Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2005, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 9. JÚLl2005
Fréttir TSV
Árekstur í
göngum
Vægur þriggja
bfla árekstur varð
í Hvalfjarðargöng
unum á sjötta tímanum í
gær, skammt frá Akranes
hlið gangnanna. Þurfti af
þeim sökum að loka göng-
unum til suðurs í um hálf-
tíma á meðan rétt var úr
málunum og olli það nokk-
uri töf á umferð um göngin.
Engin meiðsl urðu á fólki
samkvæmt lögreglunni í
Reykjavík sem vill brýna
fyrir fólki að aka varlega í
umferðinni, sérstaklega
þegar haldið er út á land.
Afmæli á
Djúpuvík
Það eru mikil tímamót
á Hótel Djúpavflc á
Ströndum því í ár hefur
það verið starfrækt í tutt-
ugu ár. Einnig eru sjötíu
ár síðan sfldarverk-
smiðjan hóf starfsemi, en
hún var á sínum tíma
stærsta steinsteypta sfld-
arverksmiðja Evrópu. Eva
Sigurbjömsdóttir ogÁs-
bjöm Þorgilsson em eig-
endur hótelsins og gömlu
sfldarverksmiöjunnar.
Ýmislegt verður gert f til-
efni afmælisins.
Lífsslcrá
Dagur B. Eggertsson,
iæknirog borgarfulltrúi
„Mér fmnst hún mjög skynsam-
leg. Ég held aö þetta geti komiö
I veg fyrir mál eins og kom upp
I Bandaríkjunum fyrir skömmu.
Þar komu upp deilur um hvaö
ætti aö gera viö endalok lifs
þegar manneskja, sem heföi
veriö hægt aö úrskurða látna
samkvæmt islenskum lögum,
var haldið á lífi. Þetta leiddi til
deilna milli eiginmanns kon-
unnarannars vegarog foreldra
hins vegar. Ég tel ekki aö þetta
sé skrefí átt að llknardrápi.
Þvert á móti tel ég aö llfsskráin
geti stuðlaö aö upplýstari um-
ræðu og ákvöröunum viö
endalok líf. Markmiöiö htýtur
aö vera aö viröa sjálfsákvörð-
unarrétt og reisn einstaklinga.
Llfsskráin geturstuðlað aö þvi
efrétteraö staöiö."
Hann segir / Hún segir
„Mér finnst fagnaðarefni aö
þaö sé settur einhvers konar
rammi utan um óskir fólks
hvaö þetta varöar. Efasemdir
lúta helst aö því aö þetta
nálgist, eöa megi túlka, sem
skrefl átt aö llknardrápi. Ég tel
svo ekki vera. Ég held aö þetta
geti komiö I veg fýrir vanda-
mál. Efþessi llfsskrá tekur inn
hvort fólk vilji gefa llffæri, þvl
það erýmislegt nýtanlegt fyrir
aöra, svo sem lifur, nýra og
hornhimna I auga, þá er þaö
mjög gott. Ég sjálfvildi gjarn-
an setja sllkt niöur á blaö.“
Þórólfur Halldórsson sýslumaður á Patreksfirði liggur enn á málum sínum. Dæmi
eru um það að dráttur í málum hans hafi verið fimm ár. Rakin er dráttarsaga í
nokkrum málum sýslumanns hér að neðan.
Sýslumaður
sakaður
„Þegar lítið gerðist sendi ég erindi
til dómsmálaráðherra og sak-
sóknara og eftir tvær kærur vegna
framgangs sýslumanns í málinu
fengust fyrstu svör málsins."
^ 11 liSi|gjg»i
semagang
Samkvæmt íslenskum réttarfarslögum á brotaþoli að njóta að-
stoðar í ýmsum greinum á meðan mál sem hann varðar er rekið
og hann á jafnframt rétt á að fá upplýsingar um rekstur málsins og
framgang. Sýslumaðurinn á Patreksfirði á sér sögu í drætti mála.
Ragnar Jónsson hélt málverka-
sýningu á ísafirði f ágúst árið 2002.
Lögreglan gerði tvö verk eftir Mugg
upptæk vegna gruns um að þau
væru illa fengin. Ekkert var gert í
málinu þar til í janúar á
þessu ári, þegar það var
látið niður
falla. Ragn
ar hefur
sagt í j
samtali
við DV
að
aðar tilraunir.
Lögmaður Ragnars, Jón Magnús-
son fékk einnig lidar upplýsingar um
mál skjólstæðings síns og var ósáttur
við að fá ekki skipun sem verjandi
Ragnars. Hann telur réttarfarslög
hafa verið brotin í þessu máli.
Lögmaður hissa
„Ég var mjög hissa á
þessu,“ segir Jón Magnús-
son hæstarréttarlögmað-
ur. Hann fékk ekki skipun
sem verjandi Ragnars í
upphafi og segir það vera
einsdæmi á sínum starfs-
ferli. „Það var ný reynsla
fyrir mig að fá ekki skipun
sem verjandi skjólstæð-
ings míns,“ segir Jón.
Hann segir mikla
skriffinnsku til sýslumanns
hafa staðið yfir frá því að
málið kom upp. „Ekkert kom
frá sýslumanni fyrr en málið
var fellt niður," segir hann.
Þurfti tvær kærur
„Það var ekkert í
sambandi við
þetta mál sem
var í eðlilegum
farvegi," segir
Jón. Hann seg-
ir málið hafa verið fellt niður þegar
hann beindi skriffinnsku sinni til
æðri yfirvalda. „Þegar lítið gerðist
sendi ég erindi til dómsmálaráð-
herra og saksóknara og eftir tvær
kærur vegna framgangs sýslumanns
í málinu fengust fyrstu svör máls-
ins." Málið fellt niður.
Ekki náðist í Þórólf Halldórsson
sýslumann á Patreksfirði. Bjöm
Bjarnason dómsmálaráðherra segir í
svari við fýrirspurn DV að sýslu-
menn beri ábyrgð á rekstri embætta
sinna.
Aðgerðarleysi í öðrum mál-
um hjá embættinu
1. Aðgerðarleysi í rannsókn
Fimmtán ára stúlka lést þegar
keyrt var á hana á þjóðvegi 62 í
Bfldudal. Ekið var á hana á yfir 90
kflómetra hraða þar sem hámarks-
hraði var 35 kflómetrar. Slysið átti
sér stað síðastliðið sumar og hefur
faðir stúlkunnar, Hlynur Bjömsson,
gagnrýnt störf sýslumanns á síðum
DV. í samtali við blaðið í gær sagði
hann enn ekki niðurstöðu komna í
málið. Honum hafi þó verið tjáð að
dómur myndi falla einhvem tíman
áður en starfsmenn héraðsdóms
fæm í sumarleyfi.
Hann vildi að stofnaðuryrði sjóðurtil
bygginga á félagsheimili aldraðra að
honum látnum. Sigríður Guðbjarts-
dóttir vissi ekki hvar málið lægi en
ekkert hafði gerst í janúar. „Hann
dreymdi um að eldri borgarar fengju
aðstöðu út af fyrir sig," sagði Sigríður
í viðtali í janúar. Hún hefur enn ekki
fengið nein svör í málinu i þau fjögur
og hálft ár frá því það kom upp.
3. Setið á dánarbúi
Ólafur Bjamason lést í maí árið
2003. Enn hefur skiptastjóri ekki
verið skipaður samkvæmt upplýs-
ingum frá Héraðsdómi Vestfjarða.
„Skattaskuld sem Óli skildi eftir sig
hefur hækkað stöðugt. Hann vildi að
málið yrði klárað eftir andlát hans,"
segir Rögnvaldur Bjamason, bróðir
Ólafs heitins. Hann segist hafa sent
ógrynni af erindum til Þórólfs Hall-
dórssonar. „Mig undrar að opinber
embættismaður skuli geta hagað sér
svona. Þetta er
komið út fyrir
allt vel-
sæmi." ti
segir
hann.
Þórólfur Halldórsson
Fjöldi þeirra sem leitað hafa til
sýslumannsins eru óánægðir
með vinnubrögö.
2. Setið á dánarbúi
Kristinn Kristjánsson lést árið
2000. Honum hafði alla tíð verið
mjög annt um náungann og ætl-
aði að láta verðmæti sín renna
óskipt til Félags eldri borgara.
Jón Magnús-
son Ekkert gerð-
ist í máli skjól-
stæðings hans i
26 mánuöi.
Fimm ár frá flugslysinu í Skerjafirði
Aðstandendur reisa
minnisvarða
Katrln Fjeldsted, heimilislæknir
„Þetta er hugmynd okkar að-
standenda fómarlamba flugslyss-
ins," segir Friðrik Þór Guðmunds-
son, sem missti son sinn í hinu
hræðilega flugslysi í Skerjafirði fyrir
fimm ámm síðan. „Minnisvarðinn
verður afhjúpaður þann sjöunda
ágúst næstkomandi, en þá verða
fimm ár frá því slysið varð."
Hverfisráð Vesturbæjar, menn-
ingar- og ferðamálaráð, skipulags-
ráð og borgarráð hafa öll samþykkt
uppsetningu minnisvarðans. „Þetta
hefur gengið greiðlega í gegnum
stjómkerfið og ekkert nema gott um
það að segja."
Að sögn Friðriks em það að-
standendumir sem kosta minnis-
varðann en Reykjavíkurborg tekur
að sér uppsetninguna. Minnisvarð-
inn mun að öllum líkindum vera um
tveggja metra há stuðlabergssúla
með koparskildi á
þar sem skrifað-
ur verður við-
hlítandi texti.
Við súluna
verður einnig
bekkur þar sem
fólk getur sest
niður, hugleitt og
minnst. Minnis-
varðinn verður stað-
settur við Skerjaförð til
móts við slysstaðinn.
Friðrik Þór Guðmundsson
Missti son sinn I flugslysinu.Að-
standendur hyggjast reisa
minnisvarða um hina látnu.
Sumarbústaðaþjófar játa
Tvö innbrot í sumar^
bústaði leyst
Samkvæmt lögreglunni á Selfossi
teljast tvö af níu innbrotum í sumar-
bústaði leyst. Innbrotsalda í sumar-
bústaði í Amessýslu hefur geisað nú
í sumar. Sömu innbrotsþjófarnir
áttu aðild að þeim tveimur innbrot-
um sem teljast leyst. Þeir játuðu brot
sitt við lögreglu. Þetta em strákar á
aldrinum 15 til 17 ára og em góð-
kunningjar lögreglu. Að sögn lög-
reglunnar á Selfossi vom þeir líklega
að fjármagna neyslu. í innbrotunum
var ekki mikið um bein skemmdar-
verk heldur var gengið frekar hreint
til verks. Strákamir stálu aðallega
rafmagnstækjum og áfengi. Ekki
virðast strákarnir vera vanir í sínu
fagi, að brjótast inn í sumarbústaði,
því lögreglan hafði orð á því að þeir
hefðu átt í vandræðum með að rata
Rötuðu ekki heim
Samkvæmt lögreglunni
áttu strákarnir sem
frömdu ódæðisverkin
erfitt með að rata heim.
til baka til Reykjavfkur.
Heimildir blaðsins benda til þess
að þessir drengir séu þeir sömu og
stóðu að innbroti sem DV greindi frá
í júní. Þá var stolið heimabíói,
hljómtækjum, 28“ sjónvarpi, geisla-
spilara, áfengi og fleiru verðmæti.
Innbrotsþjófarnir vom svo bíræfnir
að þeir tóku kjöt út úr frystinum og
hugðust grilla.