Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2005, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2005, Blaðsíða 26
DV 26 FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST2005 Kristín Ásta Ólafsdóttir og Óli Ragnar Kolbeinsson eiga yndislegan dreng Daníel Dag,fimm ára, og eiga von á öðru barni í lok nóvember. Þau létu pússa sig saman íyrir ári og rifja upp daginn góða fyrir Magasín. Mikilvægast að vera hreinskilin og bera virðingu hvort fyrir öðru Yndislegur dagur Kristln Asta og Óli Ragnar gleyma aldrei brúðkaupsdeginum í fyrra. Danlel Dagursonur þeirra naut hans llka þó hann hafi ekki treyst sér til að vera hringaberi eins og til stóð. „Vlð giftum okkur 17. júlí 2004 í Mosfells- kirkju en það er æðisleg pínulítil kirkja alveg uppi í fjallinu í Mosfells- dalnum," segir Kristín Ásta Ólafs- dóttir og heldur áfram: „Kirkjan er svo lítil að ég var að hugsa um að labba tvisvar sinnum inn kirkjugólfið," segir hún hlæjandi. Kristín og Óli kynntust þegar þau unnu saman á BSÍ en þau höfðu bæði verið skotin hvort í öðru í tölu- verðan tíma að eigin sögn. „Við þorðum aldrei að gera neitt í því," segir Kristín og brosir. „En ástin tók svo völdin í vinnupartýi og þá var ekki aftur snúið eftir það.“ Skreyttu salinn sjálf „Þetta gekk allt ofsalega vel," seg- ir Kristín. „Við skreyttum salinn sjálf með hjálp foreldra okkar, skyld- menna og vina," útskýrir hún." Og það gekk eins og í sögu. Við lögðum áherslu á að þetta yrði sem skemmti- legast og fijálslegast fyrir okkur og alla gestina. Vildum gera viðburðinn bæði afslappaðan og góðan, sem hann varð svo.“ Áhersla lögð á vellíðan „Óli keypti sér rosalega fíri jakka- föt og við keyptum á strákinn ofsa- lega flott brún hör kína jakkaföt. Ég mátaði kjóla á brúðarkjólaleigum en sá fljótt að það var eÚd fyrir mig,“ segir hún einlæg. „Síðan fór ég mður í Gust og hún saumaði á mig kjól þar eða topp og pils sem var algjört æði,“ bætti hún við ánægð. „Ég vildi geta notað fötin aftur seinna meir,“ segir Kristín. „Allir voru voðalega fínir þennan góða eftirminnilega dag en við lögðum mikla áherslu á að okkur liði vel.“ Talið berst að fjölskyldunni. „Við hefðum ekki getað gert þetta án fjöl- . skyldunn- ar. Þau hjálpuðu okkur með allt bara og á meðan við vorum uppi í bústað daginn eftir fóru þau öll og gengu frá í salnum, algjör- ar perlur. Vinir mínir fóru fyrir okkur upp í bústað með dótið okkar og voru búin að skreyta, setja freyðivín, súkkulaði og ávexti í ísskápinn og svo vom þau búin að fylla rúmið af hrísgrjónum," segir hún og hlær. „Þau urðu aðeins að hrekkja okkur sem var bara skemmtiiegt. Ekki amalegt að þurfa að byrja á því að ryksuga á brúð- kaupsnóttina," segir hún og skellir upp úr. „Allir lögðust hreinlega á eitt og vom tilbúnir að gera allt fyrir okk- ur." Töfrar mynduðust í kirkjunni Kristín segir mikið stuð hafa verið í kirkjunni. „Hera Björk söng og það var klappað fyrir henni eftir hvert lag. Enda frábærlega sungið hjá henni. Hún söng svo „All you need is love" þegar við löbbuðum út. Allir kirkju- gestir klöppuðu með," segir hún þegar hún lýsir töfrunum sem þau upplifðu þessa stund. „Svo var bara mikið hlegið og mikið klappað enda presturinn, hann Vigfús Þór Árna- son, mjög skemmtilegur.“ Villtur gróður í myndatöku „Dam'el Dagur sem var að verða 4 ára þá átti að vera hringaberi en leist ekkert á allt þetta fólk," segir hún og brosir. „Kona bróður Óla hljóp í skarðið og kom með hringana. Kannski ekki eins rosalega krúttlegt að hafa 24 ára hringabera," segir hún skellihlæjandi. „Svo fómm við í myndatöku í kvosinni hjá Reykjalundi í Mosó þar sem vom gaml- ar brýr og villtur gróður út um allt," segir hún og sýnir blaða- manni myndimar. .Æskuvinkona Óla og kærasti hennar tóku mynd- imar sem vom frábærar." „Við fengum veitingar frá Veisl- urmi sem vom alveg meiriháttar, svona smáréttir og tapas," segir Kristín ánægð þegar talið berst að veisluhöldunum. „Skálað var í freyðivím í byijun veislunnar. Allir gestimir höfðu raðað sér upp þegar við gengum inn í salinn og lagið „Can’t walk away" með Herbert var spilað undir," segir hún og brosir innilega. „Það vom haldnar ræður og við nutum þess að borða og spjalla. Svo var æðisleg frönsk súkkulaðikaka í eftirrétt sem mamma Óla bakaði og hún var sko algjört sælgæti," segir hún. Síðust úr veislunni „Eftir ræðurnar og alla leikina, steggjavideó og frábæran söng frá saumaklúbbnum tókum við léttan dans við lagið Time of my Life úr Dir- ty Dancing," segir Kristín og nær að lífga stemmmnguna við fyrir blaða- manni við lýsingamar. „Og það komu nánast allir út á gólf með okk- ur og mynduðu svo stóran hring utan um okkur sem var magnað. Svo eftir það vom bara allir úti á gólfi og tónlistin samsett af gömlum diskói, 80’s, Eurovision og allskonar skemmtilegum lögum fyrir alla. Enda var dansað það sem eftir var kvöldsins og þá vom sko allir úti á gólfi,” útskýrir hún ánægð með veisl- una. „Það var svo heitt þennan dag og inni í salnum vom margir komnir út á þak að dansa. Við fómm svo síðust veislunni og beint upp í sum- arbústað. Daginn eftir komu svo foreldrar okkar og systkfrú og við borðuðum öll saman. Það var virki- lega góður endir á yndislegum degi.” Heillatalan sjö fylgir ávallt „Vigfús minntist á það í kirkjunm að það væri skemmtileg tilviljun að við hefðum verið saman í 7 ár því tal- an 7 er heillatala í biblíunni," segir þessi fallega móðir og heldur áfram: „Og eftir brúðkaupið áttuðum við okkur meira á því hvað talan 7 er okkur hliðholl því við giftum okkur 17.7. og höfðum verið saman í 7 ár. Óli og drengurinn okkar eiga afmæli 17. og ég á afrnæli 27. Það er 7 í öllu í kringum okkur. Það fyndnasta var að þegar við komum upp í bústað eftir brúðkaupið sáum við okkur til mik- illar gleði að Við vomm í bústað nr. 7," segir hún geislandi af ánægju og gleði. Eftir brúðkaup kemur hjóna- band „Bara að njóta dagsins og hafa þetta eftir sínu höfði og hafa gaman af," segir Kristín þegar rætt er um brúðkaup og tilstandið sem tengist því. „Mikilvægt er að njóta svo fífsins og tala saman ef eitthvað bjátar á, vera hreinskilin og bera virðingu hvort fyrir öðm," segir hún einlæg. „Muna svo bara að á eftir brúðkaupi kemur hjónaband og það er hús sem reisa verður daglega eins og einhver komst svo vel að orði," segir þessi geislandi fallega bamshafandi móð- ir, ánægð með lífið og tilvemna. Sigurður Árni Þórðarson prestur ráðleggur verðandi brúðhjónum Mikilvægara að vera sú rétta en að ná í þann rétta „í kveðju til brúðhjóna sem við prestar afhendum em nokkrar heil- ræðastiklur," svarar Séra Sigurður Árni Þórðason aðspurður um heil- ræði. „Gott hjónaband verður ekki af sjálfu sér. Það krefst alúðar og að- hlynningar," segir Sigurður einlæg- ur. „Smámálin skipta líka miklu máli. Það að haldast í hendur og muna að muna að segja „ég elska þig“ minnst einu sinni á dag. Fara aldrei að sofa reið eða ósátt og setja sér sameiginleg markmið. Ræða gildi og setja samræma þau í heimil- ishaldinu,” segir hann og heldur áfram: „í hjónabandinu er afar mkil- vægt að standa saman og mæta saman því sem að höndum ber.“ „Hjónabandið felur í sér örlæti á hrós og uppörvun" segir Sigurður Árni. „Þakklæti og hugulsemi nærir ástina og mikilvægt er að varðveita trúna, vonina og kærleikann og mynda keðju elsku og umhyggju um fjölskyldu og vini.” „I hjónabandinu er miicilvægt bæði að kunna að fyrir- gefa og gleyma og stuðla að því að makinn vaxi og þroskist. Að ganga í hjónaband er eldci fólgið í því að ná ið i 1 þeim rétta ur að vera sú rétta og sá rétti," segir þessi ein lægi prestur og við þökkum honum góð heilræði til handa brúðhjón- um. Treystið Traust. Berið traust til maka ykkar. Sleppið afþeim hendinni þarsem það á við en bindið þau ekki við ykkur. Það tryggir að þau verða alltaftil staðar og veita ykkur sama frelsi í sambandinu. Gleymið ekki eigin þörfum samhliða tryggð og ástúð. Góð hjónaband hafa skýrar hugmyndir um tilgang og markmið sambandsins. Byggið sam- bandið alfarið á traustum grunni. Hlæið Kímni og lífsgleði. Takið llfið mátulega alvarlega. Þeir sem kunna að hlæja og gleðjast og hafa gaman afverkefnum og hindrunum sem þeir takast á við líf- inu eiga auðveldara með að fínna lausnir. Veltið ykkur ekki uppúr óþarfa áhyggjum og gefíð gleðinni í lífí ykkar meira vægi. Hvetjið Ahugi. Hvetjið elskhugaykkar til góðra verka með því að sýna honum áhuga. Fylgist með verkefnum þeirra, námi, tómstundum, vinnu og félögum. Verið dugleg við að spyrja og hlusta á manneskjuna sem skiptirykkursann- arlega máli. Virðið Virðing fyrir eiginleikum makans er mikilvæg. Gerið ykkur grein fyrir sér- kennum manneskjunnar sem þiö elsk- ið. Góðir makar gæta þess að móta ekki maka sinn eftir eigin geðþótta. Virðið eiginleika annarra og leyfíð þeim að njóta sín.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.