Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2005, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2005, Qupperneq 14
74 FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST2005 Fréttir DV Lokað á ABC í Rússlandi U tanríkisráðuneyti Rússlands gaf út yfirlýsingu á þriðjudag um að samn- ingar við bandarísku sjón- varpsstöðina ABC yrðu ekki endurnýjaðir. Yfirlýsingin kemur í kjölfarið á viðtali sem sjónvarpsstöðin birti við tjetsneska stríðsherrann Shamil Basayev í þættinum Nightline. „Greinilega er verið að styðja málstað hryðj uverkamanna,“ segir í yfirlýsingunni. Einnig kom fram að rússnesk stjómvöld töldu að beinar ógnanir við rússneskan almenning hefðu birst í viðtalinu. ABC svarar Rússum David Westin, forseti ABC, harmar tilraunir rússnesku ríkisstjórnar- innar til ritskoðunar. „Við getum ekki leyft neinni ríkisstjóm að tmfla okkur við aö segja frá fréttum vel og vand- lega." Hann tók hins vegar fram að hann skildi afstöðu rússnesku þjóðarinnar og tók fram að hann styddi ekki hryðjuverkamenn. Shamil Basayev hefur lýst ábyrgð sinni á mörgum af verstu hryðjuverkum sem dun- ið hafa á rússnesku þjóðinni. Kínverjar brenna japanska fánann á strætum. Japanir endurreisa hernaðarveldi sitt. Skuggi vaxandi þjóðernishyggju færist yfir Asíu. Ritskoðun einkennir sam- skipti stórveldanna tveggja í Asíu þar sem blikur eru á lofti. Eftir tvær vikur munu íbúar Asíu fagna því að sextíu ár eru liðin frá lokum seinni heimsstyijaldarinnar. Á sama tíma eru blikur á lofti í heimsálfunni. Japan vinnur nú að því að endurreisa hern- aðarveldi sitt, þjóðernishyggja vex dag frá degi og spennan milli Kína og Japan stigmagnast. í síðustu viku vann öfga hægri- maður í Japan skemmdarverk á minnisvarða um seinni heimsstyrj- öldina. Hann reyndi að afmá orðið mistök af friðarminnisvarða í Hiro- sima þar sem er letrað: „Megi sálir hinna látnu hvíla í friði og gerum aldrei þessi mistök aftur." Fjölmiðlar í Asíu hafa tekið þessi skemmdarverk sem dæmi um hina vaxandi þjóðerniskennd. Stríð og hernaður er aftur orðið ofarlega í huga Japana. Hatur í Asíu í Kína magnast hatrið á Japan dag frá degi. Kommúnistastjórnin hefur ákveðið að eyða 50 milljónum bandaríkjadala í að gera upp safn í minningu þeirra sem létust í Nanj- ing árið 1937 þegar japanskir her- menn drápu um 100.000 kínverska borgara. I Japan hins vegar hefur skólabókum verið breytt. Kaflanum um þessa hræðilegu árás hefur ver- ið eytt. Deilur um söguskoðun í Japan og Kína hafa vakið mikla reiði. Á síðasta ári mótmæltu kín- verskir stúdentar við japönsk sendiráð, æfir yfir hvernig Japan túlkar atburði úr stríðinu milli Jap- ans og Kína á síðustu öld. Harkaleg ritskoðun Sjálfir stunda Kínverjar harka- lega ritskoðun. Nýlega kom út bók- in Mao eftir metsöluhöfundinn Jung Chang, sem skrifaði Villta svani. Sú bók er bönnuð í Kína þar sem hún þykir varpa skugga á hinn látna kommúnistaleiðtoga og engar líkur eru á að nýja bókin fái út- breiðslu í fjölmennasta ríki heims. I bókinni er varpað ljósi á grimmúð- lega stjórnartíð Maos þar sem fleiri létust á friðartímum en í allri seinni heimsstyrjöldinni. Mao sjálfur hafi verið eiginhagsmunaseggur sem lét bera sig á börum í göngunni löngu og fyrirleit bændur og verkamenn sem hann taldi ekki gagnast bylt- ingunni. Umdeilt stríð Stór kafli bókarinnar er einnig tileinkaður stríðinu milli Japans og Kína. Þar kemur fram að sú við- tekna skoðun, að Rauði her komm- únistaflokksins hafi barist hat- rammlega á móti Japönum, sé röng. Þeir hafi forðast átök við Jap- anina og notað tímann í staðinn til að styrkja sig í sessi og fremja fjöldamorð, í skjóli pólitískra hreinsana, á yfirráðasvæðum sín- um. Þannig dóu mun fleiri, hund- ruð þúsunda, í hreinsunum komm- únistaflokksins í svæðum eins og Yenan, á meðan her Chiang Kai- Shek barðist á móti Japönum einn síns liðs. Vilja gerast herveldi Skrif af þessu tagi fá ekki náð fyr- ir augum kínverskra stjórnvalda. f staðinn eru endalausar deilur milli Japana og Kínverja. Einir 290 jap- anskir kennarar sem létu nemend- ur sína syngja japanska þjóðsöng- inn undir fána þjóðarinnar í byrjun hvers skóladags, hafa verið harð- lega gagnrýndir. Hidekazu Inubus- hi, pólitíkus og leiðtogi aðgerð- anna, sagði við japanska fjölmiðla að slík innræting væri nauðsynleg þar sem menntun eftir seinni heimsstyrjöldina í Japan hefði gert það að verkum að krakkar væru ekki nægilega stoltir af föðurland- inu. Japanir vilja losna undan viðjum sektarkenndar og gerast herveldi á ný, líkt og Kínverjar, sem skapar umtalsverða spennu í Asíu. Eiturlyf brennd í Pakistan Tollverðir í Pakistan brenndu í gær 25 tonn af hassi, heróíni og öðrum eit- urlyfjum sem var virði mörg hundruð milljóna ís- lenskra króna. Aðgerðin er liður í átaki gegn eiturlyfj- um og innflutningi þeirra í Pakistan. vírrS odt^ia | k i Adidas hyggst kaupa Reebok Þýski íþróttavörurisinn Adidas hyggst kaupa Ree- bok, einn helsta sam- keppnisaðila sinn. Talið er að þetta sé liður í vaxandi samkeppni á íþróttavöru- markaðnum og með þessu nálgast Adidas mjög sína helstu keppinauta í Nike. Adidas bauð tæpa 242 milljarða íslenslaa króna í Reebok-risann. Spennan eykst milli Japans ng Kína Stríð og hernaður er aftur orðinn ofarlega í huga Japana.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.