Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2005, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2005, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 2005 Fréttir DV Siglufjörður nötrar Siglfirðingar nötruðu í gærmorgun þegar jarð- skjálfti af stærðinni 3,7 á Richter varð um ellefu kíló- metra norðaustur af bæn- um. Þrátt fyrir að skjálftinn hefði fundist best á Siglu- firði bárust skj álftafréttir víðar að. Kona á Ólafsfirði tilkynnti um hvin, mikið högg og hristing í hillusam- stæðu heima hjá sér og maður í Hörgárdal tilkynnti að hann hefði vaknað við skjálftann. Tveir skjálftar, 1,8 og 1,9 á Richter, fylgdu í kjölfarið. Geðheilbrigði íHÍ í tilefni þess að í gær var alþjóðlegi geðheilbrigðis- dagurinn var stofnað nýtt félag innan Háskóla ís- lands; Félag fólks með geð- raskanir og áhugafólks um málefnið. Þema geðheil- brigðisdagsins í ár var „Andleg og líkamleg heilsa yfir æviskeiðið". Markmið dagsins er að vekja fólk til vitundar um að tengslin milli andlegrar og líkam- legrar heilsu eru órjúfanleg. Einnig er lögð áhersla á mismunandi þætti andlegs og líkamlegs heilbrigðis á hverju æviskeiði fyrir sig. Pirraðir sjúkraliðar „Þolinmæði okkar er þrotin," segir í nýlegri álykt- un frá fúndi sjúkraliða sem starfa hjá Samtökum fýrir- tækja í heilbrigðisþjónustu. Sjúkraliðar em mjög óá- nægðir með hve lengi hefur dregist að ganga frá samn- ingum um kjör þeirra og önnur starfsréttindi við Sjúkraliðafélag fslands. Fundurinn krefst þess að gengið verði frá nýjum kjara- samningi sem fyrst með gild- istíma frá fyrsta mars á þessu ári. Að öðrum kosti verði deilunni vísað til Ríkissátta- semjara. Meðal stofnana sem í hlut eiga er Hrafhista í Reykjavík og Hafnarfirði. Landsíminn velli Vestmannaeyja, “ segir Jó- hann Óli Guðmundsson, for- maöur Ungra jafnaðarmanna I Vestmannaeyjum.,, Völlurinn er við Herjólfsdal og var kos- inn einn af25 bestu völlum Skandinaviu i sumar. Enda eru mjög margir sem spila golf hérna. Annars er gott veður í Eyjum. Sól og hiti." Ingi Gunnar Jóhannsson hefur hannað strætóleiðakort sem er einstaklega auðvelt í notkun. Kortið sem styðst við alþjóðlega leiðakortastaðla sýnir kerfið á auðskil- inn og einfaldan hátt. Ingi Gunnar hefur eytt Qórum árum í að kynna hugmyndina fyrir daufum eyrum forsvarsmanna Strætós. Aðlaðandi strætó „Ég kynnti forsvarsmönnum Strætós þessa hugmynd fyrst fyrir Qórum árum. Síðan hef ég átt marga fundi með þeim en þeir hafa ekki getað tekið ákvörðun um hvort þeir ætii að nota hug- myndina," segir Ingi Gunnar Jóhannsson, landfræðingur og kortagerðarmaður, en hann hefur hannað leiðakort fyrir nýtt leiðakerfi Strætós. Kortið er byggt á sömu aðferða- fræði og leiðakort samgöngukerfa í erlendum borgum og er auðskilið og auðvelt í notkun. Ingi Gunnar er orðinn þreyttur á seinagangi Strætós og ætlar að gefa kortið út á eigin vegum í næsta mánuði þó enn standi vonir til að Strætó taki kortið upp á sína arma. Beinar iínur Á kortinu er allar leiðir auð- kenndar með beinum lituðum línum svo auðvelt er að sjá hvar maður er staddur og hvert maður er að fara. Allar stoppistöðvar eru merktar með nafni og allar leiðir merktar með númerum. „Með kortinu finnur þú á augabragði hvar þú ert staddur og sérð strax hvemig þú átt að komast á leiðarenda," segir Ingi Gunnar. Kveður niður óánægju „Ég er sannfærður um að óá- nægja fólks með nýja leiðakerfið ætti eftir að minnka ef þetta kort væri í notkun. Leiðakerfið er mjög gott í grunninn en það á bara eftir að kynna það fyrir neytendum," segir Ingi Gunnar sem telur að kortið gefi Strætó gott sóknarfæri í samkeppn- inni við einkabílinn því með kortinu sést hvað strætisvagnar em hentug- ur ferðamáti og auðveldur í notkun. Sérhæfður í gerð leiðakorta Ingi Gunnar hefur sérhæft sig í gerð leiðakorta. Hann hefur áður hannað leiðakort fyrir rútur landsins en það kort hefur slegið í gegn hjá ferðamönnum og starfsmönnum í ferðaþjónustu auk þess sem það hefur fengið viðurkenningu frá Impru, nýsköpunarsetri Iðntækni- stofrtunar, og fengið viðurkenningu frá samgönguráðuneytinu. svavar@dv.is Ingi Gunnar Jó- hannsson Erþess fullviss að kortið geri Strætó sam- keppnishæfan við einkabílinn. ( „Ég er sannfærður um að óánægja fólks með nýja leiðakerfið ætti eftir að minnka efþetta kort væri í notkun." Þverholt r Lækjartorgj il I “i-'-ty. CoiWR/ Hamraborg LEIÐALYKILL HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS (SxD Hönnun og höfundarrattur / Copyright and cartography: Hugarflug ehf. / Ingi Gunnar Jóhannsson 2005 UEIÐALYKiLL ts a ragistwsd trad« m»k. Ail nghta reserved. This route rr.ap may not be coptod or reproduced tn any fomr'without a writtsrt permiswon t>y th» pobliatiw. Leiðakort Inga Gunnars Hannað að erlendri fyrir- mynd og einstaklega auð- veltínotkun. Fjírður &trar<Sí«í LEIÐALYKILL er skráð vörumeriu. Öi réttavfc ibkitei. Uðakort þetta ftr sjálfstætt rrtyndverk, rrýíur bónoynarv«rr>dar *kv. Iðgum um hönnun rv, 46/2001, Hv«rs korwv ehiiv«<ðir af korii jx»su dru txmnaðar, að tuuts eðo i hftMd, ön skriflegs aamnings við korthöfund ogútgafonda. Tftikriun og útlitehönmjn: Augiýsinu«fttofa hórhðdar efri LEIÐALYKILL © Hugarflug ehf. 2005 þ«tte teiðakort ft( án matrlíkva/ða

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.