Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2005, Blaðsíða 17
r
DV Fréttir
MIÐVÍKUDAGUR 26. OKTÚBER2005 17
S;' .
'
FRA FLATEYRI
Lilja Asgeirsdóttir, 34 ára.
Lilja bjó með manni sinum, Þor-
leifi, að Hafnarstræti 41. Hún lét
eftir sig tvær dætur frá fyrra
hjónabandi, Kristrúnu Evu og
Guðrúnu Helgu Elvarsdætur.
Hafnarstræti 41
Þorleifur Yngvason, 38 ára.
Þorleifur bjó að Hafnarstræti 4 7.
Hann var barnlaus en Lilja kona
hans sem einnig lést í flóðinu átti
tvær dætur sem Þorleifur tók að
sér sem sinar eigin.
Hafnarstræti 41
Linda Björk Magnúsdóttir, 24 ára.
Linda fæddist í Reykjavík en bjó
lengi á Seyðisfirði. Hún bjó ásamt
foreldrum sinum, þeim Magnúsi
Karlssyni og Fjólu Aðalsteinsdótt-
ur, að Hafnarstræti 45.
Hafnarstræti 45
Fjóla Aðalsteinsdóttir, 50 ára.
Fjóla var fædd i Hafnarfirði og
ólst þar upp. Hún var gift Magnúsi
E. Karlsyni sem einnig lést í flóð-
inu. Dóttir hennar Linda Björk lést
einnig. Fjóla átti þrjú systkini, þau
Hilmar Þór, Tryggva og Þóreyju.
Hafnarstræti 45
Geirþrúður Friðriksdóttir, 69 ára.
Geirþrúður var ásamt manni sín-
um Gunnlaugi sofandi i húsi
þeirra að Tjarnargötu 3 þegar
flóðið féll. Hún var fædd að Látr-
um i Aðalvik. Geirþrúður hafði
alla tíð mikið yndi af garðrækt og
starfaði til fjölda ára i Kvenfélag-
inu Brynju á Flateyri.
Tjarnargata 3
Halldór Svavar Ólafsson, 20 ára.
Halldór fæddist á ísafirði en ólst
upp i Bolungarvik. Halldór tók virk-
an þátt í sundi og æfði afkappi
með UMFB Hann tók við rekstri á
býlinu Laugabóli þegar húsfreyjan
þar þurfti að dveljast á sjúkrahúsi
eftir að hafa misst dóttur og barna-
barn sitt i snjóflóðinu sem féll i
Súðavik. Hann var staddur að Unnarstíg 2 þegar
snjóflóðið féll á Flateyri.
Unnarstígur2
Magnús E. Karlsson, 53 ára.
Magnús var fæddur i Hafnarfirði
og ólstþar upp. Hann var kvæntur
Fjólu Aðalsteinsdóttur sem einnig
lést ásamt dóttur þeirra, Lindu
Björk. Margrét Þórey dóttir þeirra
slapp ómeidd úr hamförunum þar
sem hún var flutt að heiman. Hún
býr enn á Flateyri. Sonur þeirra,
Anton Már, hafði verið á Suðureyri um nóttina.
Magnús var sjómaður.
Hafnarstræti 45
Gunnlaugur P. Kristjánsson, 72 ára.
Gunnlaugur bjó að Tjarnargötu 3
ásamt konu sinni Geirþrúði. Þau
giftust árið 1946 og bjuggu alla
tið á Flateyri. Þau eignuðust sex
dætur og einn son. Gunnlaugur
var sjómaður fyrstu árin. Hann
var einn afstofnendum og aðal-
eigendum Hjálms hf. á Flateyri og
starfaði þar sem verkstjóri fram á síð
ustu ár.
Tjarnargata 3
Svana Eiríksdóttir, 19 ára.
Svana fæddist i Reykjavik en ólst
upp á Flateyri. Hún stundaði um
skeið nám við framhaldsskóla
Vestfjarða á Isafirði, en starfaði á
þessum tima á veitingastaðnum
Sjö rósum við Grand Hótel i
Reykjavík. Hún var i heimsókn hjá
frændfólki sinu.
Unnarstígur 2
Sólrún Ása Gunnarsdóttir, 15 ára.
Sólrún Ása var fædd í Reykjavik.
Foreldrar hennar eru Elin Hall-
dóra Jónsdóttir og Gunnar Krist-
ján Guðmundsson. Hún átti tvær
systur. Sólrún Ása stundaði nám i
tíunda bekk í Grunnskólanum á
Flateyri.
Unnarstígur 4