Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2005, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2005, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST2005 Fréttir DV Stjórnarkona í KEA ósátt við stjórn félagsins Segir fráleitt að hafna fæðingarorlofi Úlfhildur Rögnvaldsdóttir, stjórnarmaður í stjórn KEA, hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem hún lýsir sig ósátta við stjórnina vegna yfirlýsingar hennar um starfs- lok Andra Teitssonar fráfarandi framkvæmdastjóra. Hún segir að skoðun stjórnarinnar um að fæðing- arorlof eigi ekki að gilda um stjórn- endur á háum launum í lykilstöðum sé röng og endurspegli ekki skoðun hennar. Enda sé skýrt kveðið á um rétt fólks til fæðingarorlofs í lögum. „Þessi afstaða mín var sérstaklega bókuð á fundi stjórnar KEA vegna starfsloka Andra og því ekki rétt að gera efasemdir um réttmæti um- ræddra laga að skoðun stjómarinnar í heild sinni," segir hún í fréttatil- kynningunni. „Ég tel þvert á móti að lög um aukinn rétt feðra til fæðingar- orlofs séu stórt skref í jafnréttismál- um kynjanna. Ekki má heldur gleyma í þeirri umræðu að lögin em fyrst og fremst sett til að tryggja rétt bama til að eiga umönnun beggja foreldra sinna vísa fyrstu misserin og væri að mínu mati fráleitt að gera greinarmun á þessum rétti barna eft- ir því hver staða eða tekjur feðra þeirra eða foreldra em, eða hvernig innra skipulagi einstakra fyrirtækja er háttað," segir hún. Andri Teitsson Þurfti að segja starfi sfnu lausu vegna afstööu stjórnar KEA til fæð- ingarorlofs. Andri Teitsson sagði í samtali við DV í gær að hann hygðist taka sér níu mánaða fæðingarorlof. Að því loknu ætlar hann að leita sér annars fjölskylduvænna starfs. Ögmundurum Feðranna flagg ögmundur Jónasson alþingis- maður segir á heimasíðu sinni að mikil tengsl séu á milli kvik- myndaiðnaðarins og hergagna- iðnaðar í Bandaríkjunum. Svo hafi ávallt verið í gegnum tíðina. Þetta ritar ögmundur af því tii- efni að tökur heflast á myndinni Feðranna flagg innan skamms. Ögmundur segir þá staðreynd að bandaríski herinn í Keflavík verði kvikmyndagerðarmönnum innan handar sýni augljóslega hags- munatengsl aðilanna tveggja. Sigurður Strandeng, íslenski athafnamaðurinn sem gat ekki keypt sér fasteign í Tyrklandi þar sem hann er íslenskur ríkisborgari, átti fund með starfsmönnum utanrikisráðuneytisins fyrir helgi. Hann er bjartsýnn að á málið leysist farsællega. Vilja leggja niður Rás 2 Samband ungra sjálf- stæðismanna hefur sent Páli Magnússyni, nýskipuð- um útvarpsstjóra, áskorun þess efiiis að hann taki Ríkisút- varpið af auglýsinga- markaði. Þetta vilja ungir sjálf- stæðismenn gera tO að auka svigrúm einkarekinna fjöl- miðla til að afla sér tekna. Jafnframt skora ungir sjálf- stæðismenn á nýjan út- varpsstjóra að skera niður í rekstri stofnunarinnar. Þeir vilja að hann leggi niður Rás 2, og hafni hugmynd- um um fleiri ríkissjón- varpsstöðvar. Drengurinn sem festvið Reykhóla Drengurinn sem lést í umferðarslysi við Reyk- hóla fyrir ofan Miðhúsa- brekku aðfaranótt sunnudags hét Máni Magnússon. Hann var fæddur 2. nóvember árið 1988 og var til heimilis að Lækjarhjalla í Kópa- vogi. Hann var við störf í Reykhólasveit í sumar. Máni heitinn ók mótor- hjóli og lenti í árekstri við bfl. TF-LIF, þyrla Landhelgisgæslunnar, var kölluð út vegna slyssins en var snúið við þegar læknir frá Búðar- dal hafði úrskurðað drenginn látinn. Tildrög slyssins eru enn óljós og eru í rannsókn Lögregl- unnar á Patreksfirði. Gripnir glóðvolgir Lögreglan í Reykjavík fékk tilkynningu frá íbúum í Vesturbæ Reykjavíkur á fimmta tímanum í gær- morgun vegna gruns um að verið væri að brjótast inn í hús þeirra. Þegar lögreglu- menn kom á vettvang voru tveir góðkunningjar lög- reglu staðnir að verki. Ibú- arnir höfðu vaknað við inn- brotið og hringdu á lög- reglu. Mennirnir höfðu þá tekið tölvu og fleiri muni föstum tökum. Þeir voru handteknir og játuðu brot sín við yfirheyrslur. Málið telst upplýst. „Það liggur á að nýr útvarpsstjóri komi RÚV inn á 21. öldina," segir Hafsteinn Þór Hauks son formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna.„Hann ætti að færa stofnunina afaug lýsingamarkaði og úr samkeppnisrekstri við einkaaðila. Svo ligguráí kjölfarið að stjórn- máiamennirnir selji stofnunina." Eins og DV greindi frá á dögunum íhugaði Sigurður Strandeng, íslenskur athafnamaður í Danmörku, að sækja um danskan rík- isborgararétt til að geta keypt fasteign í Tyrklandi þar sem hann stendur í miklum framkvæmdum. Tyrknesk yfirvöld leyfa fs- lendingum ekki að kaupa fasteignir þar sem ísland hefur ekki gert svokallaðan „gagnkvæmissamning" við Tyrki. Sigurður sendi Davíð Oddssyni utanríkisráðherra bréf f sumar varð- andi málið en fékk ekki svör. Mál hans komst hins vegar á skrið eftir að DV fjallaði um málið og mætti Sig- urður á fund í utanríkisráðuneytinu á föstudaginn þar sem hann hitti Finn Þór Birgisson sendiráðsritara við- skiptaskrifstofu ráðuneytisins. Gekk framar vonum Sigurður sagði í samtali við DV í gær að hann væri mjög ánægður með fundinn. „Þetta gekk allt saman mjög vel og framar öllum vonum. Finnur Þór útskýrði fýrir mér reglumar á fs- landi en þær kveða á um að allir út- lendingar geti sótt um að kaupa fast- eignir á íslandi en íslensk stjómvöld hafi val um að hafna umsóknum. Þessu vilja stjómvöld halda áfram og ég get vel skilið þaö," sagði Sigurður. Áhugasamir um lausn Sigurður sagði að Finnur Þór hefði sagt að utanríkisráðuneytið hefði í hyggju að setja í gang viðræður við Tyrki um mögulega lausn á þessu máli. „Ég veit að Þorsteinn Pálsson, sendiherra í Kaupmannahöfri, á eftir að koma sér inn í málið en það sendi- ráð sér um samskipti við Tyrki. Ég er „Ég held upp á sex ára afmæli sonar míns í dag og síðan fer ég beint í að slá umsókninni á frest." P9 Borgin Antalya íTyrklandi Þarna villSigurður kaupa fasteign fyrirsig og selja öðrum fslendingum. mjög bjartsýnn á að þetta mál leysist á næstu vikum." Mikill áhugi íslendinga Sigurður stendur í miklum framkvæmdum í Tyrklandi þar sem hann byggir upp sumar- húsabyggð við borgina Antalya á suðurströnd landsins og hann sagðist hafa orðið var við mik- inn áhuga meðal íslendinga. „Ég talaði við fuUt af fólki meðan ég dvaldi á íslandi og gat ekki séð annað en að það hefði mikinn áhuga á að kaupa hús í Tyrklandi. Vonandi gengur þetta eftir." Danski ríkisborgararéttur- inn settur í salt Eins og áður sagði hafði Sigurður í vonleysi sínu sótt um danskan rikis- borgararétt til að geta keypt fasteign í Tyrklandi en hann hefur ákveðið að setja umsóknina í salt. „Ég held upp á sex ára afmæli sonar míns í dag og síðan fer ég beint í að slá umsókninni á frest. Þrátt fýrir að Finnur Þór gæti engu lofað hef ég fulla trú á að þetta garigi." Sigurður Strandeng /slenski athafnamaður- inn er bjartsýnn á að geta keypt fasteignir / Tyrklandi eftir fund með utanrikisráðuneytinu. Hvað liggur á?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.