Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2005, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2005, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAOUR 11. OKTÓBER 2005 Fréttir DV Hættulegt gervigras Séra Baldur Kristjánsson sem situr í bæj- arráði ölfuss, telur að hætta kunni að stafa af gervigrasvöllum. Á síðasta fundi bæjarráðsins var samþykkt eftir- farandi tillaga frá Baldri. „Bæjarráð Sveit- arfélagsins ölfuss beiti sér fyrir því að það verði rann- sakað af óháðum aðila hvort að efni í gervigras- velli kunni að vera heilsu- r"landi á einhvern hátt.“ eðið var að Ólafur Áki Ragnarsson bæjarstjóri setji sig í samband við hlutaðeigandi aðila til að varpa ljósi á málið. l'„.i Sundabraut lyftir verði Væntanleg Sundabraut er þegar farin að hafa áhrif á fasteigna- og jarðaverð á Kjalarnesi. í augnablikinu eru tvær jarðir auglýstar þar til sölu. Fyrir jörðina Esjuberg, sem á 120 hekt- ara land undir 100 metra hæðarlínu, eru settar upp 300 milljónir króna. Fyrir jörðina Skrauthóla, sem sögð er vera 30 hektarar, er verðhugmyndin 100 millj- ónir. Aðeins fylgja útihús á jörðunum tveimur. „Með tilkomu Sundabrautar verður landið mjög spenn- andi og gefur mikla mögu- leika sem framtíðarbygg- ingarland," segir Fast- eignamiðstöðin. Stúlka skorar á pabba sinn Átján ára stúlka í Hafnarfirði hefur leitað til sýslumanns og krafist þess að pabbi hennar greiði henni ijárframlag vegna menntun- ar þar til hún verður tuttugu ára. Pabbinn, sem er 44 ára, er búsettur í Svíþjóð. Sýslumað- urinn í Hafnarfirði vísar í barnalög frá árinu 2003 og skorar á föðurinn að mæta til sín á skrifstofuna í fyrra- málið, ella muni sýslu- maðurinn beitá sér í mál- inu á annan hátt sam- kvæmt lögunum. íbúar í Grjótaþorpinu óttast að áfengisský leggist yfir miðbæinn þegar miklu magni af spíra verður hellt yfir fornminjar Ingólfs Arnarsonar í Aðalstræti. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur tekið verkið út og telur enga hættu af. Þekktir bindindismenn í hverfinu áskilja sér þó allan rétt til skaðabóta falli þeir í óreglu á ný vegna þessa. Tólí tonnura aí alkóholi hellt vfip fornminjar Þráinn Bertelsson Áskilur sér rétt til skaðabóta leggist áfengis■ skýyfir heimili hans með ófyrir- sjáanlegum afieiðinqum. Hótel Reykjavík Centrum Fornminjari hluta til undir hótelinu en hóteistjórinn ót ekki áfengisfnykinn þarsem fornminjarni eldvörðu og loftþéttu rúmi. Til stendur að hella miklu magni af alkóhóli yfír fornminjar Ing- ólfs Arnarsonar í Aðalstræti og hefur íbúum í Grjótaþorpi verið sent bréf þar sem þeir eru varaðir við. „Það er verið að forverja minjarn- ar og til þess er notað áfengi," segir öm Sigurðsson, skrifstofustjóri á umhverfissviði Reykjavíkurborgar. „Lyktin gæti borist út og hafa ibú- arnir fengið bréf frá Minjasafni Reykjavíkur vegna þessa en Minja- safnið sér um framkvæmdina," segir hann Fornminjamar í Aðalstræti eru að hluta undir Hótel Reykjavík Centrum sem nýlega tók til starfa á horni Aðalstrætis og Túngötu. Snorri Thors hótelstjóri óttast þó ekki áfengisfnykinn og telur fullvíst að gestir hótelsins eigi ekki eftir að líða fyrir þetta: „Slökkviliðið er búið að taka þetta út og telur enga hættu af. Minjarnar em í eldvörðu og loft- þéttu rými þannig að gestir okkar eiga ekki eftir að finna neitt," segir hótelstjórinn. Meira en ein flaska Jón Viðar Matthíasson, slökkvi- liðsstjóri í Reykjavík, tekur í sama streng og Snorri Thors hótelstjóri og telur ekki hættu á ferðum: „Þetta er meira en ein flaska sem fer þárna niður en öllum ætti að vera óhætt," segir slökkviliðsstjórinn. íbúarnir eru þó ekki allir sáttir og hafa þeir til að mynda áhyggjur af AA-fundum sem reglulega em haldnir í Tjarnargötu þarna rétt hjá. Ekki er þó ráðgert að flytja fúndina annað þegar alkóhólinu verður hellt yfir fomminjar Ingólfs Amarsonar í Aðalstræti. Ekki náðist samband við Gerði Guðnýju Gunnarsdóttur, for- stöðukonu Minjasafns Reykjavíkur, til að fá magn alkóhólsins staðfest en talið er að tólf tonnum af spíra verði hellt yfir fomminjamar í Aðal- stræti. Áfengisþoka? „Það er mjög ffumlegt að geymá fýrstu landnámsmennina í spíra," segir Þráinn Bertelsson rithöfundur sem býr í Grjótaþorpinu rétt hjá fornminjunum. Þráinn er bindindis- maður og hefur ekki smakkað áfengi um árabil. „Ef þessi áfengisþoka sem leggst hér yfir verður til þess að ég falli þá mun ég fela lögfræðingi mínum að fara í mál við Reykjavík- urborg og bæta skaðann," segir Þrá- íbúarnir eru þóekki allir sáttir og hafa þeir til aðmynda áhyggjuraf AA-fundum sem reglu- lega eru haldnir í Tjarn- argötu þarna rétthjá. Jón Viðar Matthíasson Slökkviliðsstjórinni Reykjavík hefur tekið verkið út og viðurkenmr að þarna fari meira en ein flaska niður. ■ * r' ^tíítiíiUÍSlmiS Xrr'f* ‘ ....' í» »• UStiiÍŒgmr-.V«3sF!; Besta djobbið W, Það á ekki að festast í sama farinu endalaust. Best er að skipta algerlega um djobb á svona tíu til fimmtán ára fresti. Stundum verður Svarthöfði pirr- aður á því að vera stöðugt að endur- taka sig. Þessi tilfinning hefúr verið ansi þrálát upp á síðkastið. Auðvitað er úr mörgu að velja fyrir stórtalent. Kannski væri bara sniðugt að gerast þingmaður. Þá væri fljótlega hægt að söðla um og verða ráðherra eða forstöðumaður Þróunarsam- vinnustofnunar íslands og nágrennis. Eða Svarthöfði gæti orðið þátta- stjómandi í sjónvarpinu. Þá væri Svarthöfði alltaf hægt að verða borgarstjóri ef manni leiddist. Og þá getur maður líka tekið heifan snúning og mætt aft- ur upp á RÚV sem útvarpsstjóri. Hvert sem litið er em tækifæri fyr- ir laghenta menn. Arkitektar em sjón- varpsstjömur og farandverkamenn rokkstjömur. Það þarf enginn að vera í fýlu. Það er alltaf leið út. Sum djobb em þó bara þannig að engin leið er að fá leið á þeim. Að manna aðalstólinn í Seðlabankanum er náttúrlega súperflott. Þá getur Hvernig hefur þú það ,Ég hefþað Ijómandi fínt, það vantar ekkert upp á þaö,“segir leikarinn Þröstur Leó Gunnarsson . Það eru að koma jól og það fer að líða að þvl að ég komist í jóiaskap. Ég er að fara í fæðingarorlof í byrjun nóvember og það verður alveg meiriháttar að vera með fjölskyldunni yfir jólin, ólíkt fyrri árum. Ég ætla að klára Koddamanninn og síðan segi ég bless I bili." maður loks haldið öll menntaskóla- partíin sem alltaf vantaði í gamla daga; með flottum veitingum og þema kvöldsins: Það jafnast ekkert á við tógapartí í marmarahöll. Og æðsta starfið af öllum störfum er ónefnt. Það slær ekkert út sendi- herrann. Hver vill ekki það sem eftir er starfsævinnar sötra sérrí og koníak með indverskum aðalsmönnum, sænskum diplómötum og ljóshærð- um starfsstúlkum bandarísku leyni- þjónustunnar? How do you do? Besta leiðin til að ná að verða sendiherra er millifending á Alþingi. Þar er staldrað við í drykklanga stund við að kynna sér þingræðið áður en haldið er á vit ævintýranna í framandi löndum. Engirm er svo vitlaus að vifja hætta sem sendiherra. Nema þá til að koma heim og skrifa sagnffæðilegt meist- araverk um 100 ára sögu þingræðis- ins á fslandi. Og hver veit nema mað- ,ur verði svo ritstjóri Morgunblaðsins upp úr öllu saman. Svartböfði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.