Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1952, Blaðsíða 22

Freyr - 01.09.1952, Blaðsíða 22
304 FREYR Aðalfundur Stéttarsambands bœnda var haldinn að Laugarvatni dagana 30. og 31. ágúst s.l. Mun greint frá fundinum í útgáfu Stéttarsam- bands bænda, eins og venja er til, og verður það næsta hefti FREY’s. Smábœndafélögin dönsku eru 50 ára í ár. Það var árið 1902 að fyrsta smábændafélagið var stofnað og 50 ára afmælið var hátíðlegt haldið síðasta sunnudag í júní, á Skamlins- ásnum við Kolding. Þar mættust um 40.000 smábænd- ur til þess að gleðjast yfir unnum sigrum á þessu 50 ára skeiði. Þar voru ræður haldnar frá kl. 10 f. h. til kl. 16, þar á meðal fluttu fulltrúar frá Noregi, Sví- þjóð og Finnlandi kveðjur frá smábændum þessara landa. I ræðum ráðherra og annarra forystumanna var lögð áherzla á, að smábændurnir hefðu í ýmsu verið for- göngumenn meðal danskra bænda, einkum á sviði samvinnu. Formaður sambands danskra smábændafélaga er nú Lauritz Nielsen, en framkvæmdastjóri samband ins er Viggo Anclersen, búfræðikandídat. Báðir þessir aðilar voru fulltrúar félagsskapar síns á N.B.C.-fundinum hér í Reykjavík í ágústmánuði s.l. Bœndafarir. I síðasta hefti Freys var á það minnzt, að bændur skyldu taka upp stuttar ferðir og heimsækja hvorir aðra í stað þess að endasendast frá einum landshluta til annars, til lítils gagns. Á þetta hefir verið drepið áður, en áheyrn virðist sú ádrepa ekki hafa fengið. Hjá öðrum þjóðum eru bændafarir með öðrum hætti en hér. Akurganga danskra bænda fer þannig fram, að hópur bænda mætist og skoðar búskap eins eða tveggja bænda á einum degi, síðan ræða þeir um bú- skapinn yfir mat- eða kaffiborðum og skilja að kvöldi. Picnicfarir bænda vestanhafs eru með svipuðu sniði. Nokkrir bændur mætast ásamt héraðsráðunaut þeirra. Þeiv fara heim til einhvers bónda i grenndinni, hann undivbýr ekki komu þeirra, en tekur á móti þeim í hvcrsdagsklæðum, og þeir skoða allt úti og inni og ræða um fyrirkomulagið og svo um árangur starfsins. í þessum og öðrum löndum eru ferðir bændanna í þeim tilgangi gerðar, að auðgast að reynslu, eftir því er verða má, með því að grandskoða gerðir annarra. Vanskapnaður. Hjá Sigvalda Jóhannessyni, bóndua í Enniskoti í Víðidal, fæddi tvævetla í vor 2 samvaxin lömb. Voru á þeim 2 höfuð og hálsar, en framan við bóga voru þau samvaxin og var bara eitt brjóst og 2 framfætur. Úr því er ekki gott að átta sig á skapnaðinum, en helzt virðist annað lambið snúa upp í loft. Þegar kemur aftur um malir og þar fyrir aftan virðast koma nokkur skil aftur, þannig að afturfætur eru 4. Þessum vanskapnaði var haldið til haga og verður náttúrugripasafninu gefinn kostur á að hirða þetta einkennilega fyrirbæri, ef það vill. Ærin komst hjálparlaust frá þessu, þó undarlegt sé, en burðurinn hlýtur að hafa verið erfiður, því fóstrið var full 5 kg að þyngd og dautt þegar það fæddist. Verðlagsgrundvöllur, sem verðið á framleiðslu bænda er byggður á, hefir verið óbreyttur síðustu ár og er svo enn. Nýlega hefir verðlagsnefndin reiknað út verð á búvörum fyrir kom- andi ár. Hefir sá útreikningur leitt í ljós, að verðið hækkar um 12,35% miðað við verðlag síðasta verðlags- árs. Er þar aðallega um að ræða hækkun á kaupi. Sem kunnugt er, er kaup þeirra, sem landbúnað stunda, miðað við kaup hinna lægst launuðu verkamanna í bæjurn og þorpum, þ.e.a.s. ófaglærðra verkamanna. Útgefendur: Búnaðarfélag íslands og Stéttarsamband bænda. — Útgáfunefnd: Einar Ólafsson, Pálmi Kinarsson, Steingr. Steinþórsaon. — Ritstjóri: Gísli Kristjánsson. — Ritstjóm, afgreiðsla og innheimta: Lækjarg. 14 B, Reykjavík. Pósth. 102S. Sími 1957. BÚN AÐARBLAÐ Áskriftarverð FREYS er kr. 50,00 árgangurinn. — Prentsmiðjan Edda hi.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.