Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2005, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST2005
Fréttir DV
Árni Johnsen, fyrrverandi þingmaður, gefur þrjár mismunandi afsakanir fyrir því sem vitni kalla árás á
Hreim Örn Heimisson söngvara. Árni segir í yfirlýsingu að full sátt hafi náðst í málinu. Því neitar
Hreimur. Hann segir Árna segja rangt til um málsatvik. Málinu er ekki lokið.
Arni Johnsen
Eftirað hanrt sagði af sér þing-
mennsku i kjöifar þess aðhafa
lagt iygavef fyrir fjölmiðla og al-
menning til að hylja brot sin.
Eins og komið hefur fram sló Árni Johnsen Hreim Heimisson,
söngvara Lands og sona, á þjóðhátíð í Eyjum á sunnudaginn var.
Árni hefur gefið þær skýringar að um óviljaverk hafi verið að
ræða. Hreimur gefur lítið fyrir útskýringar Árna á því sem átti sér
stað í Herjólfsdal.
„Hann hringdi í mig og baðst af-
sökunar," segir Hreimur Heimisson.
„Hann fær prik fyrir að hafa mann-
dóm til þess og ég tek afsökunina
góða og gilda. Það breytir þó samt
sem áður ekki
„Maður á bara ekki til
orð yfirþetta."
og ég er ennþá 100% ósáttur við
þetta atvik.‘' Hreimur er ekki sáttur
við þær skýringar sem Árni gaf fjöl-
miðlum þess efnis að hann hefði
með andlitið á hönd hans.
3r búinn að tala við alla sem
voru með mér uppi á sviði og við
erum allir sammála um að þetta
sé ekki rétt. Þetta er náttúrlega
bara fáránleg útskýring."
Þrjár útskýringar
Hreimur segist hafa heyrt
þrjár útskýringar á þessu at-
viki frá Árna Johnsen. „Hann
hefur sagt að hann hafi verið
að teygja sig í hljóðnemann og
rekist í mig, hann hefur sagt að
ég hafi gengið á hendina á sér
til að búa til „tragedíu" og svo
hef ég heyrt að hann hafi verið að
reyna að grípa mig. Ég stend fastur
á mínu enda sáu allir viðstaddir
að engin af þessum skýring-
um er nálægt því sem
gerðist."
Um var
að ræða
frá
Johnsen.Að sögn
vitna var hannj sjokki"
eftir atvikið.
Nafnlausar hótanir sendar
í síma Hreims
Þú ættir að skammast þín!
Þú ert að koma óorði á fjöl-
skyldu hans, hefur hann ekki
gengið ígegnum nóg?
Hið rétta á eftu að koma íljós
Ég vona að éghitti aldrei aftur
mann eins og þig á lífsleiðinni!
Éghélt að égþekkti þig.
Þú veist hvað gerist þegar þú
kemur til Eyja.
þriðju árás Áma Johnsen á tónlistar-
mann á þjóðhátíð.
Nafnlausar hótanir
Hreimur segist vera orðinn
þreyttur á þessu máli og þá sérstak-
iega vegna þess að honum séu farn-
ar að berast hótanir í formi SMS-
skilaboða. „Ég hef verið að fá miður
falleg skilaboð í símann minn, mað-
ur á bara ekki orð yfir þessu. Þetta
eru nafnlaus skilaboð sem send eru í
gegnum heimasíðu OgVodafone
þannig að þannig að þetta er frekar
óhugnanlegt allt saman. Ég fór með
farsímann minn til OgVodafone
áðan til þess að láta þá rekja þessi
skilaboð og sjá hvort þau hafi öll ver-
ið send úr sömu tölvu sem að ég tel
mjög líklegt. Þetta eru skilaboð eins
og „þú veist hvað skeður ef þú kem-
ur til Eyja aftur" og „hið rétta á eftir
að koma í ljós". Ég er reyndar alveg
sammála því síðamefnda því að ég
vona að sannleikurinn komi í ljós."
Hreimur hyggst þrátt fyrir allt
ekki kæra árásina.
hordur@dv.is
Fréttatilkynnig
ÁrnaJohnsen
Vestmannaeyjum 3. ágúst
Yfírlýsing vegna frétta af Þjóð-
hátíð Vestmannaeyja.
Birtist vinsamlega óstytt.
Vegna fréttaflutnings af atviki á
Brekkusviði á Þjóðhátíð í Herjólfs-
dal í Eyjum í lok vel heppnaðrar
Þjóðhátíðar og brekkusöngs s.l.
sunnudagskvöld, vill undirritaður
gefa eftirfarandi yfirlýsingu:
Vegna misskilnings á milli full-
trúa í Þjóðhátíðamefnd og kynnis
sem jafnframt er dagskrárstjóri
ásamt Þjóðhátíðamefnd og stjórn-
andi Brekkusöngs, var kynni ekki
kunnugt um að hópur söngvara úr
dagskrá Þjóðhátíðarinnar, ætti að
syngja kveðjulag að loknum
brekkusöng, en venjan er að þegar
brekkusöng lýkur með íslenska
þjóðsöngnum, standi allir þjóðhá-
tíðargestir upp í brekkunni eins og
vera ber og síðan er kveikt á blys-
um um hálfan Heijólfsdal og flug-
eldum skotið upp að því loknu.
Lagið sem hópurinn söng kom
hins vegar strax á eftir brekkublys-
unum eða um tveimur mínútum
eftir að brekkusöng lauk. Þá var
enn verið að slökkva í varðeldin-
um og hreinsa leyfar varðeldsins af
danspalli Brekkusviðsins og fu.ll-
búinn slökkviliðsbíll var á dans-
pallinum beint fyrir framan sviðið
og skyggði á það. Þá snaraði kynn-
ir sér upp á svið og ætlaði að hliðra
til þessu atriði sem var ekki á dag-
skrá hans sem kynnis, en þetta
taldi hann nauðsynlegt af öryggis-
ástæðum, því venjan er sú að um
leið og dagskrá byrjar aftur á upp-
lýstu Brekkusviðinu eftir brekku-
söng með sviðið myrkvað, þá
flykkist unga fólkið á danspallinn
og ef slíkt hefði hent með pallinn
óhreinsaðan og slökkviliðsbílinn
við sviðið hefði mikil hætta getað
skapast. Þegar kynnir þreif síðan í
hita leiksins í þröng á sviðinu til
hljóðnema af þessum sökum að
loknum flutningi kveðjulags rakst
hann slysalega á Hreim söngvara
sem kom að hljóðnemanum í
sömu mund.Það var því sfður en
svo ásetningur að bregða Hreimi
söngvara. Þjóðhátíðarkynni er
ljúft að biðja Hreim afsökunar á
þessum óvænta árekstri og reynd-
ar gerði hann það einnig á
Brekkusviðinu þegar atvikið átti
sér stað.
Dagskrá Þjóðhátíðar Vest-
mannaeyja er metnaðarfull og
margslungin og stundum þarf að
grípa skjótt í taumana á 10 þúsund
manna hátíð, en þá er hætta á
hnökrum sem alltaf hefur verið
hægt að leiðrétta sem betur fer.
Undirritaður harmar að þetta
atvik , skyldi koma upp eins og
skrattinn úr sauðaleggnum, en við
félagar Hreimur öm Heimisson
söngvari emm sammála um að
þetta mál sér úr heiminum í fullri
sátt. Það hefur Hreimur staðfest
eftir samtal mitt við hann um þetta
bréf. Hittumst í Heijólfsdal að ári.
Árni Johnsen kynnir og dag-
skrárstjóri á Þjóðhátíð Vestmanna-
eyja.