Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2005, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2005
Fréttir DV
GSM í Djúpinu
Að því er segir á leid.is
hefur GSM-samband stór-
batnað á leiðinni frá
Hólmavík að Súðavík. Áður
hafi samband aðeins verið
á litlum bletti yst í
Skötufirði á þessum
kafla sem sé um 200
kílómetra langur.
Sendir var settur
upp á vegum Sím-
ans í Bæjum á
Snæfjallaströnd, innarlega í
norðanverðu ísafjarðar-
djúpi. Nú mun enginn kafli
vera lengri en 25 kílómetrar
án GSM-sambands. Nánar
er hægt að kynna sér hvar
er komið á samband á
þessari leið á leid.is. Það er
vefur félags um einkavæð-
ingu vegamannvirkja.
Ekki GSM á
Barðaströnd
Einar öm Thorlacius,
sveitarstjóri í Reykhóla-
hreppi, segir að þótt GSM-
samband sé nú orðið miklu
betra um ísafjarðardjúp sé
ástandið enn afar slæmt á
Barðaströnd. „Það ber því
allt að sama brunni.
Djúpvegur er allur
meira og minna
orðinn malbikaður.
Vestfjarðavegur er
langt á eftir. ISDN-
tengingar og GSM-
samband orðið
mjög þokkalegt á
Djúpvegi. Hvort tveggja í
ólagi á Vestfjarðavegi. Er
ekki kominn tími til að
snúa sér að Vestfjarða-
vegi?" segir sveitarstjórinn í
grein á reykholar.is.
Fagnaðir þú
kvennafn-
deginum?
Jón Atli Jónasson
rithöfundur.
„Ég notaði daginn í að hugsa
vel um konurnar í lífi mínu.
Eldaði og vaskaði upp og naut
dagsins með konunni og
börnum. Ég bý náttúrlega I
þessu kraðaki niðri í bæ og
það var gaman að sjá allar
þessar konur með barnavagn-
ana í bítandi frostinu. Þetta
var bara frábær dagur."
Hann segir / Hún segir
„Þetta varyndislegt. Mér
fannst bara ótrúlegt að vera
vitni að þessari samstöðu.
Ókunnar konur að brosa hver
framan í aðra. Allar meðvitað-
ar um að við værum á sömu
forsendum. Ótrúlegt að upp-
lifa það. Ekki upplifa sjálfa mig
sem hluta afkúguðum minni-
hluta i kröfugöngu. Yndislegt
þótt staðsetningin hefði mátt
vera betri."
Hildur Lillienthal
Viggósdóttir,
nemi i Háskóla Islands.
Thanh Viet Mac, ekkja Vu Van Phong, sem myrtur var í Hlíðarhjalla í vor, er ný-
komin heim eftir þriggja mánaða dvöl í Víetnam. Þar jarðsetti hún eiginmann sinn
og safnaði kröftum eftir erfiða tima. Tveggja milljóna króna söfnunarfé lesenda DV
gerði ferð hennar mögulega en í henni heimsótti hún foreldra sína i fyrsta skiptið
síðan hún fluttist til íslands í von um betra líf.
I
. vici mdt cKKjan er
nýkomin heim eftirþriggja
mánaöa dvöl í Víetnam. Þar
var maður hennar lagður til
sinnarhinstu hvílu.
Vu Van Phong
Myrturi Hlíðarhjalla
Lét eftirsig eigin-
konu og dóttur.
Hrædd við
Phu Tien
Fyrir skömmu var
hún boðuð af Sigríði
Friðjónsdóttur sak-
sóknara í skýrslutöku
í Héraðsdómi Reykja-
víkur. „Hún var
hrædd enda að sjá
morðingja manns-
ins hennar í fyrsta
síðan þessi
hörmulegi atburður
átti sér staö,“ segir
Sigurður Jóns-
son. Viet
lét þó
Phu Tíen Nguyen
Sturlaðist þegar
hann var ekki
ávarpaður rétt.
Jarðsetti eiginmanninn
Víetnam með ðiálp DV
„Hún kveið mikið fyrir," segir Sigurður Jónsson, vinnuveitandi
Thanh Viet Mac, ekkju mannsins sem myrtur var í Hlíðarhjalla í
vor, en Viet bar vitni í réttarhöldunum yfir Phu Tien Nguyen á
mánudaginn. Þetta var í fyrsta skipti sem Viet mæti Tien augliti
til auglits eftir hina hræðilegu atburði í maí sem leiddu til dauða
Vu Van Phong.
Thanh Viet Mac er nýkomin aftur
til íslands en fé sem lesendur DV
söfnuðu fyrir hana gerðu henni kleift
að fylgja eiginmanni sínum til sinnar
hinstu hvílu á heimaslóðum í Ví-
etnam. Hún notaði ferðina einnig til
að hitta fjölskyldumeölimi, þar á
meðal foreldra sína, sem hún hafði
ekki hitt síðan hún kom hingað til ís-
lands fyrir nokkrum árum í von um
betra líf. I Víetnam safnaði hún líka
kröftum eftir
erfiða
daga
vikur
sem
og
að
fylgdu í kjölfar morðsins á eigin-
manni hennar.
Ekki ólétt
Alls söfnuðu lesendur DV um
tveimur milljónum króna fyrir Viet og
dóttur hennar Kristínu sem er
fjögurra ára gömul. Sigurður Jónsson,
vinnuveitandi hennar, sem sinnt hef-
ur málstað hennar síðan áfallið dundi
á Viet í vor segir hana fulla af þalddæti
til þeirra sem lögðu söfnuninni lið.
DV fékk það staðfest í gær að grun-
ur Viet og fjölskyldu hennar um
hún væri þunguð reyndist
ekki réttur. Hún gengur því
ekki með bam látins eigin-
manns síns undir belti eins
greint hefur verið frá í
fréttum.
ekki óttann yfirbuga sig. Hún mætti
Phu Tien yfirveguð og sagði dóm-
urum frá síðustu stundum eigin-
manns hennar í Hlíðarhjalla. Eftir
að hafa gefið skýrslu fylgdi kona
Sigurðar henni heim.
Viet hefur nú aftur hafið störf
hjá Sigurði og konu hans í efnalaug-
inni í Mjóddinni. Að sögn Sigurðar er
hún öll að koma til. „Líf hennar er
loks að komast í jafhvægi eft
ir erfiða tíma,“ segir
hann.
andri@dv.is
Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli
Diplómatapassar skipta engu máli
„Hvað íslendinga varðar þá skipt-
ir okkur engu máli hvort þeir sem
hingað koma hafi slíka pappíra. Við
gerum engan mun á þjón-
ustuvegabréfum og almennum
vegabréfum," segir Jóhann Ragnar
Benediktsson, sýslumaður á Kefla-
víkurflugvelli.
DV hefur að undanförnu fjallað
nokkuð um þjónustuvegabréf og
diplómatísk vegabréf. Erfitt hefur
reynst að átta sig á því í hverju for-
réttindin eru sem felast í viðkomandi
pössum - í hverju þeir eru frá-
brugðnir venjulegum vegabréfum.
í blaðinu í gær útskýrði Helgi
Gíslason sendiherra að munurinn
væri sáralítill. Aðallega væri þetta ör-
yggisventill fyrir viðkomandi kæmist
sá í hann krappan gagnvart erlend-
um yfirvöldum. „ Ég segi fyrir mig, ég
hef aldrei hikað við að opna tösku
mína. Sumir hafa verið að gera uppi-
stand. En í mínum töskum hafa
aldrei verið nein leyndarmál. Og. ég
hef ekki séð ægilega mikið gagn að
þessu," segir Helgi.
Jóhann tekur í sama streng
spurður um það hvort þetta breytti
einhverju gagnvart erlendum gest-
um sem fara í gegnum tollinn hjá
honum. Segir passana undirstrika
stöðu viðkomandi en breyti litlu um
afgreiðsluna.
„Varningur sem viðkomandi er
með er þá ekki skoðaður, eða við
skulum frekar segja að ekki sé sjálf-
gefið að leitað sé. Fer eftir eðli máls
og atvikum hverju sinni. Ég get geng-
ist við því að leitað hefur verið hjá
handhöfum slíkra passa og þeir ekki
sáttir. En það hefur verið leyst í kurt-
eisi. Þetta er ekki einfalt. Og almennt
í þessum heimi vilja „afbrigðileg"
vegabréf kalla á meiri en minni at-
hygli. Þau eru jafnvel meira skoðuð
Jóhann Ragnar Bene-
diktsson sýslumaður
Segir „afbrigðileg" vegabréf
oft kalla á meiri athygli sem
er vel þekkt frá árum áður
þegar islensku diplómata-
vegabréfin voru hárauð.
en minna. Vel þekkt er frá ámm áður
þegar íslensku diplómatavegabréfin
vom hárauð. Alveg eins og endur-
skinsmerki í nóttinni og hrópuðu á
athygli," segir Jóhann.
Pössunum var hins vegar breytt
fyrir um tíu ámm þegar ný vegabréf
voru tekin í gagnið og eru nú mjög
líkir hinum hefðbundnu.