skólans, sem hafi við ekkert að styðjast, enda sýni reynslan, þar sem hanar hafa ekki verið hafðir árum saman, að eins vel geng- ur þar með hjörðina og hjá hinum, sem haninn spígsporar fram og aftur alla daga. En vankantarnir við hænsnahald og hana-tilveru eru ýmsir, þar á meðal þetta, að þar sem hani er í hjörðinni, er yfirgnæf- andi meiri hluti eggja frjór allt árið og frjó egg — sem verzlunarvara — eru gölluð egg. Þau geymast aldrei vel og í hlýindum verða þau fljótt miður góð eða óhæf til ueyzlu, emkum ef þau fá að liggja í hreiðr- unum svo klukkutímum skiptir. Reikningsdæmi er sett upp til þess að sýna, hve mikið af fóðri fer til einskis gagns, en það nemur um 3.500 smálestum á ári, sem þessir hanar eta, þ.e.a.s. hanarnir, sem aldir eru fram yfir það, sem rýmilegt má telja til viðhalds stofninum. Hvernig mun þessu varið hér á landi Engar tölur eru til sem sýna fjölda hana hér, en hitt er vitað, að fjöldi manna hefir hana og örfáar hænur til þess að framleiða nokkur frjó egg á ári. Ætli menn hafi hug- leitt ,að haninn etur fóður fyrir meira en 100 krónur ,um árið? Það verða dýr egg, sem tekin eru til útungunar, ef þau eru svo sem 25 samtals á ári fyrir hvern hana. Fóður hanans kostar þá um 4 krónur á egg. Við skulum segja, að kjötið af honum borgi upp- eldiskostnaðinn, sem náttúrlega er þó ekk- ert nærri lagi. Ef einhver er enn, sem álítur, að nauðsyn- legt sé að hafa hana til þess að hænurnar verpi eggjum, er tímabært að horfa frá því áliti strax í dag. Tilraunir víða um lönd hafa sýnt, að hænurnar verpa heldur fleiri eggjum hanalausar en þegar hani er með, sennilega af þeirri ástæðu að þá eru þær einar um fóðrið.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.