Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2005, Page 38

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2005, Page 38
38 FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST2005 Síðast en ekki síst J3V Dýr dropinn. Þrumuveðurog haglél á Suðurlandi íbúar Suðurlands upp- lifðu þrumuveður og haglél i gær sem er frekar óvenjiílegt miðað við árstíð. Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur segir þó alltaf mega búast við slíku veðri. „Það er svolítið kalt í háloftunum og ágætur hiti í neðri loftlögunum og við það verður uppstreymi og þá geta myndast mis- hleðslur í ískristöll- um í háloftunum og þá verður skammhlaup. Þetta skammhlaup leiðir tÚ þess að það myndast elding og við það losn- ar gríðarlegt magn af hitaorku. Þessi Ha? hiti nýtist síðan við að bræða þenn- an ís og þá myndast alveg ofboðsleg- ar dembur og í sumum tilvikum ef að varminn er ekki nægur geta sumir af þessum ískristöllum fallið til jarðar sem haglél. Því má búast við hagléli hvar sem er á jörðinni hvenær ársins sem er vegna þessa.“ Þrumuveður er þó al- gengara en fólk heldur. „Að jafnaði eru þrumudagar á Suðurlandi einn til fjórir en einn þrumudagur á Norður- landi annað hvert ár,“ segir Sigurður. Hann segir fólk ekki þurfa að örvænta. „Ég mæli ekki með því að fólk setji nagladekk- in undir bílinn, fólk á bara að halda sínu striki.“ Hvað veist þú um Kristján Þár Jálíusson 1. Hvað er Kristján Þór gamall? 2. Hvar er hann bæjar- stjóri? 3. Hvar var hann áður bæj- arstjóri? 4. Hvaða flokki tilheyrir hann? 5. Hvað er hann menntað- ur? Svör neðst á síðunni Hvað segir mamma? „Já, hún er dugnaðar- kona/'segir Soffia Er- lendsdótt- ir, 78 ára, um dóttir sína Láru Vilbergs- dóttur, skipuieggj- anda Ormsteitis á Austurlandi.„Hún er aiveg eðaldóttir og við erum í mjög góðu sambandi. Hún á líka tvö frábær börn, barnabörnin mín sem eru alveg yndisleg. Ég veit nú ekki hvort ég ætia að fara á hátlðina sem Lára er að skipuleggja. Er orðin göm- ul og hölt og ómöguleg. Ætli ég verði ekki heima og hlusti á RÚV. Það er miklu betra en gargið í hinum stöð- unum. Ég kaupi líka bara Morgun- blaðið þó mér finnist það vera orðið nokkuð þunnt. Annars er ég ánægð meðhana Láru, hún var góður krakki og er til sóma í öllu sem hún tekursér fyrir hendur." Lára Vilbergsdóttir stendur i stór- ræðum á Austurlandi. Hún hefur skipulagt hátiðina Ormsteiti, sem haldin er til heiðurs Lagar- fljótsorminum. Hátiðin hefst 12. ágúst og stendur til 20. ágúst. Flott hjá Gisla Marteini að heilla Reykvíkinga upp úrskónum með kjörþokkanum einum saman og stela senunni í borginni. Glsli Mart- einn er mesta borgarstjóraefni Sjálf- stæðisflokksins. Svön 1. Hann er 48 ára gamall. 2 Hann er bæjarstjóri á Akureyri. 3. Hann var áður bæjarstjóri á Dalvík og fsafiröl. 4. Hann er (Sjálfstæöisflokknum. 5. Hann er með há- skólagráðu í íslensku, bókmenntum og kennslufræðum auk stýrimanns- og skipstjómarréttinda. „Við vorum á ferðalagi um Snæ- fellsnes um páskana. Fórum að litast um eftir einhveiju til að gera um sumarið og ákváðum að halda risa- stóra útihátíð með bestu hljómsveit- unum og bestu myndlistarmönnun- um,“ segir Svavar Pétur Eysteinsson tónlistarmaður. „Síðar sáum við að það væri ekk- ert sniðugt að halda stóra hátíð, og halda frekar litla, sæta hátíð og kalla hana Krútt. Svo endaði þetta þannig að hún er ekkert lítil heldur algjör ófreskja." Um helgina verður listahátíðin Krútt haldin í félagsheimilinu Lýsu- hóli á Snæfellsnesi. Þar sér tylft hljómsveita úr framvarðalínu ís- lensks rokks um tónlistina ásamt Bandaríkjamönnunum í Mice Parade. Einnig verður opnuð mynd- listarsýning með um fimmtán mynd- listarmönnum. „Við hjónin stöndum að þessu ásamt þremur öðrum," segir Svavar. Hann er giftur Berglindi Haslér og saman skipa þau hljómsveitina Skakkamanage, sem treður að sjálf- sögðu upp á hátíðinni. „Tónleikamir verða í félagsheim- ilinu á föstudags- og laugar- dagskvöld. Myndlistarsýning- in opnar á laugardeginum en þá verður líka haldið sund- laugarpartí í sundlauginni á Lýsuhóli. Hún er ein sú fal- legasta og það rennur í hana ölkelduvatn. En í sund- laugarpartíinu verður plötu- snúður og ógleymanlegar uppákomur. Þar má gera allt sem er innan skemmtilegra marka," segir Svavar og nefnir i framhaldi að aldurs- takmark hátíðarinnar sé 20 ár. „Þetta er ekki unglinga- hátíð heldur menningarhá- tíð fyrir hugsandi fólk, að unglingum ólöstuðum." Hljómsveitimar sem koma fram á Krúttinu em múm, Hudson Wayne, Kimono, Skakkamanage, Benni Hemm Hemm, Auxpan, Borko, Reykjavík!, Skátar, Stórsveit Nix Noltes, Hundslappadrífa og Ólína Gunnlaugsdóttir. Miðasala fer fram í 12 Tónum, Plötubúð Smekk- leysu og á Hótel Búðum. Miðaverð er 3900 krónur en innifalið er tjald- stæði, tónleikar, myndlistarsýning, sundlaugarpartíið og bíósýning á sunnudeginum. „Spáin íyrir helgina er alveg glimr- andi," segir Svavar. „Það verður bongóblíða á Snæfellsnesi og hvergi annars staðar. Við emm búin að redda kömmm og getum tekið á mótí 500 manns. Fólk þarf bara að mæta með tjald, svefnpoka og stuð." halldor@dv.is Þingkonan unga er enn laus og liðug Katrín blæs á sögusagnir „Manni er hreinlega ýtt út af hengi. Katrín segir það hins vegar markaðnum með einu sandkomi," alrangt að hún og Ottó séu að slá sér segir Katrín Júlíusdóttir þingkona í upp. Er DV Ijúft að leiðrétta þennan léttum dúr. DV greindi frá því f gær misskilning. að þingkonan og Ottó Tynes, verk- „Svo stóð að ég væri á fullu í há- efnisstjóri hjá Tónabæ, hefðu sést skólanámi. Því miður gekk námið ganga hönd í hönd út af ölstofúnni ekki sem skyldi og ég þurfti að á föstudaginn. Var gengið svo langt hætta eftir einn mánuð í vetur. að setja orðið sumarást í það sam- Þetta var bara of mikið álag," segir Katrín sem er bæöi þingmaður f fullu starfi og einstæð móð- ir. Hún safnar nú orku í sumar fyrir komandi átök á þinginu og vill geta um fijálst höfuð strokið þótt hún hafi ekkert á móti Ottó Tynes. „Nei, hann er bæði fjallmyndarleg- ur og frábær maður," segir Katrín, en tekur aftur fram að þau hafi aldrei verið Katrín Júlíus- dóttir þingkona Laus og liðug og fersk i sumar. saman. Krossgátan Lárétt: 1 þjáning, 4 hlýðnu, 7 lélegur,8 ráð, 10 hönd, 13 fantir, 13 gróp, 14 sundfæri, 15 klók, 16dreifa, 18auka- sól, 21 bylgjum, 22 dreit- ill, 23 truflun. Lóðrétt: 1 ástfólginn, 2 handleggur,3 lysthús,4 tomma, 5 heiður, 6 sár, 9 tryllast, 11 krydd, 16 ánægð, 17 blaut, 19 dummviðri,20 áþekk. Lausn á krossgátu 5UI 07 'eujj 6 L 'HQJ L l jæs 91 jnöau 11 'isetæ 6 'pun 9 'mæ s'jnöuniujncjÞ '!l?>|SJnBl £ 'ul° 7 'Jæ>i L :W?499T •jsej £2'|>|a| ZZ 'ujnpip j|)6 81 '?JJS 91 'uæ>| s 1 j66n t? t 'S|ej £ L '|9171 'punæ 0 L 'nuæj 8 'Jn>|e| 1 'n6æcj Þ '|oa>| t uiajet P 90 ÁRA afmæli Sameiginlegt afmæli, eiga hjónin Omar S. Harðarson (50 ára) og Ingibjörg Kolbeins (40 ára) í ágúst. Af því tilefni efna þau til móttöku í SEM-salnum, Sléttuvegi 3, Reykjavík, fimmtudaginn 4. ágúst frá kl. 17.00-19.00. Allir vinir, vandamenn og núverandi eða fyrrverandi samstarfsfólk eru velkomin. ■l I I I I I I I I I I I I I I I I I I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.