Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2005, Side 8
8 LAUCARDAGUR 9. JÚLl2005
Fréttir DV
í gær féll dómur yfir Magnúsi Einarssyni sem myrti eiginkonu sína, Sæunni Pálsdóttur. Hann kyrkti
hana með því að bregða þvottasnúru um hálsinn á henni og herða að. í vitnaleiðslum í málinu
sagði Magnús að Sæunn hafi beðið um hjálp við að deyja. Dómurinn hafnar þeirri fullyrðingu.
Faðir Sæunnar segir dóminn vera skandal fyrir íslenskt réttarkerfi.
„Hann drepur dóttur
___f._____________________IÍUH
mina og sleppur lett
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær Magnús Einarsson í
níu ára fangelsi. Hann varð Sæunni Pálsdóttur, eiginkonu
sinni, að bana. Faðir Sæunnar undrast dóminn. Hann telur
að beita hefði átt fullum refsiheimildum og dæma Magnús í
16 ára fangelsi.
„Ég skil ekkert í þessum dómi,“
segir Páll Einarsson, faðir Sæunn-
ar, sem telur að Magnús hefði átt
að fá 16 ára fangelsi. Magnús hélt
því fram fyrir dómnum að Sæunn
hefði verið honum ótrú. Hann hafi
því verið í slæmu andlegu ástandi,
örvinglaður og gripinn ofsahræðslu
þegar hann framdi verknaðinn.
Dómurinn metur hið sálræna
ástand honum til refsilækkunar.
„Ég held að þetta hljóti að
hræða margar eiginkonur landsins;
að hvað sem er geti verið gert við
þær, bara ef maðurinn segir þær
vera ótrúar. Skandall," segir Páli.
Dómurinn er skandall
Páll var nýkominn úr fru frá
Ólafsvík með bömum Sæunnar
þegar DV færði honum tíðindin af
dómnum. Á Ólafsvík hafði Páll farið
Þrfr dómarar við Héraðsdóm
Reykjaness kváðu upp dóminn yfir
Magnúsi Einarssyni. Einn dómar-
anna er Guðmundur L. Jóhannes-
son. Dómar Guðmundar hafa áður
verið umdeildir. Árið 2004 refsaði
hann ekki manni að nafni Kjartani
Gunnarssyni sem fundinn var sekur
um að hafa beitt eiginkonu sfna of-
beldi. Kjartan var ákærður fyrir að
hafa ráðist að eiginkonu sinni, tekið
hana hálstaki og hrint henni til og
frá. Sjálfur játaði Kjartan að hafa
„tuskað hana tll." Kjartani var hins
vegar ekki refsað. Ástæðan var sú
að Kjartan hélt því fram fyrir dómn-
um að eiginkonan hefði haldið
framhjá sér. Þvf hafi konan verið
völd að barsmfðunum. Niðurstaðan
var skilorðsbundinn dómur.
Dómurinn vakti mikla reiði. Hæsti-
réttur komst sfðar að því að þegar
gögn málsins væru skoðuð „er
hvorki f Ijós leitt að konan hafi gefið
að veiða og siglt á kajak með böm-
um Sæunnarheitinnar. „Mér finnst
þetta einfaldlega vera skandall fyrir
íslenskt réttarkerfi," sagði Páll og
bætti við. „Hann drepur dóttur
mína og sleppur létt."
í ójafnvægi
Það var aðfaramótt mánu-
dagsins 1. nóvember 2004 að lög-
reglan í Kópavogi fékk tilkynn-
ingu um manndráp að Hamra-
borg 38. Lögreglumennirnir tveir
sem fyrstir vom á vettvang segja
að Magnús hafi beðið þeirra á
stigapallinum, greinilega í upp-
námi. Áður en Magnús hringdi í
lögregluna hafði hann hreinsað
burt vegsummerki. Hann hringdi
í prest áður en hann hringdi í lög-
regluna.
í vitnaleiðslum í málinu þann
25. maí sagði Magnús að um nótt-
ina örlagaríku hafi Sæunn
skyndilega komið upp í rúm til
hans í miklu uppnámi. Að sögn
Magnúsar var hún í sjálfsmorðs-
hugleiðingum og hafi í sífellu ver-
ið að biðja hann um að hjálpa sér
að deyja. Skyndilega hafi hún
brostið í grát og sagt honum allt
af létta af meintu framhjáhaldi
sínu.
Magnús sagði hræðslutilfinn-
ingu hafa gripið um sig og þegar
Sæunn bað hann enn einu sinni að
Ofbeldismönnum
ekki refsað
ákæröa tilefni til árásarinnar né að
til átaka hafi komið milli þeirra."
Kjartan fór þó ekki f fangelsi heldur
fékk hann þriggja mánaða skilorðs-
bundínn dóm. Jón Steinar Gunn-
laugsson hæstaréttardómari vildi
sleppa Kjartani algjörlega vegna
neikvæðrar fjölmiðlaumfjöllunar
um hans mál.
Nú virðist Guðmundur Jóhannesson
dómari hafa beitt svipaðri röksemd
arfærslu um mál Magnúsar Einars
sonar. Við það er Páll Einarsson,
faðir Sæunnar, ekki sáttur.
hjálpa sér að deyja hafi hann gripið
þvottasnúru og þétt fast að hálsi
hennar. Þessa frásögn telur dómur-
inn vera ótrúverðuga.
Andlegt ójafnvægi
Áverkar á líki Sæunnar, um-
merki í íbúðinni og framburður ná-
granna benda til þess að átök hafi
átt sér stað skömmu fyrir dauða
Sæunnar og það fær stoð í krufii-
ingsskýrslu. f málsniðurstöðum
segir að Magnús hafi verið reiður,
afbrýðisamur og niðurlægður og
ekki fari á milli mála að hann hafi
verið í andlegu ójafnvægi og ráð-
villtur umrædda nótt.
Ekki ásetningur
Að mati dómsins er talið
„ósannað að ákærður hafi haft fyr-
irfram mótaðan ásetning til að
bana konu sinni." Það er mat rétt-
arins að um skyndiásetning hafi
verið að ræða sem hafi mótast rétt
fyrir kyrkinguna.
Eins og áður hefur komið fram
var ástand Magnúsar þegar hann
framdi verknaðinn talið honum til
refsilækkunar. Það er hins vegar
talið honum til refsiþyngingar að
hann brást ekki við strax eftir að
honum rann reiðin. Þá fann hann
ennþá Ufsmark með Sæunni. í stað
þess að hringja á neyðaraðstoð af-
máði hann vegsummerki.
Um tíu milljónir í skaðabæt-
ur
Að auki við m'u ára fangelsisvist-
ina var Magnús dæmdur til að
greiða dóttur sinni rúmlega fimm
milljónir í skaðabætur, syni sínum
tæpar sex milljónir og foreldrum
Sæunnar sitthvora milljónina. Að
auki þarf hann að greiða veijanda
sínum tæpa milljón í málsvamar-
laun og annan sakarkostnað upp á
tæpa eina og hálfa milljón.
johann@dv.is
I Kjartan Ólafsson |
IBarðikonusínaen
I var ekki refsað.
ÓMSÁllTt
„Mér finnst þetta einfaldlega vera
skandall fyrir íslenskt réttarkerfi/
"■'W'
t
I! h
<
Innsýníhuga
morðingja
I tengslum við rannsókn máisins
gekkst Magnús undir geðrann-
sókn. Hana framkvæmdi Sigurð-
ur Páll Pálsson geðiæknir. Sig-
urður sagði Magnús ekki hafa
„prófíl" afbrotamanns og taidi
líklegt að andlegur veikleiki hans
hafi stuðlað að því að sú staða
kom upp að hann að lokum
missti stjórn á sér. Það var mat
Sigurðar að taka beri mark á frá-
sögn Magnúsar um atburðarrás-
ina að mörgu leyti. Sigurður taldi
Magnús vera sakhæfan.
Eftirfarandi er sáifræði-
greining Sigurðar á Magn-
úsi:
Mjög innhverf-
ur og undirlátssamur, þóknast
fólki og gerir allt til að forðast
deilur. ▼
Háðurkonu
sinni og reynir að gera henni allt
til hæfis.^
Kona vill
skilnað. Grunur um framhjáhald
konu. ▼
Kona segir frá framhjá-
haldi og lýsir kynlifi með öðrum
mönnum.V
Afbrigðilega félags-
fælinn. Lítil sjálfsvirðing. Erfitt
að tjá tilfinningar. ▼
Kvíðinn, tortrygginn,
ráðalaus, óöruggur og niður-
lægður, bælir niður reiði og reyn-
ir að telja sér trú um að allt sé í
lagi. ▼
Reiði, afbrýðisemi og nið-
urlæging. Innibyrgð reiði brýst
út.
Missir stjórn á reiði sinni
og verður konunni að bana.
. • m
8& j|| ‘
Guðmundur Jóhannes-
son dómari Dæmdilmáli
Magnúsar Einarssonar og
Kjartans Ólafssonar.
Magnús og Sæ-
unn Áyfirborðinu
lékallt ílyndi hjá
þessum ungu hjón-
um. Undirniöri voru
þó vandræði ísam-
bandinu sem end-
uðu með morðinu á
Sæunni.